Gott þefskyn

Og gott að dóp sé gert upptækt, hvort sem er ræktun eða það sem finnst af öðru við leit á flugvelli , skipum eða annarsstaðar.

En ég man ekki eftir að hafa séð margar fréttir um það að ábendigar í fíkniefnasíma hafi verið ástæðan. Nema kannski í stærri smyglmálum. 

Oftast renna þeir á lyktina eða finna eitthvað í tilviljankenndri leit, í smærri málum. amk. Ætli þetta sé útskýrt með góðu þefskyni til að hlífa þeim sem hringja þó þar gildi nafnleynd ? 

 

 


mbl.is Runnu á kannabislyktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef

Hún væri íslensk ?

Hefði hún þá verið nafngreind ? Væri þá opið fyrir komment um málið í netheimum ? Hefðu þá réttarhöldin verið opin ?

Ég efast um það.


mbl.is Tveggja ára fangelsi fyrir barnsdráp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefndir

? Er það ástæða þessa rugls á Alþingi í nótt sem leið ? Hvað með allt tal um þjóðarhag og eigin sannfæringu ?

,,Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, minnti á að hluti þingheims hefði fyrr í vetur reynt að koma í veg fyrir að þingmál fengi að koma á dagskrá með frávísunartillögu. „Ég bið þingmenn að tala varlega þegar þeir tjá sig um klækjabrögð eins þingflokks umfram annan.“

Hvernig er það annars...hér gilda lög um hvíldartíma vinnandi fólks og sér lög um atvinnubílstjóra sem heita vöukulögin muni ég það rétt. Ná þau ekki til Alþingismanna ? Eða fengu þau undaþágu frá þeim lögum ? Og svo er spurning hversu hæf eru þau til að keyra til vinnu sinnar að morgni ? Talað er um að þegar fólk hvílist ekki nóg, hafi það sömu áhrif á aksturslag og það að hafa drukkið áfengi. Dómar hafa fallið ökumönnum í óhag vegna þess að sýnt var fram á að ekki hafi verið sofið nógu lengi áður en sest var undir stýri.

Mega Alþingismenn ekki slökkva á gemsum sínum á nóttunni ??? Hvernig er búist við að þeir nái að halda sönsum ? Nema kannski að þetta sé ástæða þess hvað þau eru oft vond, ókurteis og óförskömmuð hvert við annað; örmagna af svefnleysi.


mbl.is Fékk ekkert SMS-skeyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skamm Prófessor !

Ekki þykir mér fallegt að tala svona um fólk sem flosnað hefur uppúr námi eða hefur verið svo ólánsamt að alast upp við erfiðar heimilisaðstæður. Kannski er það þessvegna sem meira mál er gert úr því þó þau misstigi sig smávegis ?

Er það svona sem talað er við fólk í viðtölum hjá fagfólki ? ,, þú ert bara lúser", er það sagt beint í andlitið á fólki sem þarfnast aðstoðar ? Eða er bara þannig um það fólk talað þegar það heyrir ekki til; sett í skýrslurnar ? Ég hef aldrei skilið það af hverju fólk er kallað lúser. Engin samúð sem fygir því, heldur eins og hvert annað fantaskot á fólk.

WHO skilgreinir heilbrigði sem líkamlegt, andlegt og félagslegt. Væri þá, samkvæmt þessu eðlilegt að kalla fólk sem glímir við ýmsan líkamlegan og andlegan vanda fyrir ,, heilbrigðis lúsera " ? Þætti það við hæfi ??? Mér þykir merkilega lítið gert með mikilvægi félagslegs heilbrigðis og þessi lýsing Prófessors ekki líkleg til þess að efla þann þátt í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Falla hvítfliibbarnir líka undir það að vera ,,félagslegir lúserar", því ekki nenna þeir að fylgja öllum reglum eða siðferði mjög strangt. Gékk þeim eitthvað endilega glimrandi vel í skóla og bjuggu við svaka happý heimilslíf í æsku ? Eða skiptir klæðaburðinn máli svo þeir sleppi undan stimpli Prófessorsins ?

 


mbl.is Slóð afbrota „félagslegra lúsera“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varasamt lánatilboð

Íslandsbanki er núbúinn að bjóða fasta 4,10% vexti á ný húsnæðislán með vaxtaendurskoðunárkvæði, vá hvað þetta er langt orð. Jæja, það bjóða þeir án efa vegna þess að þeir telja sig sjálfa græða á því. Stórefast um að þeir telji væntanlega lántakendur græða á því, það er amk ekki venjan.

Ég vona að fólk falli ekki í freistni með að taka slík lán. Sama var í í boði fyrir hrun og það leit ekki vel út þegar þeir bankar sem þá höfðu veitt slík lán, ætluða að nýta sér ákvæðið í lánasamningum. Þá var fallið frá því en það er auðvitað ekki hægt að treysta á að það verði gert aftur.

Nú er verðbólgan á hraðri uppleið, og það veit Íslandsbanki. Allir spá þeir tveimur stýrivaxtahækkunum til viðbótar á þessu ári. Og á því græða þeir vegna verðtryggðu lánanna sem eru með öllu áhættulaus. Fyrir þá.

Hér er fréttin um tilboðið :

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2012/03/22/islandsbanki_laekkar_husnaedisvexti/


mbl.is Verðbólgan 6,4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttaauglýsingar

Menn þurfa varla að hittast lengur í Öskjuhlíðinni til að ákveða verðsamráð, er það nokkuð ?

 


mbl.is Atlantsolía hækkar um 4 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþekktarangar

Æji...af hverju þurfiði að láta svona ? Fullorðið fólk !! Hvernig á álit almennings að aukast þegar hver fréttin af annari í þessa veruna birtist þjóðinni ? Hvernig á virðing að aukast gagnvart Þingheimi þegar það er svo augljóst að þið berið ekki virðingu hvort fyrir öðru ?

Svo þykir mér skrítið að biðja um atkvæðagreiðslu kl. hálf eitt að nóttu og ætlast til þess að fólk sé vakandi og bregðist við sms þegar flestir eru sofandi. Að hafa líkt Þingmönnum við slökkvilið í hruninu 2008 var bara samlíking, og óþarfi að taka það bókstaflega.

Af hverju var svona brátt í brók með að fá atkvæðagreiðslu á svo ókristilegum tíma með mál sem hefur verið í vinnslu á einn hátt eða annan í áratugi ?

Stundum er talað um nauðsyn þess að hinn og þessi þurfi á endurmentun að halda. Mér sýnist full þörf á að fólk fái enduruppeldi, því miður. Hættið að sóa peningum þjóðarinnar með þessari óþekkt og stælum. Please.


mbl.is Þingmenn sakaðir um klækjabrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til fyrirmyndar

Þessir s.k. smákrimmar, þeir játa alltaf skýlaust. Mikið væri nú gott ef þeir stóru og sér í lagi hvótflibbarnir myndu nú taka þá smáu sér til fyrirmyndar.

Eða kannski að þeir smáu ættu að taka flibbana sér til fyrirmyndar og neita staðfastlega ? Svona víst við búum í jafnræðissamfélagi ... ;;)

Skrítið, en það virðist vera að þeir smáu séu yfirheyrðir án þess að hafa lögmann með sér. Og svo þykir mér vandræðalegt fyrir lögmenn að ná ekki að verjast sakfellingu á þeim smáu. Metnaðarlaust og varla þau meðmæli sem þeir stóru vilja sjá á afrekaskrá lögmanns. Ef ekki tekst að fá þann smáa sýknaðan, hvernig á þá að vera hægt að fá þann stóra sýknaðan ? En það tekst nánast alltaf. Skrítið.


mbl.is 10/11 ránið er upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagur þjóðarinnar

Af fiskveiðum okkar...hver er hann eiginlega ? Svona í raun og veru í alvöru peningum í sameiginlegan kassa okkar.

Alltaf hamrað á því að fiskurinn sé máttarstólpi okkar og svo virðist þetta allt sent úr landi. Sjómenn fá ekki of mikið í sinn hlut og í gegnum áratugina hafa laun fiskvinnslufólks lafað við hungurmörk, eins skrítið og það er. Merkilegt að fyrirtæki standi í rekstri ef það getur ekki borgað góð laun, þá er nú varla rekstrargrundvöllur fyrir því hvort sem er hefði ég haldið.

Er hlutur þjóðarinnar einungis klink í samanburði við hlut Samherja, hvort sem það er starfsemi þeirra  hér ´landi eða plat Samherja sem ,,erlendur aðili" hér og þar um heiminn. Af hverju þarf öll þessi dótturfélög hér og þar um heiminn ??

Ætli þetta sýndarbrölt með fiskinn okkar sé ástæða þess hvað blessuð krónan okkar er veikburða ?


mbl.is Talin hafa selt afurðir á undirverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hávær þögn Samherja

Að það skuli ekki enn vera komin yfirlýsing frá Samherja um að húsleitin sé óskiljanleg, engin lög hafi verið brotin. Eða að ,,annarlegar hvatir" hljóta að liggja að baki og fleiri kunnugleg stef.  Ekki neitt. Ekki bofs. Hvað veldur þögninni ?

Gott að Kastljósið okkar sé svona öflugt. Á sama tíma er leitt að fréttamenn þurfi til að eftirlitskerfi okkar, sem við borgum háar fjárhæðir fyrir, skuli drífa sig af stað. En hvernig komast fréttir um húsleitir alltaf svona fljótt í fjölmiðla ? Hver hringir ? Og hversvegna ?

Þetta skýrist vonandi betur í Kastljósinu í kvöld.


mbl.is Húsleitir standa enn yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband