Færsluflokkur: Matur og drykkur

Corn Fleks Kjúklingabringur-rosa gott ;)

Langar aðeins að testa mig áfram á blogginu mínu og fikta smá; skipta aðeins úr fréttaþrasinu..Sjá hvernig gengur að setja inn myndir með færslu. Alveg vonalaus í tölvum og tækni ;(  En fjölskylda mín og vinir mega þakka sínu sæla að ég er öllu færari í eldhúsinu ;) Set hér að ganni uppskrift að kjúkingabringum sem ég var með í matarboði um daginn í þeirri von að það gleðji jafn mikið í Netheimum og það gerðijan-mars_2012_108.jpgSalat Rjómaterta með Coktailávöxtum í Mannheimum. Ég skálda venjulega við eldavélina það sem ég bý til, stundum smá á meðan ég er í búðinni og er ekki vön að nota uppskriftir og man oftast aldrei sjálf hverju ég blanda saman eða hvaða krydd ég nota. Svo núna ætla ég að prófa að skrifa niður og set 1.tilraun með það hér og nú á bloggið mitt. Pínu í belg og biðu sé ég.. en óhætt að maila mér ef þið lendið í vandræðum með eitthvað. Allavega á meðan ég man þetta ennþá...;)

 

 

 

 

 

 

Corn Fleks Kjúklingabringur- passlegt fyrir 6 manns

2 pk kjúklingabringur

Ca. 300 gr. Kellog´s Corn Fleks

2 egg og smá mjólk

Krydd: Season all, svartur pipar, hvítlaukssalt, sweet chili og soyja sósa

Olía til steikingar

Aðferð:

Ég skar bringurnar í tvo bita, þvert. Kryddaði þær beggja megin og setti svo smá soyja yfir. Leyfði þessu að standa í ca. 2 klt. en það þarf ekki að vera svo lengi held ég. Pískaði svo eggin saman og setti smá mjölk útí, þá er þetta ekki alveg eins þykkt, virkar betur þannig þykir mér. Hitaði pönnuna og svo olíu á hana, eins lítið og ég taldi mig komast af með ( bévítas kaloríur..). Á meðan olían hitnaði, setti ég Corn Fleksið í plastpoka og muldi það með höndunum. Setti svo kjúklingabringurnar í , nú búið að setja þær í eggjahræruna. Og svo hristi ég pokann þar til ég sá að mulið Corn Fleksið huldi bringurnar vel. Svo brúnaði ég þær á pönnunni og setti smá af sama kryddinu aftur á, beggja megin. Setti þetta svo í eldfast mót og inní 180 gráðu heitan ofn í ca. 35 mínútur.  Læt mynd fylgja en hún er ekki svo góð en sú eina sem ég er með.

Svo bar ég þetta fram með salati, bökuðum kartöflum( með olíu og grófu salti)  og smábrauði með rauðu pestó, ásamt rjómasveppasósu með beikoni og lauk. , sjá uppskriftir neðar. Er með mynd af salatinu og sósunni. Í eftirrétt var ég með karamelluskyr sem ég bjó til en á enga mynd ;(  Svo ég læt fylgja mynd af rjómatertu úr öðru matarboði uppá gamla mátann. Bakaði 2 svampbotna og setti koktailávexti úr dós á milli og ofan á. Það er allt og sumt og þvílík lukka sem hún olli ! Hvorki ég né aðrir höfðu smakkað þessa gömlu góðu tertu í milljón ár eða svo. Skil ekki í því að kaffishús skuli ekki selja þetta, alveg  er ég viss um að þessi klassíksa terta myndi seljast eins og heitar lummur, sem fást ekki heldur að vísu...Skreytti að ganni með súkkulaðihjörtum, það var eina nútímasvindlið. 

Salatið

Ísberg salat haus, púrrulaukur, rauð paprika, agúrka, cherrý tómatar, ristuð sesamfræ, salthnetur, radísur, rifinn gouda ostur  og rifinn parmesan. Skreytt með appelsínusneiðum, radísum og tómötum.

Sósan

2 bakon bréf, 1 box sveppir, 1/2 gulur laukur, 2 knorr beef teningar, 1 sveppasmurostur, 1 peli rjómi, smá mjólk, maizena til þykkingar og ca. 1 tsk. jarðarberjasulta ( má t.d. vera rifsberjahlaup). Og sömu krydd og á kjúklinginn; season all, hvítlaukssalt, svartur pipar og sweet chilli.

Verði ykkur að góðu ;)) 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband