5.6.2012 | 00:59
Gott á þá !
Og ég vona að stjórnvöld gefi ekki eftir. Leyfa þeim þá að bíða þar til þeir gefast upp sjálfir, eða hreinlega grípa tækifærið og innkalla veiðiheimildir á skipum þeirra !!!
Það er ekki í lagi að stilla stjórnvöldum upp við vegg með kverkaki eins og LÍÚ treystir á að komast upp með. Sama hvaða flokkar eiga í hlut hverju sinni. Það er aukaatriði eða hvort ríkisstjórn er vinsæl eða ekki.
![]() |
Engin viðbrögð frá stjórnvöldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2012 | 00:49
Takmarkalaus þjófnaður
Það virðist vera að sum fyrirtæki steli endalaust. Amk of mörg þeirra. Það eru lán í bönkum sem eru ekki greidd. Svo safnast ýmsar skuldir, sem eru ekki greiddar. Svo er það skattur sem ekki er greiddur. Samt dreginn af launum starfsfólks. Sama gildir um lífeyrissjóðs iðgjöld. dregin af launum en ekki greidd. Svo eru launin í heild sinni ekki alltaf greidd. Við tekur ábyrgðarsjóður launa, ríkið / við öll. Samt fá þau afskriftir út um hvippinn og hvappinn.
Hvað verður um innkomu þessara fyrirtækja sem ekki geta staðið við sitt ? Eða vilja það ekki og ætluðu sér það aldrei ? Þjófnaður með ásetningi ? Á sama tíma hika fyrirtæki ekki við að siga lögreglu á þá sem laumast út með eitthvað smáræði í samanburðinum. Það er hálf fyndið. Meiri kostnaður á ríkið / okkur við það !!! Geta þau ekki bara beðið fólk að skila því sem það tók óvart með sér út ??? Á sama tíma eru verð mjög oft röng á kassa m.v. hilluverð. Þá heitir það ,,mistök". Það er ein leið til að stela, og nógu margar leiðir eru þeim færar. Þeim sem það vilja. Eftir því hversu einbeittur brotaviljinn er.
Hvað verður um innkomu þessara fyrirtækja sem stela öllu steininum léttara ?
Væri ekki ráð að setja lög sem skyldar fyrirtæki til að skila skatti og lífeyrisgreiðslum á sinn stað, 1. hvers mánaðar , um leið og launum ??? Eða leggja allt inn á reikning starfsmanns, og svo væru sjáfkrafa skuldfærslur á þá staði sem þyrfti ? Og hafa þá hæstu dráttarvexti frá sama tíma, verði dráttur á því , frá launagreiðanda ? Og eitthvað annað tæki við eftir 3 mánuði eða svo, og markmiðið væri að koma þeim ekki um með að safna upp skuldum á tekjuskatt starfsmanna sinna eða lífeyrisgreiðslur.
Væri sömuleiðis ráð að gera viðskiptavinum kleift/ skylt að skila öllum virðisauka til ríkisins, í hverri verslunarferð ? Hafa einhverskonar sjálfkrafa færslur á kassa og nota tæknina til þess ? Til að tryggja það að vsk sem þetta sama fólk borgar og er svikið með skil á launum, skatti og lífeyrisiðgjöldum, skili sér á réttan stað ?
Þetta er ekki í lagi eins og þetta er. Svo mikið er víst. Án efa þúsundir milljarða, sem hafa komið úr vösum viðskiptavina, á ári hverju, sé allt talið og lagt saman. Þetta er ekki í lagi. 18 milljarðar úr vösum fólks á aðeins 3 árum. Eða er kannski eina leiðin sú að fólk þurfi að reyna að fá svart í auknum mæli í viðskiptum sínum ? Þar sem það er ekki á það treystandi hvort sem er, að vsk skili sér í því kerfi sem notað er ? 18milljarðar, bara í þennan þjófnað á 3 árum, ætti að vera næg ástæða til að finna nýjar leiðir.
![]() |
Afskrifuðu 18 milljarða vegna vsk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2012 | 00:04
Fjöldaafsláttur
Það er svo augljóst að skilaboð til fólks um allan heim eru þessi:
Ef þú ætlar að drepa, dreptu þá nógu marga.
Ef þú ætlar að stela, eða draga þér fé, eða taka ,,lán" sem aldrei á að borga, hafðu það þá nógu háa upphæð. Eins og við höfum kynnst hér.
Ef þú ætlar að gera út af við einhvern fjáragslega, komdu þá heilu samfélagi á hliðina, aðhafstu ekki neitt, og gættu þess að vera í nógu góðri stöðu til þess. Eins og við höfum kynnst hér.
Af hverju fá þeir stóru og valdamiklu ávallt bestu ,,kjörin" ; magnafslátt á flestu ef ekki öllu sem þeir gera ??? Af hverju ? Þetta virðist gerast um allan heim í gegnum tíðina.
Þessi skilaboð eru stórhættuleg. Vonandi að ráðamenn hér heima og annarsstaðar átti sig á því. Því annars mun það eitt gerast, að þeir sem stela kjúkling úr Bónus, fari að taka uppá því að hafa það nógu stórt til að sleppa örugglega.
Ekki að ég styðji líflátsdóma, langan veg frá. En reiði þeirra er réttmæt hvað margir sluppu. Eins og við þekkjum hér á landi þó meint brot séu af öðrum toga en fjöldamorð á almenningi. En aleiga margra var hirt. Aleiga. Ekki er þó almenningur að krefjast þess að víst margir sluppu við dóma í Egyptalandi, ætti einnig að sleppa Mubaraka, veikum gömlum manni. Það hefði liklegast verið krafan hér, eða hvað ?
Áhugavert væri að vita hvort það gerist oft í Egyptalandi, að fólk sem er dæmt fyrir eitt morð, fái líflátsdóm fyrir það ?
![]() |
Mikil reiði og magnast í Kaíró |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2012 | 16:55
Laun á meðan ?
![]() |
Skip Síldarvinnslunnar ekki á sjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.6.2012 | 16:40
Fljótleyst
![]() |
Þóra reiðubúin að mæta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2012 | 11:39
Mætir ÓRG einn ?
Yrði hálf skondið, hafi hann þegið boðið er erfitt að afboða núna.
En flott hjá Þóru að afboða, PR stunt eða ekki.
Asnalegt af Stöð2 að gefa öðrum frambjóðendum puttann , þó svo aðrar þjóðir hafi þennan háttinn á. Þetta passar ekki í litlu landi að dissa fólk og útiloka og slæmt fyrir þá sem hafa ekki gert upp hug sinn ( sem er mjög margir), að fá ekki tækifæri að kynnast öllum jafnt.
![]() |
Þóra þiggur ekki boð Stöðvar 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.6.2012 | 10:26
Ætti að fá
að vinna lengur, þeir sem það vilja, segir PB m.a.
Er bannað samkvæmt lögum, amk fyrir þá sem fá laun sín úr ríkissjóð, að vinna eftir 70 ára aldur ?
Smá pæling, þar sem JS verður 70 ára í haust og ÓRG verður 70 ára eftir um eitt ár.
Þetta langar mig að vita og tel að þurfi að koma fram og vera á hreinu fyrir Forsetakosningar 30.júní. Það er auðvitað ekki í lagi að þjóðarleiðtogar fari ekki að gildandi lögum, burtséð hvort hugsanlega hafi skapast hefð fyrir því að fara ekki lögum, hvað vinnualdur opinberra launþega varðar.
![]() |
Ellilífeyrisaldur sennilega upp í 70 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2012 | 09:45
Líka á Íslandi ?
Það er óskandi. Það svosem kemur ekki fram neitt annað en það sé Fiat sem býður þetta. Svo ég vona að fréttir komi af því hvort þetta gildi ekki pottþétt hér líka. Ef ekki, þá hversvegna. Vill Fiat ekki að tilboðið gildi hér, eða er það stoppað af hér á landi ? Eitt efnahagssvæði...má ekki mismuna og allt það, frjálst flæði fólks og fjármuna..
Það er fín kjarabót að fá bensín svo ódýrt í 3 ár.
![]() |
Kaupa Fiat og fá bensínið á eina evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2012 | 09:20
Oh

![]() |
Fundu eigandann í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2012 | 00:22
Gíslataka
Inneignar , kalla ég þetta en þeir ,,geymslureikning ". Krúttlega orðað hjá þeim ;) Er það þá geymt, óumbeðið, á hæstu mögulegu vöxtum ? Eða virkar tölvukerfið einungis á þann veg að hægt sé að rukka fólk um vexti og eftir atvikum vanskilagjöld ?
Hvað varð um eignarréttaárkvæði (v/inneignar fólks)stjórnarskrárinnar ? Fauk það í einu lagi til lífeyrissjóðanna sem mega ekki af þeim sökum, aflétta lánsveðum og fella niður skuldir ? Er þá ekki hægt að setja lög sem BANNA lífeyrissjóðunum að taka lánsveð ??? Smá úrúrdúr...
Geta þeir ekki greitt út innegin og þá rukkað fólk aftur, skuldi það þeim ? Eða eru blankheit þeirra svona mikil að það þurfi að velja á milli frábærrar góðmennsku með ,,geymslureikninga" og sennilegast vaxtalausa, og að lækka laun stjórnenda ?
Skritið hvað völd fjármálfyrirtækja eru algjör og hvað þau fá mikinn frið til athafna. Hversvegna ? Er fólk svona sofandi eða er komin algjör uppgjöf í fólk og það sér að það þarf bara að borga og borga og borga og borga og borga... ???
Ég tek einnig eftir í fréttinni að seðlar, 3 stk takk fyrir, voru sendir út til EINSTAKLINGA. Eru engir lögaðilar sem skulda þeim eða eru þetta lán sem aðeins einstaklingar fengu ?
Ég furða mig á þögninni um þetta í bloggheimum. Það hefði verið fínt ef þeir sem hafa fengið 3 seðla, létu heyra í sér í bloggheimum, í stað þess að láta það nægja að hafa samband við Lýsingu. Svona til að fá þetta beint í æð, óritskoðað og milliliðalaust.
![]() |
Fá þrjá greiðsluseðla vegna bílalána |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)