Móðgandi

Að líkja þessu tuði og dónaskap við hegðun barna. Þau myndu ekki láta svona !! Það væri nær ef Alþingi tæki þau sér til fyrirmyndar. Myndi t.d. vera hægt að horfa á hálftíma myndbrot frá hvaða leikskóla sem væri og sjá að hegðun þeirra er til fyrirmyndar. Óskandi að fullorðið fólk væri oftar og meira tilbúið að hegða sér frekar eins og börn.

Þetta er einmitt það sem VG er áberandi slakt í. Kurteisi, fágaðri framkomu, raddbeitingu ofl. Þyrfti að senda þá í charm school eða 1 dag á næsta leikskóla !!Hvað ávinnst með þessum endalausu stælum og skæting í samskiptum ???? Annað en það augljósa, minnkandi traust og virðing gagnvart Alþingi.

Af hverju fara menn svona oft í vörn þegar verið er að svara ? Af hverju er þetta á svona persónulegum nótum ? Kunna menn ekki, með alla sína greind, menntun og reynslu, að aðskilja hlutverk fólks/ störf þess, og svo eigin persónur þeirra ? Þetta er oft eins og hvert annað hundaat. Sem er sennilegast bannað með lögum. Það þarf sennilega að banna með lögum þessa leiðinlegu hegðun, tuð , þras, skot, skæting og stæla þegar stjórnmálamenn eiga í hlut. Sérstaklega í ræðupúlti Alþingis og já Kastljósinu um leið.  Þeir ná þessu nefnilega ekki og kippa sér ekki orðið upp við skammarbjöllu Forseta. Hafa sektarákvæði með í slíkum lögum. Háar fjársektir sem taka í budduna svo um munar !!! 

Plís verið góðir við hvern annan og sýnið um leið svörtum pöpulnum kurteisi þó þið eigið augljóslega erfitt með það á milli kosninga. Þið hafið greindina, nýtið hana !! Það er enginn að biðja um að þurfa að hlusta á þetta tuð og þras og stæla í samskiptum. Úrelt, hafi þetta einhverntímann á hippatímanum eða þar um bil, þótt hipp og cool !

Verst að búið er að banna rasskellingar með lögum... ;)) 

 

 


mbl.is „Hvers konar kjaftæði er þetta?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég grét ;(

Að horfa á þann hluta sem sýndi munaðarlausu börnin ;( Skelfilegt er að sjá í augu barnanna, algjörlega líflaus, algjörlega án vonar um að losna úr prísundinni.  Það var eins og þau væru þarna bara í geymslu eða eins og þau væru fangar. Ég get ekki skilið svona og hef aldrei getað gert. Maðurinn á að vera hin vitiborna vera á jörðinni. Hvergi í dýraríkinu er þessi háttur hafður á. Verst er að maður upplifir algjört úrræðaleysi og þarf bara að kyngja þessari grimmu staðreynd. Ég er sorgmædd í hjarta mínu og vildi óska þess að ekkért barn þyrfti að búa við þessi ógeðslegu skilyrði algjörlega rænd allri ást og umhyggju. Þau eru látin rétt svo tóra á hungurmörkum. Það er vanmetið að við mannfólkið lifum ekki á brauði einu saman. Við þurfum ást og mannlega snertingu, annars veslumst við upp og deyjum. Hvenær ætlar heimurinn að skilja það með alla sína menntun og þekkingu ???

 


mbl.is Sjaldgæf sýn inn í Norður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okkar hlutur

Almennings á landinu af 12,6 milljarða aflaverðmæti í Janúar 2012. Hver er hann ? Hvað skilar sér mikið af þessu í ríkissjóð; okkar eigin vasa ??? Og til bæjarfélaga þar sem skipin eru skráð og eiga að fá sitt eftir því. Fer meira til okkar eða á Tortula ??? Það langar mig til að vita.
mbl.is Aflaverðmæti 12,6 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak ;))

Og ég vona að öll bæjarfélög á landinu drífi í að vera með í ár. Apríl er rétt svo hálfnaður. Held að með því að þetta verði að venju, 1 til 2 skipti á ári, þá lagist umgengin smám saman, vegna þess að þá verða fleiri á verðinum þegar aðrir sóða út á almannafæri. Þeir sem vilja vera sóðar, þurfa að láta það nægja að ganga þannig um heima hjá sér.

Margar hendur vinna létt verk, segir gamalt og gott máltæki.

Vala og þið sem komuð fram á RÚV, það væri fráært ef þið gætuð sett af stað áskorun á fleiri bæjarfélög og helst öll. Þið drífið sennilega hraðar í því en bæjarstjórnir hvort sem er ;)) Takk fyrir ykkar krafta sem við öll munum njóta góðs af, heimafólk sem og gestir.  Og svo vantar fleiri ruslafötur, það hefur vantað í áratugi og er því þverpólitískur trassaskapur.

Og víst ég er byjuð..það vantar tilfinnanlega kerfi eins og er t.d. i Svíþjóð og USA, sem bannar fólki að leggja bílum á vissum tímum, merkt vel með skiltum, svo hægt sé að sópa og snjóriðja götur reglulega. Sektir eru háar og flestum nægir að fá eina slíka, eftir það skerpist minnið til mikilla muna ! 


mbl.is Allir út með ruslapoka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tuð og þras

Er stórt vandamál VG að mínu mati. Og ósætti og úthrópanir, karp, þjóska, sólóleikir ofl í þeim dúr. Þeim skortir sárlega sú viska að halda ósætti og ágreiningi bakvið tjöldin. Þeir sem eru í stjórnmálaflokk eiga að verja hver annan með kjafti og klóm útávið; vera eins og öflugustu verjendur. Sama á við um þá sem sitja saman í ríkisstjórn hverju sinni. Skortir vit á að halda kj þegar við á. 

Sjálfstæðisflokknum tekst almennt mjög vel að standa saman og koma fram sem einn útávið. Það er til fyrirmyndar. Ekki veit ég hversu oft þeir eru ósammala hver öðrum en ég reikna með að það gerist þar eins og í öllum öðrum hópum. Enda nenna fáir að hlusta á rifrildi flokksfélaga og stjórnarliða úr ræðupúlti Alþingis eða í fjölmiðlum, ekki frekar en maður nennir eða vill hlusta á hjónaerjur í fermingarveislum, brúðkaupum, jarðarförum eða í jólaboðum. 

Aðalatriði er hvernig hlutir eru sagðir. Þar bregst VG of oft bogalistin. Þetta er svipað og með söngvara sem gengur vel og svo þeim sem eru ekki eins vinsælir. Röddin, framkoman, útlit vegur þyngst, texti laganna eru í raun aukatatriði. Reyndar er það ekki alveg eins með stjórnmál, en innihladið kemst ekki til skila, sé flutningurinn arfa slakur og leiðingur og hvað þá þegar hann er móðgandi og dónalegur og fúkyrðakenndur. Að sætta mál og vera sáttasemjarar og málamiðlarar eru kostir sem þarf að hafa til að ná betri árangri og ná málum í gegn.Smellið ykkur á námskeið, t.d.  hjá Dale Carnegie !! ;)) Áður en þið tuðið ykkur úr stjórnmálum, þeas ef þið viljið vera áfram. Undir ykkur sjálfum komið að stærstum hluta. Traust og virðing gagnvart  Alþingi mun eftir slíkt námskeið rjúka mun hraðar upp en bensínverðið !!  Það er ég sannfærð um ;)) 


mbl.is Telur að fylgið muni skila sér aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjúkir í ræðupúlti

Og gleyma sér smá stund og fá eitt og annað lánað á heimleið...?

Hvernig ætli þetta sé hjá okkur ? Er áfengi í Alþingi okkar og er mikið um þjófnað þar ?

Ætti að vera létt fyrir þá í Bretaveldi að hafa eftirlitsmyndavélar um alla ganga, svona eins og um allt samfélagið þar sem á heimsmet í eftirlitsmyndavélum. Það er gott að hafa í huga hverjir eru í aðstöðu til að vera með langa fingur, líkt og með bankana okkar. Það er skondið hvað paranójan er mest á utanaðakomandi þegar léttast er að gera svona lagað innanfrá. 


mbl.is Bjórtunnum stolið úr breska þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátu bankarnir ekki lánað ?

Eða ríkið/ við, bara keypt fyrirtækið á brunaútsölu, enda verðlítið með svona miklar skuldir ?

Af hverju komast menn upp með það ítrekað að fara af stað með ævintýralegar fjárfestingar og stækka allt uppá von og óvon hvort samþykkt hefði verið að virkja eða ekki  ? Gera þau það vegna þess að þau treysta blint á að ríkið hlaupi undir bagga í hvert sinn sem á móti blæs ? Vitandi að þeir halda samt fyrirtækjum sínum, góðum launum og hlunnindum og þessvegna gróða ef út næst.

Auðvitað þurfum við hafa netið gangandi. En sé þetta þannig áhætturesktur og erfitt að reka þetta í svo litlu landi með hagnaði, þá skil ég ekki af hverju þetta fékkst samþykkt til að byrja með. Það er stundum eins og ríkið vilji læðast bakdyrameginn inn í ýmsan ,,einkarekstur". Sem er of oft þannig að innkoman er hirt í einu lagi svona næstum því og öllu tapi dömpað í fang okkar.

Og svo væri eðlilegt að upplýst hefði verið til hvað margra ára þjónustusamningur var gerður og hvort það eru rúmar 300 milljónir árlega sem styrkja á Farice. Og svo á endanum verður það skuldlaust, hver veit. Og þá er hægt að selja það og fá alla ríkisstyrkina tilbaka...arg!

 

 


mbl.is Fjarskipti við útlönd voru í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mýta eða staðreynd ?

Lengi hefur verið sagt að landsbyggðin haldi okkur uppi. Ég amk hef oft heyrt það.

Er það rétt ? Eða var það rétt þegar meiri kvóti sat enn eftir á landbyggðinni ? (áður en hann var seldur burt víða). Eða er það staðreynd að landsbyggðin skili enn mestu inn í samneysluna ???

Fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur hefur nýlega sagt að það séu litlar tekjur sem berist bæjarsjóði vegna veiða. Er það rétt ? hefur það breyst frá því sem var ???

Kæra fjölmiðlafólk: finnið út úr þessu og birtið tölur yfir skattgreiðslur einstaklinga og lögaðila til ríkissjóðs og samanburð við einstaklinga og fyrirtæki á höfðuborgarsvæðinu. Ár fyrir ár ef hægt er, og nógu langt tilbaka svo það sjáist hvernig þetta var á meðan meiri kvóti var enn á landsbyggðinni. Vel má vera að einhverntímann hafi slíkur samanburður verið birtur en ég man ekki eftir því og það væri þá amk gott að endurbirta slikar tölur núna. Sýnist full þörf á því eftir orð Alþingismannsins. Takk ;)) 

 


mbl.is Allt á suðupunkti á fundi VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Youtube

Má ekki bara skella þessu á youtube, svo það sjáist hverjir vilja kaupa ? Þeir eru augljóslega ekki á móti vændi svo ekki ætti að vera nokkur skömm af...

Nú eða bara til að gæta jafnræðis. Það var sýnt um árið í Kompás að mig minnir, myndbrot af amk einum manni ( eða fleirum, man ekki alveg) þegar viðkomandi reyndi að hitta barn.

Bæði er bannað með lögum.


mbl.is Vændiskaup með falinni myndavél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingabók #2

Eða backup fyrir Hagstofuna..svei mér þá, þetta eru svakalegar tölur, vantar einungis allra yngstu börnin til að ná öllum Íslendingum á skrá lögreglu.. ;))

Næstum 20 þúsund lögaðilar, af hvað mörgum ætli það sé ?

Erum við svona svakalega óþekk þjóð; bæði fólk og fyrirtæki ? Er nema von að hér þegi svo margir þegar verið er að rannsaka mál hér, t.d. hrunið, það hafa kannski svo margir eitthvað á aðra á móti..?

Fróðlegt væri að vita hversu margir hafa verið kærðir af þessum heildartölum , þá bæði einstaklingar og svo fyrirtæki.


mbl.is 325 þúsund nöfn í málaskrá lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband