Ósanngjarn dómur

Fyrri leigjendur staðfestu að engar lýs hefðu verið þarna, og þau fluttu út 1 degi áður en nýjir leigjendur fluttu inn.  Fram kemur að lýs hefðu allt eins getað verið með í húsgögnum.
mbl.is Leigði út íbúð með veggjalús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrælakjör

Hvað ætli myndi gerast, ef þessi fyrirtæki sem kvarta og kveina, myndu prófa að bjóða mannsæmandi laun ? Gæti þá verið að fólk myndi vilja vinna fyrir þá ? Hefur almennt verið skortur á umsóknum í störf sem borga góð laun ? Og svo eru líka atvinnurekendur sem eru bara slæmir.

Nú er frétt á dv.is og visir.is um það að íslenskur bóndi hafi verið með finnska konu í þrælahaldi. Samkvæmt henni hafi hún átt að vinna í 8 tíma en var látin vinna í 12 og að bóndinn ákveddi sjáfur hvort hún fengi frí. Og hún fór sem betur fer !!! Flott hjá henni.  Á að vorkenna þeim bónda í ferðaþjónustu ef hann fer nú á stjá og kvartar og kveinar undan því að erfitt sé að fá fólk í vinnu ?

Eftir að lesa þessa frétt um þrælahald ferðaþjónustubóndans, þá er ég hugsi yfir því hvert ferðaþjónusta okkar stefnir. Hver er akkurinn af því að ferðamönnum fjölgi ef það leiðir til láglaunastarfa og eftir atvikum, þrælahalds ?


mbl.is Fleiri útlendingar setjast hér að
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. júní 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband