Launalaust frí

Á meðan kosningabaráttu stendur, bjóði hún sig fram ? Það langar mig að vita með alla frambjóðendur. Held að það fái amk ekki allir á hinum frjálsa vinnumarkaði að halda vinnu sinni og fullum launum og sinna henni ekki í jafnvel nokkra mánuði vegna anna við framboð. Eða er það kannski þannig í jafnræðinu okkar ? Eða eru það forréttindi fárra að sá háttur geti verið á , og þá sérstaklega opinberra starfsmanna og já, Alþingismanna um leið, þegar kosningaslagur stendur yfir. Eða er óþarfi að spá í svona atriði ?

En gangi henni vel, þetta er að sjálfsögðu ekki persónulegt.


mbl.is Engin áhrif á mögulegt framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bossapokar

Ég var svo óheppin að missa af þessu í dag, gaman að sjá þetta á netinu í staðinn. Var svo lánsöm í fyrra að mig minnir, að sjá knapa fjölmenna á hestum sínum niður Laugaveginn.

En til að fullkomna þetta enn frekar , kæru hestamenn, þá vantar bossapoka aftan á hrossin ykkar til að grípa það sem þaðan fellur. Þau spá ekki í stað né stund þegar þeim er mál, láta bara allt gossa, púmm !  

Það er nefnilega alls ekki næs eða tignarlegt að stíga í stykkin, eins og ég næstum því lenti í í dag ;(  frekar mikið oj....Hef séð þetta aftan á bossum hrossa í USA, svo það fæst þá amk þar. Vona að þið kippið þessu í liðinn fyrir næstu ferð ykkar um miðbæjinn , svona til að sýna tillitssemi  ;)


mbl.is Hneggjandi skemmtilegt gaman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landið allt veri með

Væri það ekki jákvætt fyrir okkur öll og hafa svo kerti og kósý í 60 mínútur á meðan :) ? Amk ef allt Höfuðborgarsvæðið væri með.

Kynningarmyndabanið um verkefnið er mjög flott og þar sem Sigur Rós á lagið með því, er enn meirii ástæða til að Ísland sé með sem þjóð en ekki bara Reykjavík. Sá það á ruv.is en finn ekki núna, ætlaði að setja link á það hér að ganni.


mbl.is Jarðarstund í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nammigrísir

Hvernig ætli standi á því að við borðum svona mikið nammi ? Og ís líka. Allan ársins hring, sama hvernig viðrar. Slæmur vani eða eitthvað við kuldann og myrkrið sem gerir að við sækjum svo í sætindi ?

Ég skil ekki verðlagningu baranna. Kílóið ca. 2500 og uppí tæp 3000, ég ætti að þekkja það.. ! Allavega, maður pakkar þessu sjálfur. Að vísu fær maður skaffaðan þunnan poka til að pakka í, en það er ekki sami kostnaður og við vandaðri litprentaðar umbúðir sem allt annað nammi er í. Samt er algengast að pakkað sælgæti í hillunum, líka smánammi eins og hlaup og fleira sem er á börunum í kringum 1500 per kíló. 7 daga vikunnar að vísu, enginn ,,afsláttur" á því á Laugardögum. Er mögulegt að búðirnar hafi verðið tvöfalt hærra 6 daga vikunnar til þess að þurfa ekki að fylla á barina og sinna þeim nema á Laugardögum ?


mbl.is Nammi selt hér í tonnavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig liði manni ?

Sjálfum ef hver sá hópur sem maður tilheyrði, væri svo hataður að það væri boðaður útifundur til þess að þrýsta á að koma hópnum manns í burtu og úr landi. Skrítin tilfinning að reyna að setja sig í þau spor. Prófaðu.
mbl.is Búist við átökum í Árósum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. mars 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband