Hvar eru þeir ?

Hvað þýðir að vera í vörslu lögreglu ??? Eru þeir báðir þar saman ? Í klefa , á hóteli, heima hjá lögrelgumönnum ? Hvar eru þeir ? Í Reykjavík, Keflavík, Sandgerði ? 15 daga dómur.. tíminn líður hratt svo hvernig á að framfylgja dómnum og hvað verður um þá í framhaldinu ???

Ekki má setja þá í fangelsi, amk ekki þann sem talinn er vera 15 ára. 

Svo tek ég eftir að þeir eru ýmist kallaðir, karlmenn, unglingar, börn eða ungmenni , allt þetta í einni stuttri frétt um sömu einstaklingana.

Svo er nú annað sem ég vona að verði skoðað betur og vonandi stöðvað , að málum sem þessu fer mjög fjölgandi. Hversvegna ætli það sé ? Það geta ekki hverjir sem er komist yfir fölsuð skilríki, þau kosta háar fjárhæðir svo hvað er í gangi í raun og sanni ? 

 


mbl.is Reynt að finna fósturheimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband