Þjóðin öll

Þarf að fá að heyra þessa upptöku, ekki bara Þingmenn. Það erum jú við öll sem borgum þetta hrun með blóði, svita, tárum, reiði, sjálfsmorðum, hjónaskilnuðum, þrasi og ósætti, búsáhaldabyltingu, gjaldþrotum, landflótta ofl ofl.

Upptakan á fullt erindi til almennings að mínu mati vegna þess að þetta mál snertir okkur öll á einn eða annan hátt. Merkilegt að upptakan sé ekki löngu komin fram. Við þurfum að fá að leggja eigið mat á þessa upptöku og það er þá vonandi að hún útskýri þessa lánveitingu til fulls.

 


mbl.is Spyr hver sé óreiðumaðurinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameiningar Biskup

Ég vona að nýjum Biskup auðnist sú gæfa að efla kirkjuna okkar og verja fyrir árásum, sér í lagi þeim sem koma úr netheimum og með beittasta vopninu, tungunni, þólyklaborðið sé þar í milli.  Bæði prestar og sóknarbörn. Þeir sem sjá allt á hornum sér þegar mál kirkjunnar ber á góma, endilega leyfið henni að amk að vera í friði. Þeir sem vilja hafa hana áfram, standið með henni og verjið þegar á hana eða þjóna hennar er ráðist. Mér hefur oft sviðið við að lesa það sem skrifað er í netheimum og enn meira við að sjá að því er oftast leyft að viðgangast óáreitt með öllu. Líka kirkjunni og þjónum hennar. Þögnin hefur verið æpandi hávær að mér hefur þótt. Það þykir almennt svo púkó að standa með kirkjunni og viðurkenna trú sína á Guð. En það þykir mér ekki. Ég er kannski svona púkó að mati einhvers, en þá so be it. Guð hefur ekki gert mér neitt slæmt né kirkjan, heldur þvert á móti.

Óskandi að sátt muni ríkja um nýjan Biskup sem og þessa kosningu og að það þurfi ekki kærumál og fleira að koma upp í kjölfar þessa milliriðils. Persónulega skiptir mig engu máli hvort nýr Biskup er kona eða karl. ég treysti þeim öllum sem buðu sig fram til að standa vörð um kirkjuna okkar. Ég held að það vilji fáir, ef á reyndi, sjá það gerast að kirkjan okkar deyji. En það mun hún gera hægt og rólega að óbreyttu. Mörg trúarbrögð verja trú sína með kjafti og klóm og skammast sín ekki neitt fyrir það. Það tökum við sem hér búum vonandi okkur til fyrirmyndar. Það er eitthvað að þegar fólk viðurkennir fúslega t.d. að horfa á klám , en það viðurkennir ekki trú sína á Guð, þó það eigi hana innst inni. Vinsælast er í neyð, að fólk kalli á Guð, hvort sem það gerist í hugsun eða upphátt.

Einstein sagði: ,, Það eru ekki illmenni sem skemma heiminn, heldur þeir sem horfa aðgerðarlausir á". 


mbl.is Agnes og Sigurður með flest atkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forn Tax Heaven

Aumingjas sá gaur sem ætlaði sér að koma þessu undan skatti á sínum tíma...fyrst nú að finnast ! Eða kannski að þetta hafi verið ,, lán" sem hann fékk án nokkurra veða, hver veit ? Að hafa svo dröslað þessu alla leið til Bretlands að auki og svo ekki náð að eyða þessu og enginn annar heldur. Hann hefur kannski týnt PIN númeri þess tíma, fjársjóðskorti sínu ?

Vonandi að það taki ekki jafn langan tíma að finna allt það fé sem hvarf héðan í aðdragandi hrunsins, engum til gagns nema söfnun framtíðarinnar... ;)  Verst að þetta er allt rafrænt í dag, en það finnast kannski einhver PIN númer á pappír, hefði þó verið betra ef þetta væri allt enn í klinki, pínu erfiðara að koma því undan eins níðþungt og það er, í miklu magni allavega.  

Vona að ráðamenn um allan heim fari nú að átta sig á að það að koma háum fjármunum undan er ekki neitt nýtt, svo það er kominn tími á að þetta verði ekki hægt lengur. Allt rafrænt og rekjanlegt, svo mestmegnis allavegana. Ráðamenn til forna myndu án efa blóðöfunda þá nútíma tækni sem við höfum og ættum að nýta betur. Pínu meira mál að rekja slóð peninga til forna en það ætti að vera í dag. Spurning um vilja til að leysa þetta, sem kannksi skortir ?


mbl.is Fundu 30 þúsund rómverska peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpahyski

Erum við það í augum bankanna sem treysta okkur ekki en við eigum að treysta þeim ? Rak augun í þrusugóða grein Arnar Gunnlaugssonar, byggða á hans eigin reynslu, sjá hér :

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/vill-ad-bankastjori-abyrgist-innistaeduna-hvar-er-traustid-haettid-ad-medhondla-okkur-eins-og-glaepahyski

Stiklað á stóru, að þá hefur Örn verið í viðskiptum með fyrirtæki sitt í sama banka í mörg ár og nokkrar milljónir liggja þar að öllu jöfnu. Hann sótti um fyrirtækjakreditkort og þá fór bankinn fram á sjálfskuldarábyrgð á kortið. Óskaði þá Örn eftir að bankinn ábyrgðist skriflega innistæðu síns fyrirtækis en...því NEITAÐI bankinn !! Þykir Erni þetta til marks um að bankinn hafi ekki traust á sínum eigin bankarekstri og tek ég undir það sjónarmið.

Við eigum að treysta bankanum alveg blint, amk með innistæður umfram þessar frægu 20 þúsund Evrur hjá eintaklingum en sennilega ekki hjá lögaðilum..? En traustið þarf að sjálfsögðu að vera gagnkvæmt eins og Örn bendir réttilega á. Flott hjá þér Örn að þora að gera kröfur til bankans og ég vona að grein þín fái næga athygli til þess að umræða skapist um þetta í samfélaginu sem vissulega er þörf á. Vona að þú látir ekki undan kröfum bankans !!! Hættum að óttast bankana og förum fram á að okkur sé treyst. T.d. ætla Karen Millen og Hagar  í mál við bankana, sem ég vona að fleiri geri og þori.

Bankar eiga ekki að drottna yfir viðskiptavinum sínum með ógnarvaldi og í fullkomnu ójafnvægi fyrir flest okkar. Við höfðum fæst okkar tök á að nota bankana eins og eigin heimabanka, það voru aðeins forréttindi örfárra að manni sýnist.

Smá pæling....fer sami banki ávallt fram á sjálfskuldarábyrgð þegar fyrirtækjakreditkort eru gefin út ? Líka hjá ,, stóru köllunum" ????


Komið til að vera ?

Munu allir þeir sem lenda í svipuðum málum fá jafn mikið pláss í fjölmiðlum til að segja frá því sem gerðist og tjá líðan sína og þá með nafni og myndum í hvert sinn ? Eða verður látið skipta máli hver á í hlut hverju sinni í jafnræðissamfélaginu okkar ?

Vona að þessu máli ljúki með sátt allra sem hlut eiga að máli sem allra fyrst.


mbl.is Systir Guðrúnar svarar Bryndísi Schram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ave María íslenskt ?

Í fréttinni kemur m.a. fram :

,,Víkingur Heiðar Ólafsson kom fram á athöfninni, en hann var tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009. Víkingur Heiðar lék tvö íslensk lög fyrir verðlaunaafhendinguna, Sofðu, sofðu góði og Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns."

Þar sem þetta kemur fram hér, langar mig að athuga hvort einhver viti söguna með þetta fræga lag; Ave María. Google er meira á því að þetta sé eftir Bach  og textinn eftir Schubert....hver veit þetta ?

Langar svo að grípa tækifærið hér og nú og fræðast um þetta. Frekar kjánalegt að segja að Íslendingur hafi samið þetta ef það er svo ekki alveg rétt eða maður veit þetta ekki almennilega.

Óska annars ML til hamingju með verðalunin fyrir bók sína ;)


mbl.is Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. mars 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband