Þetta er gert á Spot

Í Kópavogi. Ég hef nú ekki farið þangað oft, en það hefur komið fyrir. Fínn staður og gaman þar, og yndislegt starfsfólk sem allt gerir sitt besta ;o Meira en óhætt að mæla með þessu stað Wink rosa fínt tónlistarfólk þar og stundum margar hljómsveitir sama kvöldið. Hljómar núna eins og ég sé fastagestur þar...en svo er nú samt ekki...alveg satt.

Það gerðist hinsvegar í vor sem leið, að leitað var í töskunni minni og allra annarra kvenna sem voru að fara inn á sama tíma og ég. Óheppin ég að vera með 1 hvítvínsflösku í töskunni, sem ég hafði fengið að gjöf þaðan sem ég var að koma og ætlunun var að fara heim, en svo ákveðið að kíja þangað..auðvitað átti ég að biðja þá að geyma hana..en var ekki alveg að spá í þetta þegar ég gékk inn...Annars er minn drykkur bjór, þegar ég kíki út, að öllu jöfnu, svo það stóð ekki til að drekka vínið hjá þeim. Það var tekið af mér og ég spurði þá hvort þeir hefði leyfi til að leita og þeir sögðu já. Og ég spurði þá, hvað ef ég samþykki það ekki...svarið var þá að þá myndu þeir vísa mér út !!! Mitt væri valið, samþykkja leit eða fara þaðan !! Þó ég hefði ekki verið með vínið, þá hefði ég engu síður spurt um þetta, vegna þess að ég einmitt dró í efa lögmæti þess, sem ég spurði um hvort væri heimilt og mér sagt já, eins og ég hef þegar nefnt. Nú er ljóst, m.v. skilning minn á þessari frétt, að þetta má ekki.

En hvað eiga staðirnir þá að gera til að fá sem mesta sölu á barnum...? Veit það ekki, en kannski bara að lækka verðin hjá sér ? 

Allvega, svo gleymdi ég að koma við í miðasölunni á heimleið og það tók óratíma að fá vínið mitt aftur. Hringdi strax daginn eftir og svo nokkur mail....loks fékk ég vínflösku, tók nokkra mánuði...ekki samt mína því ég vissi einfaldlega ekki hvaða tegund það var.  Svo ég var ánægð með það  Hearten ekki tímann sem það tók...


mbl.is Dyravörður óð í veski konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxtalaust á 4 árum...kommón!

Það vita það allir sem búa hér, að það er ekki hægt að fá það sama í dag, og var hægt árið 2008, fyrir þennan 100 þús. kall....og ef þetta var ok að taka við þessu, af hverju þá að skila þessu ?????  Er þetta viðurkenning á sekt í beinni ????? Sekt um þjófnað , sem má auðvitað ekki nota um þjófa í jakkafötum í fínum vel launuðum jobbum...hálfkæringsgáski á mér núna, svona örg yfir þessu máli og því um leið hvað fjölmiðlar og t.d. ríkisendurskoðun, fer fallegum mildum orðum um suma þjófa en aðra ekki...Smile

Og svo langar mig að vita, hvað gaf Sigurður þeim hjónum í brúðargjöf ??? Bara að spá hvort hann hafi notað eigin peninga í brúðargjöf til þeirra...þar sem þeir hljóta að hafa verið svo miklir félagar og alveg in the klæk hjá hvor öðrum...... og svo skil ég ekki, hversvegna þeim sem ekki neitt skortir og eru á fínum launum, fá svona rausnarlegar ,,gjafir" en ekki þeir sem sárlega þurfa þess, eins og t.d. þrælar Eirar á lægstu launum og skrimtarlaununum líka..why er þeim vorkennt mest, sem þurfa ekki á að halda...???? 


mbl.is Segir Sigurð hafa átt frumkvæði að gjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínir vextir..

Nú ætla báðir að skila 100 þúsund króna ,,gjafabréfi" til Eirar....Eir mun þá græða 100 þúsund á þessu ....spurning hvort Eir þurfi þá að borga skatta af mismun, eða ? Enginn banki býður svo háa vexti, en þeir vextir sem fást, eru fjármagnstekjur sem lögum samkvæmt ber að greiða skatt af.

Ætli þetta sé ástæða þess að menn vilja ólmir vera í hinum og þessum stjórnum, svo þeir geti makað eigin krók eftir hentisemi ? Eða var það venjan hjá Eir að ALLIR starfsmenn sem giftu sig, fengu einnig 100 þúsund króna gjafabréf ??? Ég vil nú ekki trúa að þeir sem hæst launin hafa, telja sig þurfa slíkar gjafir, án þess að sjá að þeir sem þræla fyrir sultarlaunum, þurfi þess ekki einnig og með réttu, þá enn hærri ,,gjafir" frá vinnustað sínum.. 

Annars sýnist mér þetta Eirar mál gefa fínt fordæmi um hvað gera skuli í öllum hnupl málum úr verslunum..spara opinbert fé og tíma og álag á dómstóla og fangelsi, og leyfa ÖLLUM sem upp kemst um, að skila bara og þá er allt búið..við búum jú í samfélagi þar sem lögin ná jafnt til allra, réttindi okkar og skyldur...örlætisgerningar, fínt sem málsvörn fyrir lögmenn landsins... og þjófar eiga jú allir sem einn að fá sömu meðerð og sömu hugtök um þá alla er réttast að nota, ekki satt ? Eða má bara kalla það fólk þjófa sem stela litlu ???? Því það þykir svo púkó..


mbl.is Ákvað að skila gjöfinni til Eirar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður sprenging í þessum aðgerðum !

Það má alveg bóka !!!

Varla hægt að biðja um betri auglýsingu sem mun klárlega auka tekjur lýtalækna svo um munar, það má alveg bóka...því miður vil ég segja, með fullri virðingu fyrir þeim konum sem hafa farið eða á leiðinni...

Betri ókeypis auglýsingu geta þeir ekki fengið og hljóta því að fagna þessari ,,frétt" Kissing


mbl.is Skapabarmaaðgerðum fjölgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Askotans öfund er þetta !

Endalaust og alltaf í frændum okkar Dönum...demmit ! Wink

Svo vil ég hvetja Lýsi til að merkja VEL á Leifsstöð að það er ekki hægt að taka Lýsi með sér til USA, amk ekki í tengiflug. Lenti í því sjálf, konan sem afgreiddi mig og setti Lýsið sem ég keypti í glæran poka, vissi mjög vel hvert ferð minni var heitið og að framhald yrði á flugi innan USA. Ég var ekki hress  að hafa verið seld rándýr vara ( mun dýrari en í Bónus og þetta er Fríhöfn..)  í góðri trú og svo var það hirt af mér á JFK. Ástæða þess að ég ákvað að kaupa þetta á Leifsstöð var sú að ég vildi ekki taka séns á að pakka þessu í farangur, því ef flöskurnar hefðu brotnað, stórefa ég um að lyktin hefði farið úr fötunum mínum í þvotti og líklegast þurft að henda öllu og töskunni líka.  Svo ég ákvað að kaupa þetta á leið úr landi og skottast með í handfarangri í staðinn, eins leiðinlegt og mér þykir það nú að vera með mikinn farangur inní vélina. 

Auðvitað veit ég að Lýsi stjórnar þessu ekki á flugvöllum úti í heimi, en þeir vita af þessu og ég hef hvatt þau  til að setja merkingar í búðina sem selur þetta, t.d. á standinn sinn, en hef ekki séð neitt slíkt. Þetta kostar þau ekki neitt eða sáralítið , að benda fólki á að kaupa ekki Lýsi á leið sinni til USA, ef tengiflug bíður þar, og að upplýsa starfsmenn þar um þetta, sem selja vöruna þeirra. Og hugsanlega fleiri áfangastaða ?  Mér þykir ég hafa verið rænd í rauninni...þannig leið mér.  En sem betur fer bættu þau mér þetta, því ég fór fram á það við þau en voru ekki tilbúin að senda Lýsið til USA, þangað sem það átti jú að fara...eitthvað með reglur , en þau selja vöruna þar líka að mér skylst, svo ég skyldi þetta ekki hjá þeim að senda þetta ekki innan USA..?


mbl.is Segir fréttaflutning óábyrgan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Örlætisgerning"

Jæja gott fólk, þið sem eigið það til að vera svöng og eigið svöng börn og takið stundum mat úr matvörubúðum eða borðið á veitingastöðum og gleymið að borga eða bara labbið út...þá má hér eftir líta á það sem ,,Örlætisgerning" og gefa ykkur kost á að skila eða borga , í stað þess að fá lögreglukæru um þjófnað og oft á endanum fangelsisdóm, ýmist skilyrtan eða beint á Hraunið !!!Það er vissulega örlæti að vilja gefa börnum sínum að borða og sjálfum sér um leið...rétt eins og það er örlæti að vera framkvæmdastjóri Eirar og vera örlátur á kostnað vinnustaðar síns og bjóða fólki í frí til Spánar..Kissing Slæmt að launin hafi verið svo léleg, eflaust á pari við það sem þeir sem púla þar við þrif og eldamennsku fá, að þau leyfi ekki að vera örlátur á sinn eigin kostnað ...reikna með að öllum öðrum starfsmönnum Eirar hafi verið leyft að vera eins örlátt við sitt fólk og láta Eir splæsa í Örlætisgerninga út og suður til Spánar...annað væri nú bara óréttlátt og til marks um skítamóral og mismunun á einum og sama vinnustaðnum...

Eða kannski að það þurfi að festa upp skilti á skrifstofum Eirar um að ALLUR ÞJÓFNAÐUR SÉ KÆRÐUR TIL LÖGREGLU, eins og víða má sjá í verslunum ???  Eða heitir þetta ekki annars þjófnaður , réttu nafni eða þarf að færa þetta í fínan búning vegna stöðunni  sem maðurinn sinnti..?

Við búum jú í jafnræðissamfélagi , ekki satt...þar sem lögin ná jafnt til allra...;o Heart


mbl.is Gefinn kostur á að endurgreiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Monica Lewinsky # 2 ?

Á nú að reyna þetta aftur og kenna henni um HANS framhjáld, eins og gert var með Monicu á sínum tíma og Clinton fékk uppreisn æru og hélt frúnni og er virtur um heim allan og fær háar upphæðir fyrir að halda fyrirlestra um víða veröld, á meðn hún greyjið fær hvergi vinnu ??? Ætli Clinton, sem án minnsta efa míns, þarf ekki á launum að halda, sendi henni peninga til að lifa sómasamlegu lífi á, þar sem henni hvefur verið gert ófært um að sjá fyrir sér, eins og ég hef skilið það ???

Tek fram að ég las ekki alla fréttina, fyrirsögnin nægði mér til að verða reið, arg !! Kissing


mbl.is Konan sem hershöfðinginn daðraði við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VILTU það ?

Ég fór á fundinn og þetta var mjög góður fundur í fullum sal í Háskólabíó og ekki sæti fyrir alla. Á leiðinni þangað, þá myndaðist umferðarteppa við Kjarvalsstaði !!! Merkilegt að fjölmiðlar hafi ekki myndað þetta og birt, því það er svo sannarlega frétt hvað margir mættu, áhugi á borgarafundum virðist klárlega vera að taka kipp á ný !!Er auglýendavaldinu um það að kenna ???? Eða slæmu frétta,,nefsskyni" ? Tæplega það síðara...í fundarlok , á leið út, dansaði svo himininn í allri sinni Norðurljósafegurð líkt og verndarenglar almennings væru þar á ferð. Ég vona að það boði gott Heart

Það var ótrúlegt að vera vitni að því þegar salurinn allur stóð upp og klappaði þegar Vilhjálmur Birgisson talaði nokkur orð. Hann var hreinlega hylltur eins og stórstjarna og ég sá að sumir pallorðsgesta roðnuðu við það og litu hálf einkennilega út, enda þau kannski ekki vön slíkum viðbrögðum sjálf og í stað þess að hafa tekið þátt í því og staðið upp líka og klappað, virtust þau sum hver hreinlega vera öfundsjúk. Slæmt að geta ekki samglaðst....

Í lok fundar, sem Egill Helgason stjórnaði skörulega eins og honum einum er lagið og af mikilli kurteisi, þá var löggð ályktun undir fundinn og Egill bað um handauppréttingar og spurði hvort ályktununin væri samþykkt. Ég sá ekki betur en að allar hendur væri á lofti...nema aðeins örfáar í pallborði. Það vakti furðu mína að Guðmundur Steingrímsson rétti ekki upp hönd og fleiri sem ég man ekki, og svo réttu Pétur Blöndal og Steingrímur Joð ekki heldur upp hendur, skiljanlega þar sem þeir báðir virðast vilja rýghalda í hana með tali um að allt fari hér á hliðina, verði hún afnumin; varðhundar verðtryggingar, eru menn stundum kallaðir sem vilja ekki sleppa henni...

Má þá ekki bara gera tilraun og prófa það og sjá hvað gerist með afnámi hennar ??? Ef allt færi á versta veg og hagur fólks yrði verri en hann er, þá má alltaf skella henni á aftur, ekki satt ???? Eitt af mörgum rökum gegn afnámi hennar, er sá áróður að þá hækki vextir á húsnæðislán uppúr öllu valdi...gott og vel, ef að líkur lætur gerist einmitt það. En það er klárlega betri kostur, vegna þess að ef vextir hér fara uppfyrir tveggja stafa tölu, þá yrðu án efa afar kröftug mótmæli við því, rétt eins og gerðist með stökkbreytt gengislánin eftir hrun, en fram kom í glæru frá Pétri Blöndal á fundinum að það fólk væri nú á grænni grein eftir leiðréttingar. Og um leið myndu vextir án verðtryggingar og verðbóta, veita það aðhald sem þarf, til að stjórnmálamenn , Seðlabankinn og atvinnulífið, þarf á að halda og hefur ekki staðið sig með það í áratugi og það er því þverpólitískur gamall vandi, allt eins margra alda gamall, hvað veit ég ? Og svo er óskiljanlegt að ríkið / við, séum frekar til í að niðurgreiða okurvexti bankanna og ÍLs á húsnæðislánum, verðtryggðum og bættum, með vaxtababótum. ...væri þá ekki allt eins ráð að taka upp matar-og bensínbætur og sjá hvort matvöruverslanir og bensínbúllur hækki þá ekki allt enn meira...víst ríkið/ við , niðurgreiðsum vhrot sem er okurálagninu, eins og gert er með okurálagninu vaxta af lánastofnunum...þægilegt, ekki satt ????

Það var boðið uppá spurningar til þeirra sem sátu í pallborði og ég spurði Steingrím Joð, hvort hann VILDI beita sér fyrir því, sem málamiðlun og sáttaleið á meðan karpað verður áfram um blessaða verðtrygginguna næstu árin eða áratugina...að boða til næturfundar í kvöld( 14.nóv)  og skella verðtryggingu á laun í landinu ???   Ekki að ég sé hlynnt henni, en á sokkabandsárum verðtrygginar sem nú er yfir 30 ára gömul neyðarleið sem farin var á sínum tíma( tímabundin redding, hefði ég talið..) , þá voru bæði laun og lán verðtryggð. Það tók bara eitt pennastrik að afnema hana af launin...magnað hvað það var fljótlegt og lítið mál !!! Hann svaraði mér ekki , þó hann evt elji sig hafa gert það, hann útskýrði eitt og annað sem ég man ekki, því ég var að hlusta eftir einföldu já eða nei við því hvort hann VILDI beita sér fyrir að skella verðtryggingu á launin...svo ég stóð upp aftur og endurtók spurningu mína og benti á það augljósa, þetta væri einföld já eða nei spurning. Hann sagði að hann gæti það ekki, gæti ekki lofað því. Að geta ekki er eitt og vel hægt að skilja svar hans, en það er samt ekki svar við því sem ég spurði, sem var jú: hvort hann VILDI beita sér...þegar stjórnmálamenn VILJA ekki gera eitthvað, þá er það alveg borin von að unnið sé að því sem fólk vill fá i gegn, borin von. Augljóst var að fólkið í salnum var alveg sammála mér, þvi það tók vel undir með lófataki og það heyrði og sá Steingrímur Joð mjög vel, að honum ólöstuðum í þessu stappi sem stjórnmál eru í áratugi í hans tilfelli. Þó ég sé ekki alltaf sammála honum, þá get ég ekki annað en dáðst að kraftinum sem hann hefur og ótrúlega góðu minni, hann stendur aldrei á gati...nema evt í gær, þegar hann gat ekki svarað mér með hvort hann VILDI beita sér í að laun yrðu vertryggð strax og svo seinna þegar ,,réttur tími" kemur til að afnema hana, verði það gert á sama tíma af lánum og launum

Ég þakka HH fyrir að boða til þessa fundar og ég vil hvetja alla sem eru með vertryggð lán og eru sammála fullum sal af fólki í gær um að vilja hana burt, að styrkja þau samtök rausnarlega !! Vinkona mín sem fór með mér á fundinn, kom með frábæra tillögu til HH...að hafa næsta fund ykkar í Egilshöll, ekki veitir af !!! Slíkur er áhugi fólks, fleiri og fleiri, að vilja fá hana burt, áður en hún nær að drekkja öllum nema örfáum sem eiga skuldlaus heimili, en ljóst er að það er aðeins lítill minnihluti þjóðarinnar. Sættum okkur ekki við að vera læst niðri eins og almenningur á Titanic og horfa á örfáa sem eru svo lánsamir að eiga nóg og margir marfalt meira en það, sitja eina í björgunarbátunum á meðan stór meirihluti drukknar í vonlausum vertryggðum húsnæðislánum!!! Stöndum saman, stöndum með okkur sjálfum og hættum ekki fyrr en vaxtakjör verða eins og í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við !!!

Takk fyrir lesturinn, úff hvað þetta var langt, enda heitt í hamsi Kissing


mbl.is Fullt hús á borgarafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð særa...

...hafðu það í huga áður en þú kommentar um þessa frétt ...þeir sem hafa þörf á að hrauna yfir af mannvonsku og dómhörku, fáið ykkur göngutúr og ferskt loft í lungun og setjið ykkur í spor þeirra sem nú eru í sjokki og sorg. Takk ;oHeart

Var annars búin að blogga um þetta og hef engu við það að bæta í augnablikinu, sjá ,,Nærgætni orða" , hér á undan þessu innleggi. 


mbl.is Hvattar til að vera samvinnuþýðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nærgætni orða

Þetta mál er skelfilegt og það að hugsa til þess að svo ungar stúlkur hafi verið úrskurðaðar í 7 mánaða EINANGRUNARVIST, eins og ég skil fréttir, þykir mér engum bjóðandi, engum.  Fyrir foreldra og ástvini þeirra er þetta hræðilegt, eins og heyra mátti í Kastljósinu í gær, feðrum þeirra líður mjög illa og eru hræddir og sorgmæddir og vilja fá þær hingað heim. Það styð ég heilshugar og vona að allir leggist á eitt með að svo geti orðið.

Ég læt hér fylgja link á dv.is, þar sem mikið hefur verið kommentað um þessa frétt, þar á meðal ég. Einhverjir orðljótir og fullir dómhörku og vægðarleysis, hafa fjarlægt komment sín. Tek því þannig að þeir hafi þá séð að sér, þó betra hefði verið að þeir hefðu beðist afsökunar á orðum sínum. Trúi því og treysti að bloggarar a mbl.is séu  nærgætnari, kurteisari og dannaðri !

Það er gott að hafa í huga að oft er best að segja ekki neitt, ef maður hefur ekki neitt fallegt að segja. Þessi frétt snýst ekki um afleiðingar dópneyslu, heldur þá staðreynd að ungar íslenskar stúlkur hafa verið úrskurðaðar í EINANGRUNARVIST og amk önnur þeirra með astma og fleira sem hún þarfnast læknisaðstoðar með, sem óvíst er hvort hún fái í Prag, en það er þó vonandi. Við búum vi ðþá löggjöf að við treystum ekki fólki undir 20 ára til að kaupa sér 1 bjór. Útlendingastofnun treystir ekki Íslendingum undir 25 ára aldri, til að hafa þann þroska sem þarf, til að giftast útlending. 18 ára sem hafa að auki verið í neyslu, hafa án minnsta efa míns, ekki dómgreind í að vita hvað þær voru að gera eða mögulegar afleiðingar þess,  hafi þær á annaðborð nokkuð vitað um það.

Utanríkisráðherra hefur sagt , á ruv.is í gær, að það sé ,,ljóst að þær eru fórnarlömb glæpamanna", og að reynt verði að fá þær heim. Ekki er ég neinn sérfræðingur, en ég held þess þurfi ekki til að sjá hvernig þessu var ótrúlega vandlega og faglega komið fyrir í 4 töskum hjá þeim, en ekki hvítt efni í glærum pokum, eins og oft er sýnt hér í tv sem finnst á Leifsstöð. Ég vil trúa því að þær hafi ekki vitað af efnunum og leyfa dómsstólum einum að dæma í málinu , þegar og ef þar að kemur.

Persónulega er ég á móti dópi og þykir afleiðingar þess vera skelfilegar og neyslan eykst og eykst og fram hefur komið að dópstríðið í heiminum sé tapað, en það er allt annað mál og þessari frétt ekki viðkomandi. 

Það er öllum holt að geta sett sig í spor annarra og um leið að hugsa sem svo; ,,Hvað ef þetta hefði verið ung dóttir mín, eða ég sjálf/sjálfur, hvað myndi ég þá vilja að væri gert og hvernig myndi ég vilja að um málið væri kommentað og bloggað ? " 

 http://www.dv.is/frettir/2012/11/12/hun-verdur-aldrei-som-eftir-ad-vera-tharna-uti/

Með samúðar-og kærleikskveðju til ástvina þeirra sem nú eru miður sín af sorg og í miklu áfalli, eins og heyra mátti í Kastljósinu í gær, þau þurfa nú stuðning en ekki ljót orð Heart

Hjördís Vilhjálmsdóttir


mbl.is Stúlkunum „leikið fram til fórnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband