17.5.2012 | 15:58
Starfslokasamningar
![]() |
Bæjarstjórinn í Garði rekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 15:51
Hippadraumórar
Sem ganga því miður ekki upp. Heimurinn er því miður ekki eins góður og við óskum okkur að hann sé og því ábyrgðarlaust að vera algjörlega varnarlaus hér á okkar fallegu litlu eyju. Á sama tíma er verið að tala um nauðsyn þess að efla lögregluna. Þó hún muni fá auknar heimildir og þessvegna vopn ( sem ég vona að verði aldrei), þá munu þeir ekki hafa roð í nokkrar varnir ef öryggi okkar yrði ógnað og ef einhver myndi vilja koma hingað sem við ekki viljum fá. Þá mun ekki þýðar neitt að væla með hvolpaugu og sætu brosi og biðla til annarra NATÓ ríkja að hjálpa okkur. Annað væri kannski ef við hefðum aldrei gegnið í NATÓ en það var gert og því algjört óráð að skrá sig úr þeim klúbb.NATÓ þjóðir gegna einnig friðarhlutverki sín á milli, loforð um að ráðast ekki hver á aðra og því má ekki gleyma, þó margt slæmt gerist innan þess því miður.
![]() |
Vilja Ísland úr NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 15:41
Við sigrum í ár !
Okkar lag er langbest og við erum sú þjóð sem yrði án efa þakklátust fyrir að sigra. Harpan er tilbúin svo nú þarf ekki að stressa sig lengur með það að við getum ekki haldið keppni hér.
Ég amk vona svo innilega að við sigrum Þetta lag er vel heppnað í alla staði og mér þykir Greta Salóme vera afar góð landkynning. Hún er ung, samdi lag og texta, syngur og spilar á fiðlu ! Ekki létt að toppa það. bæði flott klædd og með þokkafulla framkomu. Með þessa hæfileika sigraði Ryback og ég vona að við fetum nú í fóstpor frænda okkar Norðmanna. Að auki þykir mér ekki neitt annað lag, af þeim sem ég hef heyrt, komast með hælana þar sem við höfum tærnar. Vona að tölfræðin með fatalit skemmi ekki fyrir okkur, en Páll Óskar hefur farið yfir það og svart sigrar síst, og hvítt oftast. En...Olsen bræður sigruðu í svörtu, svo við ættum að geta það sömuleiðis ;)))
![]() |
Íslandi spáð 6. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)