Ný göt

,,þá koma bara ný göt"

Sagði framkvæmdastjóri Samtaka Ativnnulífssins í fréttum RÚV í gærkvöld, þá staddur í húsakynnum Alþingis. Eins og ef ekki neitt væri sjálfsagðara. Saknaði þess að fréttamaður hafi ekki spurt hann nánar. Eru götin vísvitandi búin til ? Heitir það ,, einbeittur b....... " ? Það er semsagt bara kanski algjör tímasóun að reyna að setja lög í landinu. 

Hvernig getum við vitað með vissu að eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum virki betur en önnur eftirlit í landinu ? Tók næstum 4 ár að finna lekann með þessu öfluga eftirliti ? Hvað hefði það tekið langan tíma með slöku eftirliti ? Hversu margir sinna eftirlitinu og hvernig fer það fram ?


mbl.is Lög um gjaldeyrishöft hert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondið

Að byrja með nýjan stjórnmálaflokk og hafa svo ekki 50/50 kynjahlutfall í stjórn. Ekki byrjar það vel. Eitthvað hefði heyrst ef þetta hefðu allt verið karlar. Og svo á að skikka fyrirtæki landsins ( með réttu eða röngu) að jafna hlut kynjanna í stjórnum. Gangi samtöðu vel með að fylgja því eftir, komist þau í næstu ríkisstjórn eins og útlit er fyrir samkvæmt skoðanakönnunum, muni ég það rétt.
mbl.is Konur í stjórn Samstöðu í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,ýmsir aðilar"

Hverjir eru þeir ? Eru þetta Íslendingar sem eru að að gefa út þessi bréf og þar með að halda áfram að skemma landið okkar. Eins og það sé ekki nógu laskað fyrir. Og erlendu aðilarnir...eru það alvöru erlendir aðilar eða plat ? Sem eru þá Íslendingar með fansý útlensk nöfn á ,fyrirtækjum" í útlöndum ?

Þetta langar mig til að vita.


mbl.is Reynt að setja undir leka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Bloggfærslur 13. mars 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband