Eyjafjallajökull

Íslendingum þótti gaman og vænt um að heimurinn allur rembdist mikið við að bera fram íslenskt nafn á jöklinum okkar sem spýtti smá úr sér. Talsvert var um það fjallað hér heima og grín gert að framburði argar fréttamanna í ýmsum löndum. Bolir voru búnir til og seldir og kannski enn til sölu. Heimurinn sýndi okkur þá kurteisi að gera sitt besta í að bera fram afar erfitt nafn á einum af jöklunum okkar.

Nú er nokkuð auðvelt fyrir okkur flest, að ég held, að segja William og Kate.

Hvernig væri ef fjölmiðlafólk HÆTTI að þýða nöfn á fólki, löndum og borgum, já og fleiri sérnöfnum þá á fjöllum , fossum og fleiru úr nátturínni ???

Þau voru einfaldlega ekki skýrð Vilhjálmur og Katrín,né skrifa þau nöfn sín á þennan hátt.

 Burstséð frá því þá er ég undrandi að Frakkar og nú Ítalir af öllum, þyki svona merkilegt að Kate skuli virkilega vera með brjóst, eins og ca. 3 milljarðir annarra kvenna eru með !  Á hinn bóginn þykir mér krúttað að sjá hvað þau virka in love Heart

 

 


mbl.is Vilhjálmur Bretaprins ævareiður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband