Hver mun þora

Að sækja um starf forstjóra FME eftir þessa löngu rannsókn á einum manni sem virðist allt hafa gert rétt nema að hafavsagt frá  frá 2 aflandsfélögum ?( með réttu eða röngu).

Hvað kostaði það mikið að kanna Gunnar ? Mun sá maður þola ámóta skoðun á feril sinn og koma út úr þeirri stækkunarglersskoðun með 10 í einkunn ? Hver er alveg flekklaus ? Það má alveg bóka að sá sem verður ráðinn verður án efa rannsakaður alveg jafn vel ef ekki meira.

Hversu algengt ætli það sé að hinu ýmsu stofnanir séu að kaupa lögfræðiálit út og suður um starsmenn sína ? Og hver ætli heildarupphæðin sé , t.d. síðustu 5 til 10 ár ?


mbl.is Ekki hægt að áminna Gunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn á Pillunni

Veit ekki hvort það séu merki um að ég sé að eldast eða ekki, en mér varð brugðið við að sjá frétt á RÚV nú rétt áðan. Þar sagði skólahjúkrunarfræðingur að börn niður í 11 ára stundi kynlíf og ég skildi það þannig að til standi að hjúkrunarfræðingar muni geta ávísað stúlkum Pillunni ÁN samráðs við foreldra.

Eitt er víst að ef ég ætti svo unga dóttur, þá væri ég ekki sátt við að þetta væri gert án vitneskju minnar. Ætli fólki þyki þetta almennt í lagi ? Eða skyldi ég þetta ekki rétt ?  Ég vona það.

http://ruv.is/frett/thurfa-ekki-ad-segja-fra-pillunni


Máttur þagnarinnar

Er þá samkvæmt saksóknara, orsök hrunsins, já ásamt viljaleysi eins og sjá má í annarri frétt um málið á mbl.is í dag.

Sé þetta rétt, sem ég hef enga hugmynd um....hversvegna var þögnin þá svona svakalega hávær ?

Var algjör skortur á trausti á milli æðstu ráðamanna okkar ? Og því hvað það er alltof algengt að menn keppast við að blaðara öllu sem þeim er trúað fyrir og og beina leið í fjölmiðla og nú er það í tísku til viðbótar að hlaupa sem hraðast að lyklaborðum og Tísta eða spreyja veggjakroti með trúnaðarupplýsinum á FB veggi sína...

Hvernig er þetta í dag ? Hávær þögn um mikilvæg mál ? Rétt vona að æðstu ráðamenn þjóðarinnar tali saman um hag okkar og yfirvofandi hættur. Það á ekki að þurfa að setja svo sjálfsagðan hlut í lög sem skikkar þá til þess.  En ef þess þarf, þá þarf að drífa í því.


mbl.is Ekkert rætt um vandamál bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljaskortur

Er þá orsök hrunsins, samkæmt saksóknara...? Meðal þess sem segir í fréttinni er:

 ,,Ýmislegt hafi verið hægt að gera ef vilji var til þess."

Sé þetta rétt, af hverju skorti þá vilja til að forða hruninu ? Og hvern skorti vilja ? VAr vilji til þess að bankarnir féllu til þess hvað....að koma þeim í aðrar og ,,betri" hendur.. ? Skil ekki hvað saksóknari meinar.

Einnig er talað um að stjórnvöld hafi átt að sjá til þess að Glitnir hafi átt fyrir einhverjum greiðslum á gjalddaga....hvað með bankann sjálfan ?? Átti Glitnir ekki að sjá til þess sjálfur eða var búið að senda of mikið tol Tortula og þá á að hlaupa til ,,Mömmu" ???

Til hvers erum við með einkarekna banka ef þeir þurfa svo að hanaga endalaust í pilsfaldi skattgreiðenda en rífa svo bara kjaft þess á milli, vilja eiga hagnaðinn en dömpa vanadnum á okkur !


mbl.is Saksóknari: Geir gerði ekki nóg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eintóm hamingja $$$

Hér er enn ein fréttin um mansal og okkur er oft sagt frá því að það sé mjög vaxandi vandamál um allan heim. Sem ber að taka alvarlega . Enn er fullt af fólki sem telur að flestir sem selji líkama sinn geri það af fúsum og frjálsum vilja og þykir það hreint frábært.  Segja að það sé ekki hægt og eigi ekki að banna elstu atvinugrein heims, leyfa bara fólki að gera það sem það vill. Það þýði ekki að banna það með lögum. Og heldur að það fólk myndi bara ekki vilja afla sér tekna með nokkrum öðrum hætti. Því trúi ég ekki.
mbl.is Neyddar í kynlífsþrælkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgaraleg skylda

Er að til hjá ráðamönnum okkar ? Hjá bankamönnum ? FME ? Seðlabankanum ?

Hér er dæmt í máli á þeim forsendum að skólinn hafi brugðist borgarlegum skyldum sínum þegar vá stóð fyrir dyrum með skelfilegum afleiðingum, sem sagt er að skólinn hefði áttvara við.

Mikið væri nú margt betra hér ef þetta væri sama hér vegna hrunsins, þó svo það skorti líklegast lagalegur skyldur ( og líklegast líka í þessu máli í fréttinni , þar sem dæmt er eftir borgarlegri skyldu stjórnenda skólans) að hafa brugðist við og forðað almenningi frá fjárhaglegu tjóni eins og sumir virðast hafa gert sem vissu, en bara fyrir sig og sína. Skaðabætur dæmdar 4 milljónir $ fyrir hvorn nemanda um sig, af þeim tveimur sem höfðað var mál vegna.

Mun almenningur á Íslandi geta höfðað hópmál og farið fram á skaðabætur vegna fjárhagslegs tjóns og miska vegna hrunsins  ?????


mbl.is Virginia Tech háskólinn dæmdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaust þras

Og ákvarðanótti kostar þjóðina án efa hundruði milljóna á hverju ári, bara í launakostnað þeirra sem fjalla um þess mál í þjónustu okkar. Fyrir utan annan kostnað svo er gígantískur og ,,afleiddur kostnaður".  

Þetta með LSH, byggja eða ekki, við Hringbraut eða annarsstaðar. Sama endalausa þrasið með flugvöllinn í Reyjavík hvort hann skuli fara eða vera. Það er ekki hægt að leyfa sér að fara svona með almannafé. Umræðan og allar skýrslur og annað kringum þrasið endar á að vera sama upphæð og nýr LSH kostar. Er verið a ðleika sér með þessu þrasi til að redda vinum störf við skýrslugerðir ofl sem kostað er til ????? Hef oft hugsað það sem mögulega ástæðu.

Þegar svona mikil og dýr og stór þrætumál ætla að vera í tuðstuði næstu áratugina, augljóslega, og snertir alla Íslendinga, svo sannanlega eins og með LSH og flugvöllinn, þá verður bara að setja þetta í Þjóðaratkvæði og standa óhaggað við þá niðurstöðu hver sem hún yrði.

Man að fyrir nokkrum árum siðan var fjallað um húsnæði fyrir Náttúrminjasafnið að mig minnir, gott ef það var ekki eða er við Hlemm ? Þá kom fram að tuðið væri búið að standa í 40 ár !!! Og búið að gera heilt tonn af skýrlsum og baa nefna það....bara ekki eyða krónu í LAUSNIR !! Nei, það má ekki, enda tapa þá þeir sem hafa laun við að búa til skýrslur, prenta, ögfræðilálit út og suður og endalaust bull. Man ekki hvar það mál er statt núna, það má vel vera að þeir séu loks komnir í hús, hætti að nenna að fylgjast með því. 

Þetta er orðið meira en fínt af tuði um þessi tvö ris stóru mál. Takk ;)


mbl.is Brýnt að nýr spítali tefjist ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt...

Hver trúir því að minnihlutinn á Nesinu væri á þessari skoðun ef hann væri í meirihluta ? Auðvelt fyrir minnihluta hverju sinni að segja það sem fólk vill heyra en svo um leið og það svissast.....no more.

Sorglegt að farið sé svona með þennan mann og hrokinn hjá meirihlutanum að geta ekki bakkað , beðist afsökunar og leyft manninum að vinna áfram störf sín. Ekki einu sinni hægt að fara eftir því sem ráðuneytið úrskurðar. Svei, svei !

Það vill enginn láta koma svona fram við sig. Það er öruggt.

Ekki heldur þau sem hafa bolað manninum í burtu og valdið honum vanlíðan. Og að sjá hvernig þau leyfa sér að hamast í einum manni og hans nánustu sem þetta bitnar á. Hann er manneskja með tilfinningar, ekki tölva sem á að skipta út; ekki vélmenni.


mbl.is Vildu virða úrskurðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég táraðist

Þegar ég sá þessa frétta á RÚV ;(

Þetta er skelfilegt og sorglegt að svo mörg börn hafi verið í rútunni og látið lífið. Megi allar góðar vættir vera með fjölskyldum þeirra og styðja þau í sorg sinni +


mbl.is Ekki grunur um hraðakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið Plís

Að þrátta, þrefa, karpa, bauna á, skjóta á hvert annað, gera lítið úr, hrauna yfir, móðga, særa, leggja í einelti, segjandi hvoru öðru að þegja, kallandi fólk fyrir villiketti.....vá hvað þetta er ófagleg framkoma sem er engum sæmandi, hvorki Alþingismönnum né öðrum ;( Ég er leið í hjarta mínu yfir þessu og það eru án efa margir fleiri.

Hvað veldur ? Greindarskortur ? Þið virðist öll vel af Guði gerð og gáfum gædd. Þessi framkoma er algjört stílbrot og móðgun við alla. Bæði þá sem kusu ykkur og hina líka og umheiminn allan sem ekki hefur rétt á að kjósa hér.

Alþingi nýtur aðeins 10% trausts samkvæmt nýjustu mælingum. Það er engum til góðs, ekki síst þeim sem kosnir hafa verið til að þjóna öllum almenningi, bæði þeim sem kusu hvert og eitt ykkar og líka þá sem það gerðu ekki.  Sama ætti við um foreldra sem myndu hegða sér eins fyrir framan fjölskyldur sína og vini, bæði " Face to Face" og á Facebook. Þau væru ekki vel liðin né virðing fyrir þeim borin og völd þeirra væru engin og allt í steik á heimilinu !

Tími samræðna, sátta og umbyrðarlyndis er tímabær. Þó fyrr hefði verið.

Það sama á við um þegar þið eruð í fjölmiðlum eða FB.  Það þarf að huga að þjóðarhag til framtíðar og koma þjóðinni áfram og byggja upp! Það á ekki stöðugt að skipta máli í hvaða flokk fólk er, eða hvort það tilheyri minnihluta eða meirihluta. Þið eruð þarna 63 í vinnu hjá okkur öllum,hvað sem fólki kann að finnast um það. Það á ekki stöðugt að skipta máli hver kemur með lausnirnar, það er hrokafullt að hlusta ekki á góðar lausnir, sem er án efa stór ástæða þess að hér hrundi allt algjörlega 2008 !! Og svo hefur það margoft heyrst að þið spjallið síðan saman á kaffistofum og víðar í mesta bróðerni, eftir að hafa nánast froðufelt í ræðustól eða í Kastljósinu í nöldri og fúkyrðum á hvort annað ! Hvort er feikframkoma ? Í ræðustól eða í kaffispjalli þar sem slökkt er á myndavélum ??? Það langar mig til að vita.

Og upp með bindin á ný! Það lúkkar mun betur, þó reglum um klæðnað hafi verið breytt og slakað á þeim! Það er ekki neitt að því að hafa smá standard á dresscode á Alþingi. Meira að segja er búið að setja dresscode á skákmenn, eða öllu heldur konur. Það er staðreynd að klæðaburður hefur áhrif á hvernig fólk kemur fyrir. Það á líka við um Alþingismenn á Íslandi.

Prófið að sýna hvoru öðru virðingu, kurteisi og traust. Þá fer þjóðin að gera það sömuleiðis. Það er ég sannfærð um ;))


mbl.is „Sértrúarsöfnuður en ekki stjórnmálaflokkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband