Frekjuhundar

Er því miður það orð sem kemur uppí huga mér við að lesa þessa frétt. Það á við um þá sem ekki standa sig, sem er án minnsta vafa mínum mjög lítill minnihluti.

Það eru margir hræddir við hunda. Líka hundinn sem eigandinn elskar og dýrkar og þekkir af góðu einu, sama hversu krúttaður og sætur hann er. Það veit sá sem hundi mætir sem er ekki í bandi, ekki neitt um. Ekki heldur þó eigandinn sé rétt hjá.

Mín reynsla er því miður ekki góð þegar ég hef beðið hundaeigendur sem ég hef mætt á förnum vegi, um að vera svo góð og hafa þá í bandi. Flestir nánast rífa kjaft, stólpakjaft og fara um leið í mjög mikla vörn, sem ég reyndar skil nú ekki alveg. Ég hef t.d. heyrt : ,, þér kemur þetta ekki neitt við" og nánast öskrað á mig !! Annar sagði: ,, hundurinn minn gerir engum mein, hann þarf ekki að vera í bandi" . Þá spurði ég hvort honum þætti betra að ég hringdi og kvartaði. ,, já, endilega gerðu það, sama er mér" Svei, svei og allt er þetta fullorðið fólk. Nær væri að segja: ,, alveg rétt, ég biðst afsökunar" og setja svo tauminn á hundinn, sem fólk heldur hvort sem er á, það er nú það skrítna. Það er með taum með sér.

Þeir hundaeigendur sem eru ósáttir við þessi lög um hundahald sem kveður á um að hafa hundana ávalt í taumi vil ég segja: Berjist fyrir lagabreytingu um að hundar megi vera lausir, sé það ósk ykkar. Ég er mjög efins um að slík lagabreyting verði gerð og ég vona að svo verði ekki. Fram að því: Viljiði vera svo góð og sýna tillitssemi og horfa á þá staðreynd að fullt af fólki óttast hundinn ÞINN, þó þú elskir hann og vitir að hann er ljúfur og góður og geri engum mein.

Mér þykir ekki sanngjarnt að fólk sem er hrætt við hunda, komist ekki út að ganga af ótta við hunda sem ekki eru í taumi sem má reikna með að mæta hvar sem er. Það er vitað að hundar bíta. Og ekki bara blaðbera eða Póstinn. Líka sætu góðu hundarnir sem aldrei höfðu bitið áður og eiganda bregður að sjálfsögðu mjög við slíkt. Ég vona að allir hundaeigendur fari að settum lögum og noti ávallt taum á hunda sína ;)

Taki þeir til sín sem eiga ;) Og takk meirihltui hundaeigenda fyrir að hafa hunda ykkar ávallt í taumi og virða þau lög sem gilda um hundahald.


mbl.is Kvartanir vegna hundaskíts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu sniðugt

,,Gunnar segist ekki hafa átt von á svona góðum viðtökum, en Hópkaup var með samskonar tilboð í fyrra sem um 2600 keyptu. Hann segir að 2200 hafi síðan notað tilboðið."

Er það þá þannig að þeir sem ekki mæta en hafa greitt, fá ekki endurgreitt og borga þá í raun fyrir afslátt þeirra sem mæta í brunchið ? Eða fær þá fólk inneign hjá viðkomandi fyrirtæki hverju sinni ? Eða er þetta alveg tapað fé þegar fólk getur svo ekki mætt ? Ef svo, hversu sniðugt er þetta þá í raun þegar upp er staðið þegar fólk kaupir svona tilboð og getur síðan ekki nýtt sér það ? Hversu magir munu mæta af þeim rúmlega 12 þúsund manns sem keyptu brunchið að þessu sinni ? Hvernig er það staðfest ? Það mun taka einhverja mánuði að afgreiða þetta svo það er margt sem getur breyst hjá fólki sem keypti með það í huga að smella sér fljótlega í brunch.

 


mbl.is Tæp 4% þjóðarinnar ætla í brunch
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju ;)

Knús, Bangsamamma ))
mbl.is Hverjir eru bestir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekjudósir

Hver er sannleikurinn um okkur sem þjóð ? Manni bregður við að lesa þessa frétt. En hvernig er hægt að vita að þetta sé sannleikur ? Hvernig á maður að mæla þetta og sannreyna ? Ekki hef ég forsendur til að draga þessa rannsókn í efa svo ég verð að trúa þessu. Í bili amk.

Er allt byggt á lygi sem okkur hefur verið sagt ? Höfum við verið heilaþvegin um allt, ekki bara um stöðu bankanna fyrir hrun ? Og við teljum okkur vel upplýsta þjóð og vel menntaða. Það er hluti af sjálfsmynd okkar að ég tel. Er það líka röng sjálfsmynd?

Ætti ekki eina lygin að vera sú að jólasveinninn sé til ? Það er nú reyndar ekki fallegt að ljúga að börnum og evt ætti að hætta að telja börnum trú um að jólasveinninn sé í alvörunni til. Ekki teljum við börnum okkar trú um að aðrar hetjur séu til í alvörunni, hvort sem það er Supermann eða aðrar hetjur. En það er heldur ekki fallegt að ljúga að okkur sem fullorðnum.  Og til hvers er það gert ? Við plötum börnin með jólasveininum að hluta til svo þau séu extra þæg fram að jólum og fari snemma að hátta og sofa. Þá gefst foreldrum næði til að sinna því sem þarf og pakka inn jólagjöfum og fleiru til að gleðja börnin sín á Aðfangadag. Og það virkar nokkuð vel. Man enn hvað þetta virkaði vel á mig sem barn og ég trúði algjörlega á hann. Og sumir hræða börn sín með Grýlu og Leppalúða, eða gerðu amk í gamla daga.

Er sama ástæða sem liggur að baki lyginni að okkur sem fullorðnum, svo að við hlýðum ráðamönnum okkar ? Af hverju ættum við að hlýða fólki sem við kjósum til að vinna fyrir okkur og gæta hagsmuna okkar ? Ætti það ekki frekar að vera öfugt ? Erum við virkilega svona óþekk þjóð og algjörar neyslufrekjudósir sem þarf að hræða með Grýlu og Leppalúða og ,,múta" með jólasveininum , allt lífið ? Hvað þurfa ráðamennirnir að gera í friði á meðan við ,,sofum" ? Hvaða glaðningur bíður okkar að morgni ? Sem átti að koma okkur ánægjulega á óvart.

Sagt er að sannleikurinn sé sagna bestur, en vá hvað hann getur verið sár, áts ! Það er auðveldara , betra, skemmtilegra, jákvæðara og þægilegra að trúa áfram á jólasveininn sem er góður, gjafmildur og skemmtilegur og að Ísland sé best í heimi....;)))


mbl.is Íslendingar neyslufrekasta þjóðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífsbjörg

Takk fyrir hana, kæri vegfarandi. Ánægjulegt að lesa svona frétt ;)  Megi þeim sem bjargað var vegna vel og já ykkur báðum að sjálfsögðu.
mbl.is Nær drukknaður í ánni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borin von

Það skal sko ekki verða létt fyrir fólk að fá leiðréttingar þrátt fyrir Hæstaréttardóma, oh nei !!  

,,Þá er sett sem skilyrði fyrir samráði að fjármálafyrirtækin krefjist ekki málskostnaðar og skuli í dómsmálum sem höfðuð verði í kjölfarið leitast eftir málum þar sem skuldarar eru að mati umboðsmanns skuldara hvað best til þess fallnir að halda uppi vörnum." , segir m.a. í fréttinni.

Það sem vantar í fréttina er: ,, þau skulu sko ekki halda þetta lið, að þau fái eitthvað tilbaka frá okkur ! Þau skulu hafa fyrir því í mörg ár í viðbót að reyna, og þau munu tapa, það ætti að kenna þeim að abbast ekki uppá okkur og halda áfram að borga þegjandi og hljóðalaust það sem við viljum fá, hverja krónu!!  Liðið þarf að ná því í eitt skipti fyrir öll að þetta fé er einungis fáum útvöldum tileinkað, þeir þurfa sitt hér eftir sem hingað til. Það eru bara sumir haldnir óseðjandi græðgi og því þarf að sýna skilning ! Það hljóta allir að sjá að við höfum þar með ekki efni á að leiðrétta þetta og endurgreiða, NO WAY , þrátt fyrir dóm Hæstaréttar ! Og svo ef svo ólíklega vill til, eftir nokkur ár, að liðið sigri eitt og eitt dómsmál, SO WHAT...þá verðum við hvort sem er farnir með allt til Tortula, lok  lok og læs...svo þá þarf að höfða mál gegn framtíðar þrotabúum, he he he .. getið allt eins gefist upp strax !

Þetta lítur ekki vel út. Og margir sem vonuðust án efa til , og með réttu, að fá endurgreitt ;(( Það stendur augljóselga ekki til , heldur verður valið hver fær að fara með mál fyrir dóm...eða ?

Hvað varð um lögin um hópmálsókn ? Urðu þau aldrei að veruleika eða eru þau sofandi í nefndum ? Er það greipt í öll grjót á landinu að Davíð skuli aldrei ná að sigra Golíat, aldrei ?

Er sú barátta og þeir fáu sigrar sem almenningur nær, aldrei raunverulegur og sem gefur tilefni til að gleðjast og fagna með því að skála í kampavíni ? Er það algjörlega borin von að eitthvert réttlæti nái fram að ganga ? Hvernig endar þetta og hvenær ? Sorglegt að lesa þessa frétt ;(


mbl.is Segja úrskurðinn áfangasigur fyrir neytendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn skal voga sér

Að reyna að bjarga sér fjárhagslega í síhækkandi bensínverði framhjá þeim sem allt eiga í samfélaginu og tapa því á þessu. Og ekki heldur þeir sem vilja leggja sitt að mörkum að minnka mengun. Í þeim flokki sem græða á þessu eru án efa að auki við bensínsölurnar, tryggingafélögin. Þau fá þá fleiri trygigngataka og meiri iðgjöld $$$ Það ætti nú að vera þeirra hagur að berjast gegn því að þurfa að tryggja hjólin. Geri þau það ekki, þýðir það aðeins eitt; þeir græða á þessu þrátt fyrir kvart um tap.

,,Réttir aðilar" tapa á að fólk kaupi ekki bensín eða tryggingar og já bíla. Þeim sterkustu er ávallt vorkennt mest og fá mestu hjálpina, afskriftirnar og verndina, hér eftir sem hingað til. Alþingi hleypur til og kemur með frumvarp í hvelli, þó heimilin hafi hrópað eftir hjálp árum saman og hærra og hærra frá 2008. 

Allt skal gert til að halda fólki á einkabílnum. Strætó kemur þar inní sem frekar en að bæta og auka ferðatíðni á Rvk. svæðinu,  tekur uppá því að keyra alla leið á Höfn í Hornafirði !


mbl.is Herða reglur um nýju fararskjótana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óheppinn

Að vera ekki íslenskur hvítflibbi. Þá væri meint brot hans og hann sjálfur, photoshoppað í bak og fyrir, skreytt og fegrað. Reikna ég með.  Og þá væri hann ekki kallaður ræningi sem rændi. Það er nokkuð víst, held ég.

Þessi sem hér um ræðir var handtekinn og fluttur til landsins og verður settur beint í gæsluvarðhald. Hann fékk ekki að semja um að koma og sleppa við járnin, né beðinn um að koma í vinalegt kaffispjall og ræða málin, eins og þegar þarf að reyna að finna út hvað gerðist með þúsundir milljarða tjón á þjóðina í hruninu 2008 og tala við menn af þeim sökum.

Það er ekki búið að rannsaka málið og því ekki hægt að kalla hann ræningja né fullyrða að hann hafi rænt.

Eða er ok að kalla hann ræningja og segja að hann hafi rænt víst hann er hvorki  í toppstöðu né með mastergráður og ekki heldur Íslendingur ?

Það er ekki fjallað svo hastarlega um þá sem grunaðir eru um að hafa valdið hér algjöru hruni. Þetta eru klukkur sem endurheimtust og voru tryggðar hjá einkafyrirtæki að auki, muni ég það rétt. Tjón ríkissins er því mun minna en af völdum hrunsins. Aðeins aganarlítið brotabrot.

Með þessu er ég ekki að gera lítið úr alvarleika þess sem gerðist í úrabúðinni, alls ekki.


mbl.is Úraræningi til landsins í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækniöld

,,Þetta virðist hins vegar ekki hafa komist til skila til ráðherra."

Hvaða ráðherra ?

Datt honum aldrei í hug að senda honum bara email ? Eða sms eða símtal ? Eða bara með Póstinum ? Eða ganga úr skugga um það sjálfur á einhvern hátt, að ráðherra vissi hvað væri um að vera ? Eða þá amk að biðja ráðuneytisstjórana um að skila þessu til ráðherra.  Eða var það ráðherra sem datt aldrei í hug að biðja ráðuneytisstjórana um upplýsingar ?

Við lifum á 21.öldinni , tækniöldinni, og það er magnað að það sé svo erfitt að koma upplýsingum áleiðis.

Það viriðist vera að hver og einn hafi verið að vinna störf sín eins og í hverju öðru einyrkja ehf.


mbl.is „Hvað þarf marga ráðuneytisstjóra til?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegruð lýsing

Hversvegna er þetta photoshoppað svona ? Hér kemur fram sú lýsing frá HÍ að grunur leiki á að fjármámalstjórinn hafi ,, misfarið með fé í eigin þágu". Af hverju segir HÍ ekki bara eins og er, að grunur leiki á að fjármunum skólans hafi verið stolið ??? Og hefur hann verið ,,sendur í leyfi" , eða var hann rekinn á staðnum ?

Man þegar ungur maður var rekinn á staðnum úr matvörubúð fyrir að vera með eina blessaða Pepsi á kaffistofunni og átti eftir að skrifa hana hjá sér. Ekki gékk honum að útskýra málið og ekki var honum trúað. Sá var sakaður um þjófnað, ekki að hafa ,,misfarið með" eða dregið sér....

Af hverju eru notaðar svo mismunandi lýsingar á sömu hlutum í rauninni ?

Er óhugsandi að háskólamenntuð manneskja í góðri vinnu sé mögulega þjófur og steli og sé rekinn fyrir það á staðnum ???? Er það bara sauðasvartur pöpullinn sem slíkt gerir ?


mbl.is Fjármálastjóri HÍ grunaður um fjárdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband