Ríkisfyrirtæki á 51% í hf, why ?

Og hver á svo hin 49% ??? Af hverju er þá talað um að þetta verði einkaframkvæmd ? Er þá meint að gróðinn ef einhver verður, renni óskipt til einkaaðila og tapið verði svo samkvæmt uppskriftinni settur á ríkið; á okkur ???

Hvaða leikur er þetta ? Af hverju gerir ríkið þetta ekki bara sjálft, eins og að blanda einkaaðilum inní með 49% hlut ? Og geta þeir þá ekki tekið lán sjálfir í einkabönkum á markaði ? Eða kannski eru það fleiri ríkisfyrirtæki sem eiga rest ? Hvað veit ég.

 


mbl.is Félagið sjálft trygging
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins !

,,Um er að ræða sjálfvirkan og læsilegan loforðakammtara sem stuðlar að markvissri loforðaframkvæmd eins og segir í tilkynningu frá Alþingi. Tækinu er ætlað að bæta framkvæmdaheldni loforðagjafa en þeim er oft ábatavant, sérstaklega hjá öldruðum reynsluboltum og öllum þeim sem hafa skert minni sem og þeim sem þykir óþarfi að sýna kjósendum virðingu og tryggja þeim gott líf. Tækið hefur einnig þann eiginleika að nef þeirra sem nota það, litast samstundis í lógólit flokks þeirra, sé reynt að taka það úr sambandi. Samhliða prótótýpusmíð tækisins er unnið að smíð lagafrumvarps sem skyldar alla Alþingismenn að bera tækið á sér 24/7. Hver sá sem með klækjum mun reyna að komast undan notkun þess mun sæta refsingu og verður gert að lifa á grunnlífeyri aldraðara til æviloka ásamt ökklabandi svo tryggt verði að ekki verði gerð tilraun til að redda sér aukapening".
mbl.is RemindMe bar sigur úr býtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skerðingar a la TR

,,
5.     gr.
        

    ,,Ráðherra hefur heimild, samkvæmt ósk þess sem nýtur heiðurslauna, til að ákveða að listamaður skuli sæta skerðingu samkvæmt aðferðum TR vegna annarra starfa og tekna en haldið sæti sínu á heiðurslaunalistanum uppá punt."

1.Apríl..:)

 


mbl.is Geti afsalað sér heiðurslaunum tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aprílgabb

Er ekki best að vona það bara. Svo mikil hækkun á svo stuttum tíma virkar ekki trúverðug amk.

Eða hvort þetta sé bakdyraleið til þess að losna við flugvöllinn úr Reykjavík með því að slátra innanlandsfluginu með verðhækkunum.

Hagstofan er nýbúin að tilkynna að kaupmáttur sé sá sami nú og árið 2004. Ætli innanlandsflugfélög hafi þá reynslu að flug sé jafn mikið notað nú og þá ?


mbl.is Flugsamgöngur ekki fyrir alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launalaust frí

Á meðan kosningabaráttu stendur, bjóði hún sig fram ? Það langar mig að vita með alla frambjóðendur. Held að það fái amk ekki allir á hinum frjálsa vinnumarkaði að halda vinnu sinni og fullum launum og sinna henni ekki í jafnvel nokkra mánuði vegna anna við framboð. Eða er það kannski þannig í jafnræðinu okkar ? Eða eru það forréttindi fárra að sá háttur geti verið á , og þá sérstaklega opinberra starfsmanna og já, Alþingismanna um leið, þegar kosningaslagur stendur yfir. Eða er óþarfi að spá í svona atriði ?

En gangi henni vel, þetta er að sjálfsögðu ekki persónulegt.


mbl.is Engin áhrif á mögulegt framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bossapokar

Ég var svo óheppin að missa af þessu í dag, gaman að sjá þetta á netinu í staðinn. Var svo lánsöm í fyrra að mig minnir, að sjá knapa fjölmenna á hestum sínum niður Laugaveginn.

En til að fullkomna þetta enn frekar , kæru hestamenn, þá vantar bossapoka aftan á hrossin ykkar til að grípa það sem þaðan fellur. Þau spá ekki í stað né stund þegar þeim er mál, láta bara allt gossa, púmm !  

Það er nefnilega alls ekki næs eða tignarlegt að stíga í stykkin, eins og ég næstum því lenti í í dag ;(  frekar mikið oj....Hef séð þetta aftan á bossum hrossa í USA, svo það fæst þá amk þar. Vona að þið kippið þessu í liðinn fyrir næstu ferð ykkar um miðbæjinn , svona til að sýna tillitssemi  ;)


mbl.is Hneggjandi skemmtilegt gaman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landið allt veri með

Væri það ekki jákvætt fyrir okkur öll og hafa svo kerti og kósý í 60 mínútur á meðan :) ? Amk ef allt Höfuðborgarsvæðið væri með.

Kynningarmyndabanið um verkefnið er mjög flott og þar sem Sigur Rós á lagið með því, er enn meirii ástæða til að Ísland sé með sem þjóð en ekki bara Reykjavík. Sá það á ruv.is en finn ekki núna, ætlaði að setja link á það hér að ganni.


mbl.is Jarðarstund í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nammigrísir

Hvernig ætli standi á því að við borðum svona mikið nammi ? Og ís líka. Allan ársins hring, sama hvernig viðrar. Slæmur vani eða eitthvað við kuldann og myrkrið sem gerir að við sækjum svo í sætindi ?

Ég skil ekki verðlagningu baranna. Kílóið ca. 2500 og uppí tæp 3000, ég ætti að þekkja það.. ! Allavega, maður pakkar þessu sjálfur. Að vísu fær maður skaffaðan þunnan poka til að pakka í, en það er ekki sami kostnaður og við vandaðri litprentaðar umbúðir sem allt annað nammi er í. Samt er algengast að pakkað sælgæti í hillunum, líka smánammi eins og hlaup og fleira sem er á börunum í kringum 1500 per kíló. 7 daga vikunnar að vísu, enginn ,,afsláttur" á því á Laugardögum. Er mögulegt að búðirnar hafi verðið tvöfalt hærra 6 daga vikunnar til þess að þurfa ekki að fylla á barina og sinna þeim nema á Laugardögum ?


mbl.is Nammi selt hér í tonnavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig liði manni ?

Sjálfum ef hver sá hópur sem maður tilheyrði, væri svo hataður að það væri boðaður útifundur til þess að þrýsta á að koma hópnum manns í burtu og úr landi. Skrítin tilfinning að reyna að setja sig í þau spor. Prófaðu.
mbl.is Búist við átökum í Árósum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farsæl málalok

Gott að þær fengu tölvurnar sínar og það væri óskandi að hann verði öðrum til fyrirmyndar, sér í lagi þeim sem flestir telja ábyrga fyrir hruninu 2008, takk ;)  Hvort hann fái þyngri dóm en þeir síðarnefndu...líklegast. En víst hann gaf sig fram og skilaði því sem hann sagðist hafa tekið, vona ég að þetta verði bara látið niður falla. Góss sem er falið í skattaskjólum fer svo vonandi að skila sér heim á ný og til eigenda sinna, almennings í formi miskabóta amk.
mbl.is Óskar þjófunum alls hins besta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband