Krónískt tuð

Við erum að ég held nokkuð stolt af því að vera herlaus þjóð. En samt eru orustur háðar hér dagalega, hvort sem er í Net-eða Mannheimum og Alþingi í forystu !! Við erm með stórskotalið á Alþingi okkar, alveg þverpólitískt og þannig hefur það verið í alltof mörg ár, sennilegast áratugi. Hver er að biðja ykkur um að hegða ykkur svona ? Lítil börn hafa meira vit en þið sýnið, alltof mörg ykkar og sennilegast mikill meirihluti. Taki til sín sem vilja og eiga. Þau fáu sem standa sig: Takk ;))

Baunandi hvert á annað, hvað einhver gerði áður ( að JS hafi talað í 11 klt.) og á þá að halda því áfram ? Hverju skiptir það í dag ??? Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Eða tuð fyrir tuð, og röfl fyrir röfl. Grow up !!

Þetta rugl ástand er að kosta okkur dýrmætan tíma og fjármuni. Hættiði og sýnið hvoru öðru virðingu sem og þjóðinni allri, bæði þeim sem kaus ykkur og þeim sem ekki gerðu það. Þegar þið hættið þessum stórororustum ( í herlausa landinu sem ég efast oft um)  mun sá dagur koma að virðing og traust á Alþingi eykst. Vitiði til. Það er ekki nóg að tala um að hér skorti traust og að það þurfi að bæta og vinna upp. Það þarf að verða að veruleika. Það fer illa með alla að geta ekki treyst, bæði ykkur og þjóðina alla.  Það endar með því að ungt fólk með áhuga á stjórnmálum leggur ekki í að bjóða sig fram !! Leggur ekki í þá ljónagryfju sem stjórnmál virðast vera. Er það nauðsyn til að geta sinnt hagsmunum þjóðarinnar sem allra best á hverjum tíma, allir 63 ???

Vinnið veg þjóðarinnar sem hraðast og best, hættið þessu eyðileggjandi skothríðum og stælum eða hver er í meirihluta og hver er í minnihluta. Þið hafið ekki leyfi til að hegða ykkur svona í vinnunni á launum frá almenningi. Hegðiði ykkur með sama hætti heima hjá ykkur eða ausiði bara og gusið úr tuðskálunum yfir samstarsfólk ykkar og almenning ??? 

Þeir sem eru krónískir tuðarar : stofnið eigið fyrirtæki og gangi ykkur vel að finna fólk sem vill vera í vinnu hjá ykkur undir slíku tuði og þrasi sem dregur alla orku ,jákvæðni, samvinnu, kraft og vilja til framkvæmda med det samme.  Það væri þá ykkar persónulega tap og gjalþrot en ekki bruðl með almannafé og tíma sem þið getið ekki leyft ykkar og þið ættuð að hafa næga greind til að átta ykkur á því öll, þverpólitíkst. Takið ykkur góð samskipti í kringum ykkur til fyrirmyndar og í fáum tilfellum á Alþingi, eða farið á námskeið hjá Dale Carnegie og lærið það.  Í leiðinni hefðuð þið gott af að kynna ykkur hvað einelti er og vinna að því að vera skólum landsins góð fyrirmynd.  Please ;)


mbl.is Jóhanna skammaði Ragnheiði Elínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. maí 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband