Er nema von

Hvað mál ganga hægt sem eru til rannsóknar. Þegar mannskapurinn hefur ekki tíma til að sinna vinnu sinni vegna annarra anna...;)Ætli kassastúlka í Bónus kæmist upp með það sama ?

 

Svo er skondið að hugsa til þess að menn hafa t.d. verið dæmdir hér fyrir að byrja of snemma í nýrri ritfangaverlsun, eftir að hafa unnið hjá annarri... ;))

Hvernig ætli þetta sé hjá fleiri opinberum aðilum ? Að menn séu að bara almennt að dúllast í að reka eigin fyrirtæki og virka busy í stólum sínum á fullum launum hjá okkur ? Ólíklegt að þeir tveir séu þeir einu sem hefur dottið þetta í hug. Ætli það sé til í dæminu að fólk á opinberum launum, mæti bara alls ekki til starfa sinna ? Ætli nokkur fylgist með því ? Það gerist í hinum stóra heimi og gæti alveg verið málið hér líka.


mbl.is Unnu í 577 tíma með annarri vinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt og töff

Ánægjulegt og frábært í alla staði. Bæði fyrir kirkjuna og vélhjólamenn. Sem þurfa oft að sitja undir því að vera vafasamir vegna þess að örfáir eru það. Hefði verið gaman að hafa verið þarna. En það kemur Hvítasunna líka á næsta ári ;))
mbl.is Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæði tvö fari í stjórnmál

Það tel ég farsælast. Ég var mjög ánægð með það þegar Þóra bauð sig fram. En nú er ég ekki viss lengur. Það er of mikill ágreiningur um þau bæði. Svo ég tel best að þau fari bæði þangað sem hugur þeirra virðist langa, í fullan slag um að komast inná Alþingi !! Þau kæmust þangað bæði tvö, Þóra og ÓRG  án efa mjög léttilega. 

Og að segja svo að það sé bara val um þau tvö....það er dónalegt af henni svo ekki sé dýpra í árina tekið. Eflaust er hún að vísa til skoðanakannana en það er samt dónalegt af henni. Þau eru 7 í framboði.

Tel best núna að annaðhvort Andrea eða Ari Trausti flytji á Bessastaði. Ég er kannski gamaldags, en ég vil hafa frið og ró á þeim bæ.

Nema þá að Þóra hafi verið að meina þau sem einu tvo kostina.. ;)) ?? 

Og svo eru þau ekki gift. Sem er í lagi. En það væri óskandi að blaðamenn hefðu það í huga. Svavar er ekki eiginmaður Þóru. Þau búa saman. Þegar og ef þau gifta sig, þá eru þau hjón. Fyrr ekki. Það má ekki gjaldfella hjónabandið með þessum hætti, þykir mér.  Fullt af fólki sem býr saman og því alveg óhætt að tala um hlutina eins og þeir eru.


mbl.is Sé ekki í samkeppni við þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjulegt

Að lesa svona frétt til tilbreytingar ;)) Um konu sem vill bæta aðeins á sig. Frá öllum hinum um alla þá sem eru endalaust að hugsa um aukakílóin og baráttuna við þau. Jafnvel fólk sem er einmitt ósköp passlegt að sjá að mati flestra. Mjúkar línur þurfa að komast í tísku svo fleiri konum fari að líða betur í eigin skinni. Twiggy áhrifin hafa lifað of lengi og farið illa með of margar. 


mbl.is Vill aukakílóin aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert er tjónið ?

Ef maður t.d. ber þetta saman við þá skammarupphæðir sem Breiðuvíkurbörnum var boðið eftir að gróflega var brotið á þeim og skaðinn mikill og varanlegur á líf þeirra og heilsu.

Leitt að lög séu ekki virt og allt það. En er rétt að hafa boðið henni 500 þúsund fyrir það eitt að fá ekki vinnu sem hún sótti um ? Er rétt af henni að  krefjast 16 milljóna ? Er tjónið meira ef fólk er vel menntað og heilbrigt ? Og á um leið, eða ætti að hafa, meiri líkur á að bjarga sér og plumma sig mjög vel án þess að fá slíkar bætur.

Þarf ekki hið minnsta að láta hana ganga í gegnum mat á þvi hvert tjónið var sem höfnun í starf olli henni á heilsu og líf ??? Og hvort það tjón sé varanlegt eða ekki. 


mbl.is Áhrif bindandi úrskurða undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Námulaunin

Það væri áhugavert að vita hvort laun námuverkamanna séu í samræmi við hagnaðinn. Og aðbúnað þeirra. Ég rétt vona að ekki sé verið að setja hana á háan hest, eigi hún ekki heima þar með réttu. Að græða og græða á kostnað þrælahalds ( sem illa launuð störf og aðbúnaður eru ), er ekki í lagi og ætti ekki að vera samþykkt eða eigendum slíkra fyrirtækja hampað á nokkurn hátt.

Ég vona að það eigi ekki við um þetta fyrirtæki. En eitthvað er þá verðlagið of hátt, víst svo svakalegur hagnaður verður. Eða er það ekki annars ? Allavega ætti að vera svigrúm til lækkunar.

Og hvort greitt sé auðlindagjald..?? Kannski ekki svigrúm í slíkt ?


mbl.is Ríkasta kona heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannreynt ?

Gott og blessað þetta með að undrun vekji að listi sé fylltur út með sama penna..en hvernig er það kannað hvort viðkomandi hafi skrifað undir eða ekki ? Það kemur ekki fram hér.

Er hringt í viðkomandi ? Er það fólk látið gefa rétta undirskrift ? Eða er þetta samkeyrt við Reiknistofu Bankanna, sem á líklegast stærasta safn undirskrifta vegna greiðslukorta. Þetta langar mig að vita. 


mbl.is Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafíutaktar

Og ekki neitt annað. Að ætla sér að halda eftir nýfæddu barni sem gísl !

Margt slæmt er sagt um hina ýmsu vélhjólaklúbba...ég efast um að þeir myndu gera svona. Svei þeim þarna úti í Grikklandi. Ég vona að þetta sé eina málið, sem ég óttast þó að séu fleiri. Erfitt að ímynda sér að þetta sé alveg fersk og ný hugmynd hjá þeim. 

Ætli svona tilraunir til gíslatöku séu löglegar í Grikklandi ? Og að hver sem er megi nota slíkar innheimtuaðferðir ? Eða að þetta sé einkaréttur háskólamenntaðs heilbrigðisstarfsfólks og að þá sé þetta í fínu lagi ? 


mbl.is Hótuðu að halda barninu eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðmæli á netinu

Væri ekki sniðugast og einfaldast og réttmætast, að yfirvöld væru með síðu á netinu, til þess að fólk geti skrifað þar undir beint ?

Nöfn allra sem væru í framboði á hverjum tíma, væru þá þar og svo væri sundurliðað hvert svæði og fjöldi undirskrifta sem kominn væri. Og um leið væri tékkað af að enginn mæli með tveimur og að nöfn meðmælenda séu gild m.v. þær reglur sem um það gilda, aldur þeirra ofl. 

Ég óttast pínu að vel sé hægt að skemma að ásettu ráði fyrir frambjóðendum, með því að skrifa undir hjá mörgum. Það er ekki gott ef svo væri.

Við búum á tækniöld. Við höfum góða reynslu af rafrænum skattskýrslum og heimabönkum. Þessvegna ætti ekki að vera nein fyrirstaða að hafa meðmælasöfnun á netinu. Nafnleynd eða nafnbirting, allt eftir ósk hvers og eins meðmælanda. Orðið hálf púkó og gamaldags að það þurfi að safna þessu á pappír. Og það er dýrt í heild sinni og tímafrekt, bæði fyrir frambjóðendur og opinbera eftirlits-og samkeyslukerfið sem þessu fylgir.

 

 

 


mbl.is Grunur um rangar undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fengsæl fiskimið

Við túnfótinn, og göturnar líta svona illa út á Ísafirði. Hversu mikið skilar sér í bæjarsóð af því sem hafið allt í kring hefur uppá að bjóða ? Maður skildi ætla að sjávarplássin ættu að njóta góðs af háum tekjum sem sjávarútvergurinn skapar. Eða situr lítið eftir og ef svo, þá hversvegna ? 

Ef fyrirtæki sem þurfa að grafa, geta ekki gengið sómasamlega frá, ætti bærinn að sjá um þetta sjálfur og senda þeim svo reikninginn. Amk héðan í frá, sé það þeirra að ganga frá þannig að útlit sé eins og áður en grafið var. Varla er þetta sú auglýsing sem þessi fyrirtæki eru að sækjast eftir. Eða er þeim kannski alveg sama ?

Flott hjá Ísfirðingum að mála holurnar og ég vona að barátta þeirra skili skjótum árangri ! Fleiri ættu að gera slíkt hið sama, og mála óslegið gras í leiðinni, sem bæjarfélög á nokkrum stöðum hafa trassað til að láta fólk trúa því að þau séu að spara fjármuni. Hafa það sýnilegt, eins og sagt er. Sem ég held að sé blekking að mestu. 

 


mbl.is Mótmæla með götulistaverkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband