Hver passaði í hádeginu ?

Víst þær komust að mótmæla í hádegistímanum sem deilan snýst um...

En það sem mig þykir vanta með í fréttinni eru rök Borgarinnar fyrir því að undanskilja einungis menntaða leikskólakennara en ekki aðra starfsmenn leikskóla. Eru t.d. grunnskólakennarar á launum í hádeginu ?

 


mbl.is Leikskólakennarar láta í sér heyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.
Foreldrar komu og "pössuðu" í hádeginu. Grunnskólakennarar fá greitt fyrir að matast með börnunum, þess vegna eru skólaliðar látnir borða með þeim.
Svo pössum við ekki börn, við kennum þeim. :)

Kær kveðja.

Vala leikskólakennari (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 14:31

2 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Takk fyrir innlitið Vala,

Er verið að kenna í hádeginu ?

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 2.4.2012 kl. 14:40

3 identicon

Það fer fram mikil kennsla í hádeginu.
Börnin læra að telja með því að hjálpa til við að leggja á borð, læra borðsiði, læra að skammta sér sjálf, læra að beita hnífapörum, læra tillitsemi með því að bíða eftir að röðin komi að sér og aðstoða sessunautinn. Í matartímanum fer einnig fram mikil málörvun.
Matartíminn er áhrifamikil stund í kennslu ungra barna. :)

Vala (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 14:56

4 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Takk Vala..ertu sú sama og sú sem er skráð leikskólakennari ?

Fá semsagt grunnskólakennrara ekki að borða með nemendum og þá ekki greitt þar með ?

Er þá verið að færa þetta í sama horf, þar sem um kennarar er að ræða á báðum skólastigum ?

Þau læra allan daginn þessi skinn, það er víst. En það er líka spurning hvort þau ættu ekki bara að fá að slappa af og hvílast þessa stuttu stund í hádegishléi ?

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 2.4.2012 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband