9.10.2012 | 08:07
Brátt í brók
Meiri lætin og hraðinn alltaf á RÚV þegar það eru mannabreytingar !! Hvað er eiginlega að þar innanhúss ????? Ýmist er fólki hent þar út med det samme eins og ónýtum tuskum og tölvum, eða þá að fólkið sjálft flýr í ofboði og aðeins sést undir hælana á því. Þetta er ekki í lagi, engan veginn.
Vona að þetta verði skoðað og lagað, það á ekki að vera slík drama þó fólk skipti um vinnu, eins og fréttir af mannabreytingum á RÚV eru nær alltaf, amk undanfarin misseri. Nýlega var Magnús Hlynur látinn gossa með engum fyrirvara í nafni ,,hagræðingar" og svo sjást ný andlit á skjánum engu síður !! Hver er hagræðingin í því ?
Og hvað varð um Pál Baldvin í Kiljunni ??? Af hverju er ekki hægt að kveðja fólk með fyrirvara , virðingu og þakklæti ???? Halda þeir sem stjórna sjónvarpsþáttum að áhorfendur taki ekki eftir mannabreytingum ???
Hvað Sigrúnu varðar þá vona ég hennar vegna að það sé engin skítastæla innanhús mórals ástæða fyrir þessum hraða og að þetta sé þá virkilega persónuleg ástæða hjá henni. Það gætu verið veikindi eða eitthvað sem hefur gerst snöggt hjá henni eða hennar nánustu. Óska henni alls góðs.
Sigrún Stefánsdóttir hætt hjá RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.