Sigurstraumar til Bakú !

Tökum okkur nú til og sendum jákvæða sigurstrauma til okkar fólks ;))

Þau stóðu sig frábærlega, lagið er vel gert og flott í flutningi og hefur alla burði til að sigra. 

Við þurfum á því að halda sem þjóð að fá eitthvað fallegt, gott og jákvæð , eftir þá allra lengstu tuð-og nöldurlægð sem staðið hefur í næstum 4 ár, í sögu þjóðarinnar.  Komið fínt. Meira en fínt !

Leyfum okkur ávallt að vona það besta. Vonbrigðin verða ekki neitt minni. þó fólk hugsi neikvætt. En jákvæðir straumar, trúi ég amk, geta haft mjög mikið að segja. Secret aðferðin svínvirkar ! Trúum á okkar frábæra fólk og hugsum eins og sigurvegarar. Allir sem taka þátt í keppni , gera það í þeirri von að sigra. Líka þau. Við erum of feimin að öllu jöfnu að hugsa okkur sigur þegar við tökum þátt, sér í lagi í Eurovision. Breytum því, og látum ekki nægja kurteisislegt hjal um að mikilvægast sé að vera með. 

Harpan er tilbúin svo við höfum allt sem þarf. Sigur mun koma okkur áfram sem þjóð. Það er ég sannfærð um !!

Áfram Ísland og takk Greta Salóme fyrir að hafa samið svo vel heppnað lag og öll hin sem standið að þessu í ár. Takk og til hamingju og gangi ykkur rosalega vel á úrslitakvöldinu og hampið 1. sæti ;)

 

 


mbl.is Ísland komst áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

"Nokkur lönd þurfa ekki að keppa í undankeppninni, það eru Bretland, Frakkland, Ítalía, Þýskaland, Spánn"

Hvernig stendur á því ?

hilmar jónsson, 22.5.2012 kl. 21:42

2 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Veit ekki alveg Hilmar ?  Er nú ekki neitt Euro séní...en mig minnir að það sé vegna þess að þessar þjóðir greiða mest til keppninnar.

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 22.5.2012 kl. 22:09

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Ekki er það nú beint í anda ungmennafélagana í denn.

hilmar jónsson, 22.5.2012 kl. 22:25

4 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Ekki beint nei...;)

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 22.5.2012 kl. 22:33

5 identicon

Þessar fimm þjóðir eru undanþegin að keppa í undankeppninni vegna fjárframlaga þeirra til EBU.  Þau leggja langmest af mörkum. 

Við þetta má bæta að Harpan er sennilega of lítil til að hýsa keppnina ef svo ólukkulega vildi til að Ísland myndi vinna.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 22.5.2012 kl. 23:04

6 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Það yrði mikil gæfa fyrir þjóðina að fá sigur, sér í lagi í ár eftir allt sem á undan er gengið H.T. Bjarnason.

Harpan er fín og flott fyrir okkur, heimurinn veit að við erum lítil þjóð á lítilli eyju. Nú eða þá að einhver býðst til að halda keppni fyrir okkur ? Kemur í ljós, ,,tæknilegt" úrlausnarefni sem fundið verður útúr, þegar við sigrum ;))

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 22.5.2012 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband