6.4.2012 | 23:00
Afsláttarprósenta
Jákvætt og gott hjá Stætó ;))
En þar sem þetta er almenningsfélag þá verður að segja frá því hvað afslátturinn er mikill. Það má ekki og á ekki að falla undir ,,trúnaðarmál" ( ,,þér kemur það ekki við.."). Og á þetta við um staka miða eða árskort ?
Nú ætti Félag Eldri Borgara að gera samning um afslátt fyrir sitt fólk. Minnir að það hafi verið breytt frá 67 í 70 ára með afslátt sem eldri borgarar fengu alltaf.
![]() |
Starfsmenn fá strætókort |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2012 | 16:29
Mikið væri nú gott
Ef þessi hátið væru um allt land alla daga Það er komið svo mikið meira en nóg af pirring og hatri í samfélaginu. Sem hefur þó átt rétt á sér og verið skiljanlegur.
Það er svo miklu betra að elska Og alveg óhætt að prófa það fyrir þá sem þora ekki að sleppa pirring sínum útí allt og alla. Sorgartíminn frá hruni fer vonandi að líða undir lok og tilheyra fortíðinni.
![]() |
Allir elska alla á Ísafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.4.2012 | 15:27
Var bætt fyrir mistökin?
Eða var sorrý látið duga ? Það langar mig að vita.
Allir gera mistök og þau eru oftast leiðinleg en svona er lífið. En þau eru einnig misalvarleg og ég tel það vera góða viðskiptahætti að bæta fyrir þau með því að rukka þá ekki fyrir þjónustuna og bæta smá við um leið. Það er svona það minnsta sem hægt er að gera. Og svo að sjálfsögðu að biðjast afsökunar.
Hversu oft ætli mistök af þessu toga gerist ? Og væri eitthvað að því að segja hvaða útfararfyrirtæki átti í hlut ? Í fréttinni sem vísað er til sem gerðist í USA, koma fram bæði nöfnin.
![]() |
Líkunum var víxlað í kistulagningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
6.4.2012 | 15:10
Litla elskan mín
Er búin að vera nokkuð slow undanfarið. Og hún er ekki Apple og ég er ekki með Safari. Og Adobe er búið að vera nokkuð ágengt í að biðja mig um að uppfæra að undanförnu. Og alltaf hef ég sagt já. Verst hvað ég er glötuð í tölvum og tækni. Þarf að prófa að segja bara nei við Adobe og sjá hvort elskan mín hressist við það.
En til hvers er alltaf verið að setja þetta bévítas vírusa í Netheima ? Eru ekki næg vandamálin í Mannheimum ?
![]() |
Hálf milljón makka sýkt af vírus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2012 | 12:42
Sjálfboðaliðar
Þá vitum við það, allt frítt hjá þeim. Vonandi að það gildi þá fyrir alla.
Annars vona ég að það verði gerð úttekt á gjaldtöku endurskoðunarfyrirtækja, til að sjá hvort allir greiði sama verð, svona svo maður fari nú ekki að halda að eitthvað sé þar til sölu gegn gjaldi, greiðum, gjöfum eða risnu...
![]() |
Niðurstöður Deloitte ekki keyptar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.4.2012 | 17:00
Auglýsingatrikk
??? Var það málið allan tímann ? Að nota okkur þegar hann mátti vel vita að erfitt er að fá að kaupa land, til þess eins að ná til ráðamanna heima fyrir ?
En hinsvegar hefur þessi athygli sem að hann hefur fengið opnað ýmsa aðra möguleika fyrir fyrirtækið."
![]() |
Huang Nubo fjárfestir í Pu'er |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.4.2012 | 20:52
Vonarneisti
Um nýja framtíð, breytta framtíð. Ferskur andblær. Spennandi kosningabarátta framundan.
May the best man win !!!
![]() |
Á ekki að vera pólitískt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.4.2012 | 18:01
Fagnað með látum
Þannig er því líst á pressan.is og á dv.is og að fullt hafi verið í Hafnarborg af ánægðum stuðningsmönnum Þóru.
Merkilegt hvað þessu er líst mismunandi á milli miðla, samt af fjölmiðlafólki. En svona er nú fólk misjafnt, allir sjá ekki hlutina eins. Myndin með fréttinni hér virkar eins og það séu helst blaðamenn á staðnum. Og svo er það með þessi like sem eru svo fá á tveimur öðrum fréttum um málið... en rokka upp og niður...hvað er málið með þau ?
En gangi henni vel. Tel að sama hvað fólk muni kjósa, að þá þarf enginn að skammast sín fyrir hana sem andlit þjóðarinnar hér heima og erlendis, nái hún kjöri. Hún verður án minnsta vafa mjög jákvæð ímynd útí hinum stóra heimi af ýmsum ástæðum. Það er ég sannfærð um. Menn eiga eftir að hrista hausinn útí heimi yfir því hvað við höfum náð langt á ýmsum sviðum með jöfn tækifæri. Og svo verða um stund að minnsta kosti, tvær konur sem fara með tvö æðstu embættin. Man ekki að þannig sé það eða hafi verið í öðru landi. Svo Jóhanna, tórðu amk fram yfir Forsetakosningar !! Heimsfrétt bara það eitt, sé þetta rétt hjá mér. Og svo ef við sigrum Euro í vor og Harpan ready...vá þá fer þjóðin um leið á 2007 flug og uppúr kreppunni á svipstundu !!!
![]() |
Þörf fyrir nýjan tón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.4.2012 | 16:10
Villandi fyrirsögn
Og upphafsmálsgrein fréttar að auki. Það er látið eins og ef 122 þúsund eigi að nægja fyrir öllum kostnaði í 1 mánuð. Þora þau ekki að segja raunverulega lágmarks kostnaðartölu ?
Reyndar eru ekki nema ca. 6 ár eða svo að talað var um að það ætti að vera hægt að lifa á 100 þúsund á mánuði og ég man að sá eini sem þorði að útlista það hvernig það ætti að ganga upp, var Pétur Blöndal Alþinigsmaður. Hver sú upphæð væri í dag veit ég ekki. Það sem ég man sem ráð frá honum, til þess að fólk ætti að ná að lifa mánuðinn á 100 þúsund krónum, var að leigja saman nokkri einstaklingar og lifa á loðnu.
Enn hef ég aldrei séð loðnu til sölu í matvörbúðum og skil enn ekki hvernig honum datt í hug að mæla með henni á matardiskinn... ;)) En hann þorði þó að svara spurningunni sem aðrir þorðu ekki svo ég muni.
Svo er annað sem ég hef ekki skilið. Það virkar á mig eins og að þeir sem hafa lítið á milli handanna, eigi sjálfkrafa að vera snillingar í fjármálum og ná að lifa á nánast engu. Samt er því fólki ekki boðið að mæta td. í Silfrið til að tjá sig um þjóðmál líðandi stundar, svo ekki sé nú minnst á fjármál almennings og þjóðarbúsins. Þeim sem er boðið að tjá sig um stritið, um skuldastöðuna, um afleiðingar hrunsins, um það að fólk sé að missa heimili sín ofl., er sennilegast ekki í þeirri stöðu sjálft. Hvernig á það að vera sérfrótt um líf sem það lifir ekki sjálft ?
![]() |
Einstaklingur þarf 122.249 kr. á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
4.4.2012 | 14:44
O eða Ó
Svakalega getur ein blessuð komma skipt miklu máli, o eða ó.
Baggalútur á www.landsdomur.is og hefur verið með það lén síðan 2008 að mér sýnist og þar er vídeó af öpum í dýragarði. Og svo www.landsdómur.is sem er nýlega opnuð og af Hæstarétti. Með öllu alvarlega efni en sú fyrrnefnda. Hvernig ætli erlendum fréttamönnum með aðstoð Google translate muni ganga að komast inná síðuna með máli fyrrverandi Forsætisráðherra ? Eitthvað held ég það geti nú valdið misskilningi.. ;))
NIC-Auðkenni: | BE424-IS (Hlutverk) | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Nafn: | Baggalútur ehf. | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heimilisfang: | Pósthólf 404 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Borg/Sveitarfélag: | Reykjavík | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Póstnúmer: | 121 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Land: | IS | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Netfang: | bragi@baggalutur.is | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skráð: | 21. febrúar 2008 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Síðast breytt: | 22. mars 2012
|
![]() |
Heimasíða Landsdóms opnuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)