Skakkt númer

Væri ekki eðlilegra að apótekin, t.d. Lyf og Heilsa eða Lyfja, væri með samfélagshjálp og gæfi þeim frí lyf sem ekki geta leyst þau út ? Að læknar hringi frekar þangað. Sjóðir apótekanna eru án efa dygrari en sjóðir Hjálparstarfs kirkjunnar. Apótekin gætu þessvegna unnið þetta í samvinnu við Hjálparsamtök til að meta þörfina á hjálp með lyfjakostnað. ´

Annars er þetta sorglegt ástand en gott að Hjálparstarf kirkjunnar er þó að reyna að hjálpa til. Sjóðir þess starfs fara eftir því hversu mikð fólk gefur til þess starfs sérstaklega, eins og ég hef skilið þetta.

Fróðlegt væri að vita hvað önnur trú-og/eða lifsskoðunarfélög eru að gera til hjálpar, t.d. með matarkort , leysa út lyf ofl. Hringja læknarnir í fleiri aðila en Hjálparstarf kikjunnar ?


mbl.is Læknar leita til Hjálparstarfsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin raunverulega ástæða

Fyrir fáliðaðri lögreglu, hver ætli hún sé ? Svona í alvörunni. Það var einnig of fáliðað í góðærinu s.k. Svo ekki er það bara vegna tóms ríkissjóðs núna eftir hrunið 2008. Alla daga þegar Alþingi starfar, er verið að setja lög sem banna eitt og annað og raefsiramminn misþungur. Löggjafiinn er því stöðugt að setja fleiri verkefni á lögregluna og dómstólana. Er ekki neitt hugsað um það hvort hægt sé að framfylgja lögunum; hvort nægur mannskapur sé til þess ? Eða er það algjört aukaatriði ?

Er mögulegt að þetta sé með ráðum gert, til þess að drekkja lögreglunni í sýnilegum lögbrotum ? Til þess að  þeir hafi ekki tíma til að ná í skottið á þeim sem hegða sér eins og minnkar í græðgi sinni og söfnunaráttu í peninga ? Svo hvítflibbar og evt ráðamenn fái að dúllast í sínu í friði og ró ?? Og svo skil ég ekki af hverju ekki er gerð krafa um BA próf hið minnsta, til að sinna löggæslu ??? Það er gerð krafa um aukna menntun á flestum sviðum en ekki þarna svo ég viti til  Hvað veldur ?

Það er missir af Geiri Jóni úr starfi. Hann hefur einstaka hæfileika í mannlegum samskiptum og því að róa mál og gera allt gott: virðist vera sáttasemjari. Og með afburða góða leiðtogahæfileika. Þannig hefur hann komið mér fyrir sjónir í fjölmiðlum og ég trúi þvi að sú mynd sem þar hefur birst sé alveg rétt. Óska honum alls góðs, hvort sem verður í stjórnmálum eða / og annarsstaðar ;))


mbl.is Hættir vegna niðurskurðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5 milljónir

,,Runnu út" og voru látnar fara til spillis í stað þess að hafa runnið til eigenda hússins, íbúa Ísafjarðar, eins og ég skil fréttina að hafi verið eigendur Kaupfélagshússins.

Hvernig gat það gerst ? Af hverju var ekki áhugi á að ganga frá því tilboði og hvernig getur bæjarsjórn verið heimilt að fara svona með almannafé sem hefði getað fengist ? Af hverju var meiri áhugi á að selja sömu aðilum fasteignina á lægra verði ? Er nema von að fasteignaverð á Vestfjörðum fari hríðlækkkandi !!

Mun einhver þurfa að axla ábyrgð ? Hvernig læt ég, auðvitað ekki...


mbl.is Kaupfélagshúsið selt á 35 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ef illa fer

Fyrir manninum sem óskaði eftir lyfjum til að greiða skuld sína ? Er nei-ið mannslífs virði fyrir LogL ??? Eða barsmíða til óbóta ? Ef svo, þá ætti að vera hægt að selja honum einhver lyf við því...græða meira.

Þetta gerist nú varla daglega hvort sem er.

 


mbl.is Bað um lyf til að borga skuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ekki gefa þeim að borða ?

Víst þau eru svöng ? Amk á meðan verið er að tala um að rannsaka beitlöndin, það gæti tekið mörg ár og öll dýr dauð úr hungri á meðan verið er að dúllast með það. Þetta er ömurlegt að lesa ;(

Hver ber ábyrgð á hungurdauða þeirra ? Hvernig læt ég, auðvitað ber enginn ábyrgð...

Veiðileyfi eru seld dýrum dómi. Er ekki hægt að nota eitthvað af því til að fæða þau svo hægt sé að skjóta þau síðar ?

Eru þau lokuð inni á beitilausu landi ? Er ég að skilja þetta rétt ?


mbl.is Hreindýr að drepast úr hor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deloitte

Gæti þá reiknað þetta út...enda frítt því þar er ekki neitt til að kaupa....;/

Alþjóðlegt fyrirtæki ..þeir kunna þetta þessvegna.;)))


mbl.is Ekki grunnur til skattlagningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara í Nígeríu ?

Eða eru bara aðrar aðferðir og önnur hugtök stundum notuð í öðrum löndum ?

Googlaði aðeins og fann m.a. :

"If you op for a private adoption then fees are all negotiable. They can range from simply feehousing and feeding the birth mother and paying all medical bills related to the birth plus any legal fees to an actual sum of money that goes directly to the birth mother for her use in anyway she wishes."

Af hverju þarf að greiða mat og húsnæði alla meðgönguna ? Er það evt gert til að koma í veg fyrir að farið sé í fóstureyðingu ? Er þá einhver mikill munur á þessu og því sem verið er að reyna að stöðva í Nígeríu ?

"Fees also vary based on the child you choose to adopt. Newborn caucasian babies with no known health problems command the highest fees. Non-caucasian children, children with health problems or retardation, older children, children who have been traumatized or abused are all harder to place because fewer families want to take on the problems they represent. As a result the fees are less."

Hæsti kostnaður er á hvítum heilbrigðum börnum.  Man að áður fann ég ( ekki núna þó) lista yfir kostnað og þá voru hvítir heilbriðgir drengir efstir á listanum. Hvernig má það vera kostnaðurinn sé mismikill eftir kynferði og litarhætti barns, aldri eða hvort það sé heilbrigt eða ekki ? Það á ég erfitt með að skilja.

Kostnaðurinn er sagður frá 5000 til 40.000 dollurum. Það er fullt af heimilum fyrir ungar stúlkur þar sem þær búa á meðan á meðgöngu stendur og afhenda svo börnin eftir fæðingu. Man ég fann einu sinni á netinu heimili ( fann ekki núna það sama) sem veitti ungum konum/ unglingum skjól og allt sem þær þörfnuðust og það var mikið talað um hvað það væri skelfilegt að fara í fóstureyðingu ( sem þær vildu gera )  það væri betra að gefa barnið. Þær voru hræddar á ýmsan hátt ( segi ég) að heilsutjón eftir fóstureyðingu gæti orðið varanlegt og fleira og fleira. Man þegar ég las þetta, upplifði ég að verið væri að kaupa börnin af þeim. Sama og við að lesa þessa frétt frá Nígeríu, nema önnur hugtök notuð.

Ég vona að einhverntímann verði gerð heimildamynd um konur sem hafa dvalið á svona heimilum, ætlað sér í fóstureyðingu en talin trú um að gefa börn sín til ættleiðingar. Langar að vita hvernig þeim líður ca. 20 til 30 árum eftir á. Ég leyfi mér að efast um að þeim líði vel með ákvörðun sína, vegna þess að þrýst var á þær.

Úr fréttinni frá Nígeríu : ,,tilgangi að fara í fóstureyðingu, var fengin til að samþykkja að ala barnið og selja það." - sé engan mun ..eða hvað ? Meiri hreinskilni í orðavali í Nígeríu ? Eða ekki nógu klárir að nota fínni hugtök og orðaval ?

Ég vona að svona sé málum háttað í einungis litlum minnihluta ættleiðinga og að oftast sé þetta einlægur ásetningur og vilji móður að gefa barn sitt frá sér. Ég treysti því að Ísland skoði ávallt mjög vel þessi mál. Það er án efa mikil sorg að geta ekki átt barn en mér þykir ekki í lagi að annarri manneskju sé hugsanlega valdið sorg til þess að gleðja annað fólk. Þessar skuggahliðar þykja mér skelfilegar. Sama með staðgöngumæðrun eins og t.d. var sýnd heimilamynd á RÚV ekki alls fyrir löngu frá Indlandi. Mér þótti það vera verksmiðjur, líkt og fjallað er um hér frá Nígeríu. Sama þar, önnur nöfn og önnur hugtök.


mbl.is Selja börn úr barnaverksmiðjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta tikkar vonandi

Á hæstu mögulegu dráttarvöxtum, það sem fólk og fyrirtæki eiga inni.

Ef það gerir það ekki, þá gæti það skýrt seinagang bankanna að gera þetta upp strax og þó fyrr hefði verið.

Það vita allir hvernig dráttarvextir og vaxta-vaxtavextir ofan á það , myndu safnast upp ef þeir ættu inni hjá fólki.

Spurning hvort þeir sem eiga inni hjá bönkunum þurfi að senda þeim kröfu með eindaga og tilkynningu a la bankarnir um dráttarvextina sem tikka fram á greiðsludag.. ? Og senda þetta svo í lögfræðing, berist greiðslan ekki á tilsettum tíma. Ok að gefa þeim ca. 3 daga, þeir hafa haft meira en nægan tíma og væru búnir að gera þetta upp, væri það gróðavon fyrir þá. Sem það nefnilega virðist ekki vera.


mbl.is Fá 46,8 milljarða endurgreidda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrelt tímaskekkja

Eða er það ekki annars ? Að hengja málverk á fyrrverandi þjónum almennings ( þeim hærra launuðu ) upp um alla veggi. Þetta virðist fara eftir launum fólks á hverjum tíma. Eflaust ekki strigans virði að splæsa í striga undir lægri launaða þjóna ríkisins, þó mannauðurinn sé hátt lofaður. Allavega á tillidögum þegar okkur er sagt að við séum öll svo hnífjöfn og öll jafn mikilvæg og frábær...það kannast flestir við romsuna ... ;)

Og við þurfum að borga að auki. Auðvitað. Hver annar svosem ?  Og stundum eru gerðar styttur, eins og í ráðhúsinu þó biðröðin í Borgarstjóarsyttyrnar sé löng.

Er þetta bruðl viðeigandi eftir hrunið og þegar fólk vill sjá Nýtt Ísland rísa úr ösku hrunsins 2008 ??? Er þetta ekki pínu eins og verið sé að gefa okkur puttann ??

Er viðeigandi að ramma inn þá sem voru í hópi þeirra sem sváfu á verðinum í aðdraganda hrunsins ?Þó allir hafi að sjálfsögðu verið með vængi og geislabaug.  Er það kannski gert til að við gleymum ekki því sem gerðist ? Sem er kannski ágætt svosem...við gleymum nefnilega of fljótt og kjósum aftur sama fólkið áður en við vitum af hvort sem er. Það er venjan. Tryggð okkar í kjörklefanum er oft alveg óskiljanleg. Mikið væri gott ef tryggðin í hjónaböndum væri jafn mikil. 

Ef það þarf endilega myndir...má þá ekki bara prenta þær út á 10x15 pappír og smella í ramma úr Rúmfatalagernum ? Eða bara raða þeim í albúm fyrir áhugasama sem langar að fletta uppá gamla mátann. Þetta er svo allt á netinu fyrir áhugasama. Og gaman væri að vita hvað Herra Google segir um áhuga á leitarorðinu : ,,Forsetar Alþingis " ??? Efast um að talan sé mjög há.Max 100 sinnum síðustu 5 árin eða svo væri hægt að giska á. Eða kannski minna. 

 


mbl.is Afhjúpuðu málverk af Sólveigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10% hærra er fínt

Skekkjumynd ,,sviðsmynda" FME er 10%, svo það er þá bara fínt ef fólk og fyrirtæki fær þá meira en minna til sín. Fín tilbreyting.

Mér þykja fréttir af þessu oft svo einkennilegar. Bönkunum er stillt upp sem blæðandi fórnarlömbum sem allir eru vondir við. Og það er eins og reynt sé að búa til vorkunn og svo mikla að það endi með að sagt verði við þá:  ,,þetta er ok, við tökum þetta bara á okkur líka " . Enda Íslendingar í fínni þjálfun með brotin bök sín.

Ekki liggur þeim mikið á að klára að leiðrétta svik forfeðra sinna. Hvað græða þeir á biðinni ??? Þeir gera jú ekki neitt nema að græða á því. 

Af hverju er fréttum um þessu ekki stillt upp sem hagnað / gróða fyrir lántakendur; sigur fyrir þá ??? Þar sem réttlætið sigraði og svindlið tapaði ??? Sem misheppnað nígerísvindl sem komst upp og tókst að rekja. Til tilbreytingar, því oftast tekst það alls ekki. 

Og svo er óskandi að verðrtyggðu lánin verði endurstillt aftur til 2008 og séð verði til þess að áætlanir um endurgreiðslu sem fólk fékk og samþykkti, sé látnar gilda !!! 


mbl.is Áhrif dómsins eru 165 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband