26.8.2012 | 10:00
Bara hægt að brosa ;))
Svo ekki mikið meira sé nú sagt, svei mér þá ! Sé konuna í anda og samferðafólk hennar og þetta yrði frábært atriði í grínmynd sem ég vona að einhver eigi eftir að nýta í framtíðinni. Fáum hefði dottið í hug að skálda svona atriði upp, það held ég sé nokkuð öruggt, ekki einu sinni Mr. Been eða Jóni Gnarr eða Spaugstofunni. Vona að konan hafi húmor fyrir þessu og geti hlegið að þessu sjálf.
Gott að þetta endaði svona vel og skemmtilega og fólk á að vera þakklátt fyrir að konan er sprellifandi og vel haldin ! Í stað þess að tuða yfir kostnaði, sem er sá sami hvort sem fólk finnst lifandi eða slasað eða látið.
p.s. er loks mætt aftur að blogga eftir gott hlé og glöð að svo ánægjuleg og brosleg frétt dreif mig á lyklaborðið á ný ;)))
![]() |
Tók þátt í leitinni að sjálfri sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)