Viðtal í tv við föðurinn

Er það sem ég vona að íslenskir fjölmiðlamenn drífi sig í, sem og viðtal við þá úti í DK sem stóðu að þessu máli, eftir því sem hægt er. Og líka að kanna í þaula og fá svör úti, hversvegna Dönum er ávallt dæmt forræði, eins og fram kemur.

Þetta er skelfilegt mál, sama hvernig maður horfir á það, og sama hvernig heildarmyndin kann að vera. Þar sem þetta mál hefur verið gert opinbert, þá dreg ég orð móðurinn ekki í efa, en hef séð efsaemdir og pælingar Í Netheimum um að það sé jú aðeins ein hlið málsins. Sem ég vona að verði varpað ljósi á og okkur birt hin hliðin og að móðirin veiti aðgang að þeim upplýsingum sem þarf til að kafa ofan í það frá A til Ö, í þeirri von að eitthvað gott skili sér til hennar og fleiri í sömu sporum.

Ef Danir eru ekki til í að svipta hulunni af eigin samfélgsmeinum, þá vonandi að RÚV eða Stöð2 sé til í að splæsa í það og að hafa hraðar hendur, svo hægt sé að áfrýja innan tveggja vikna. 

Danir reyndu að opna augu okkar fyrir stöðu bankanna fyrir hrun en fengu bágt fyrir. Nú er komið að okkur að opnu augu Dana fyrir þessari staðreynd sem bent er á ; að Dani fái ávallt forræðið þegar annað foreldrið er útlendingur. Slíkt hefði ég einnig haldið að íslensk yfirvöld ættu að spá í, sem og Norðurlandaráð, sem við höfum haft forræði yfir í nokkur ár með Halldór Ásgrímsson sem framkvæmdastjóra. Hvort búið sé að skipta eða standi til, man ég ekki ? En það er annað mál. 

 


mbl.is Föðurnum dæmt fullt forræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gróft einelti

Og samkennd er það sem kemur í huga minn hvað varðar Vigdísi Hauksdóttur. Ég hef skynjað það þannig að hún sé beitt einelti, það virðist vera alveg sama hvað hún segir, það er sett útá það.

Einelti er ljótt og það á að vera ólöglegt, nema það sé það nú þegar. Man það ekki.

Sama gildir um þá sem skrifa á netið, þeir hafa ekki rétt á að leggja aðra í einelti.

Vil taka fram að ég þekki Vigdísi ekki neitt. En það breytir ekki því að ég fordæmi þá framkomu sem hún hefur þurft að sæta. Og hún á hrós skilið fyrir að bjóða sig aftur fram ( já, ég veit, ég vil 100% endurnýjun , það er ósk mín), í stað þess að láta eineltið slá sig útaf laginu. Auðvitað veit ég ekki neitt um það hvernig henni líður í hjarta sínu. Við erum öll með grímu, hvort sem við áttum okkur á því eða viðurkennum. Öll vil ég fullyrða. Og Vigdís er það án efa engin undantekining. Það má vel vera að hún gráti oft við að lesa það sem um hana er skrifað og það væri vel skiljanlegt og mjög leitt. 

Vandinn liggur hjá þeim sem leggja aðra í einelti. Oft er það vegna öfundar í garð þess sem verður fyrir barðinu á því ógeðslega ofbeldi sem maður les of oft um, t.d. er um það fjallað í viðtölum á dv.is í dag.

Börn eru skömmuð fyrir að leggja í einelti og það með réttu og þyrfti að gera meira af.  En það eu nú ekki blessuð börnin sem eru barnanna verst í Netheimum. Það eru þeir sem lögum samkvæmt flokkast sem fullorðnir. Það fólk þyrfti hreinlega að rasskella og sápuþvo lyklaborð þeirra !!! Til þeirra vil ég segja; leitið ykkur hjálpar. Það segi ég með samúð í hjarta mínu gagnvart ykkur vegna grimmdar ykkar og mannvonsku í garð annarra og óska þess að þið náið að finna út með aðstoð, hvað hrjáir sálir ykkar. 

Vigdís á sína galla eins og allir aðrir. En um leið á hún sama rétt og við öll að henni sé sýnd kurteisi og að hún fái að njóta sín. Þegar fólki líður vel, vinnur það betur og nær að blómstra. Þetta hefur ekki neitt með pólitískar skoðanir eða flokka að gera. Ofbeldi í hvaða mynd sem er, er  aldrei í lagi. Aldrei !!! 


mbl.is Lýsti yfir framboði á fundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grillmarkaðurinn 5 stjörnur

Ég hef borðað víða og þykir gott að borða góðan mat. Og líka að búa hann til fyrir fjölskyldu mína og hafa matarboð. Nú langar mig að bæta við umfjöllun um veitingastaði á bloggið mitt, þegar ég fæ tækifæri til, amk á meðan ég er enn einungis að kommenta um fréttir. 

Í fyrra, árið sem Grillmarkaðurinn opnaði, fór ég þangað og naut yndislegrar sælkeraveislu. Maður lifandi hvað þetta er frábær staður og maturinn ómótstæðilega góður ! Allt var fullkomið. Allt saman. 

Húsakynnin eru ævintýri líkust og sér í lagi á neðri hæðinni eða kjallara réttar sagt. Var pínu stressuð að fá ekki borð uppi ( full setið við hvert borð og þurftum að bíða eftir borði á báðum hæðum)  og var pínu smeik að fara niður en vá ! Fullt af fólki og þetta var seint um kvöld. Stemmningin, birtan og allt starfsfólk var frábært í alla staði ;))));))

Pöntuðum 13 rétta máltíð. Ég er ekki að grínast, 13 réttir ! 5 forréttir, 3 aðalréttir og 5 eftirréttir. Ég man því miður ekki hvað þetta heitir á matseðlinum en ég vona að þetta sé þar enn, því mig langar að njóta þess sama aftur. Og mæta þá glorhungruð og fyrr en ég gerði. Sem betur fer áttuðum við okkur ekki á að þetta væru svo margir réttir, því þá hefðum við kannski pantað eitthvað annað. 

Það kom hver rétturinn af öðrum og þeir voru bornir fram á mismunandi diskum. Man að einn forréttanna var borinn fram á grjóti, eða steinhellu sem virtist koma beint úr náttúrunni. Einn forrétturinn var t.d. djúpsteiktur harðfiskur ! Magnað hugmyndaflug hjá matreiðslumönnunum.  Þjónarnir voru stórkostlegir. Þeir voru alltaf með rétta tímasetningu, alltaf innan seilingar ef maður hefði þurft á að halda, og pössuðu diskana með vökulum augum sínum úr hæfilegri fjarlægð. Svona gékk það fullkomlega smúð með alla 13 réttina og það var ekki bara einn þjónn sem sá um borðið , heldur nokkrir. Fullkomin samvinna hjá þeim og ekki neinn flýtir eða stress á þeim, þó það væri rosalega mikið að gera og kl. ca. 11 um kvöld þegar ég kom og rúmlega 2 þegar ég fór. Vorum ekki viss um að eldhúsið væri opið svo seint og pælingin var nú bara að kíkja og skoða í þeirri von að geta fengið okkur sæti og smá rautt og eitthvað nasl með frekar en ekki neitt. Og að detta svona alveg óvænt inní þennan fullkomna ævintýraheim , úr rigningu og smá roki, sem ég hafði ekki heyrt neitt um og vissi ekki alveg hvað væri í þessu nýja flotta rauða húsi á brunareitnum í Lækjargötunni, falið að hluta bakvið það hús sem liggur við götuna. Segi bara vá ! Og hönnuðir staðarins fá einnig 10 í einkunn / 5 stjörnur.

Þetta var í raun eins og sena úr ævintýramynd, þar sem fólki er kippt úr einum heimi í einhvern allt annan töfraheim. Í alvörunni. 

Ég segi bara enn og aftur, takk ;)) Minningin um Grillmarkaðinn er enn eins og ef mig hefði dreymt þetta.

Og fyrir alla sem elska góðan mat og kunna að meta góða þjónustu og fallegt umhverfi með tónlist sem var svo flott, hæfilega há og passaði svo vel við allt saman, þá er kvöldstund á Grillmarkaðnum svo sannanlega málið.  Ég man ekki hvað þetta kostaði, en við kíktum betur að ganni á matseðilinn eftir á, og sáum að ef forréttur, aðalréttur og eftirréttur hefði verið pantað allt sér, eins og algengast er, þá kostaði það pínu pons meira. Svo verðið var afar sanngjarnt og meira en hverrar krónu virði Smile


mbl.is Fólk myndar sig inni á klósetti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. september 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband