Hvað varð um biðlistana ?

Talsvert hefur, í gegnum tíðina, verið fjallað um ófremdarástand í fangelsimálum og að dæmt fólk þurfi að bíða of lengi eftir að hefja afplánun. Sem er vissulega slæmt.

Eru engir biðlistar lengur ? Eða er það bara á Litla Hrauni ? Eða skiptir máli hver á í hlut sem á að fara í afplánun og aðrir settir aftar í röðina ? Er það svo að það er gerður mannamunur allsstaðar, jafnt utan sem innan rimla ?

Við búum jú í jafnræðisþjóðfélagi svo þetta þarf að koma fram að mínu mati. Þannig að endilega þeir sem hafa beðið lengur eftir afplánun á þessum tveimur stöðum sem hér eru nefndir, látið í ykkur heyra !!

Vil taka sérstaklega fram að þetta er ekki persónulegt gagnvart þeim einstakling sem hér er fjallað um. Það er gott að hann kemst strax að , hafi hann óskað þess. Þannig á það að vera...gagnvart öllum sem fá dóma.

 


mbl.is Baldur hefur hafið afplánun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð í spariföt

Þetta myndi flokkast sem hvítblibbabrot reikna ég með, verði hann dæmdur sekur.

En af hverju eru orðin sett í jafn fín og flott föt og stöðu eins og þeir sem þau fremja eða eru sakaðir um að fremja þau ?

Heitir þetta ekki bara þjófnaður, stuldur eða rán ?

(meintur í þessu tilfelli, enda ekki búið að dæma í málinu og hann er saklaus á meðan).

Eða á það bara við um kjúklinga og klukkur, þegar því er stolið ? Kannski að slíkir þjófar þyrftu bara að hafa vit á að koma við í Dressman áður , þá verður allt orðalag í fréttum og dómum fínna um leið...lengi lifi jafnræðið... ;))

En er eftirlitið í HÍ nógu gott ? Það er verið að tala um 5 ára tímabil. Það er mjög langur tími.


mbl.is Dró sér 8-9 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunveruleg staða

Er það virkilega svo að matsfyrirtækin vita ekki raunverulega stöðu ?

Af hverju vissi Seðlabankinn meira en þau gerðu ? Hvernig vissi Seðlabankinn það ?

Eru matsfyrirtækin bara eins og endurskoðendur, kvitta bara blint á það sem fyrir þau er lagt , án þess að biðja um skjöl ? Það væri nú svakalegt ef skólakerfið virkaði með slíkum hætti, að nemendur láti bara kennara kvitta uppá einkunnir sínar, A+ í hvert sinn ;)) Vona að það sé ekki þannig, amk ekki á háskólastigi í hagfræði og viðskiptafræði...

En svo endaði það nú á þvi að matsfyrirtækin lækkuðu einkunnir bankanna. Hver kjaftaði þá í þau, víst Seðlabankinn gerði það ekki ? Af hverju bakkaði Seðlabankinn með hótanir sínar ? Er betra að saka ríkið um fall bankanna með aðgerðarleysi en aðgerðum ?

Afar hálkæringslegt innlegg hér... að sjálfsögðu ;))


mbl.is Íhuguðu að hóta bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsaakstur

Í umferðinni er í raun einungis vandamál bílstjóra sem slíkt stunda. Og vissulega eru það viss hættumerki gagnvart öðrum vegfarendum, þegar fólk keyrir of hratt.  Kannski að við ættum bara að hætta að stoppa þá ?

Nú eða að setja lögguna í að fylgjast með ofsaakstri bankanna ? Það gengi sennilega betur. Þeir svipta menn á staðnum og beita fjársektum.

En endilega ekki að svissa og setja bankaeftirlitið á götuna að fylgjast með umferðinni. Vá hvað þá yrði keyrt hratt án afskipta.


mbl.is „Alltaf hættumerki þegar það gerist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný göt

,,þá koma bara ný göt"

Sagði framkvæmdastjóri Samtaka Ativnnulífssins í fréttum RÚV í gærkvöld, þá staddur í húsakynnum Alþingis. Eins og ef ekki neitt væri sjálfsagðara. Saknaði þess að fréttamaður hafi ekki spurt hann nánar. Eru götin vísvitandi búin til ? Heitir það ,, einbeittur b....... " ? Það er semsagt bara kanski algjör tímasóun að reyna að setja lög í landinu. 

Hvernig getum við vitað með vissu að eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum virki betur en önnur eftirlit í landinu ? Tók næstum 4 ár að finna lekann með þessu öfluga eftirliti ? Hvað hefði það tekið langan tíma með slöku eftirliti ? Hversu margir sinna eftirlitinu og hvernig fer það fram ?


mbl.is Lög um gjaldeyrishöft hert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondið

Að byrja með nýjan stjórnmálaflokk og hafa svo ekki 50/50 kynjahlutfall í stjórn. Ekki byrjar það vel. Eitthvað hefði heyrst ef þetta hefðu allt verið karlar. Og svo á að skikka fyrirtæki landsins ( með réttu eða röngu) að jafna hlut kynjanna í stjórnum. Gangi samtöðu vel með að fylgja því eftir, komist þau í næstu ríkisstjórn eins og útlit er fyrir samkvæmt skoðanakönnunum, muni ég það rétt.
mbl.is Konur í stjórn Samstöðu í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,ýmsir aðilar"

Hverjir eru þeir ? Eru þetta Íslendingar sem eru að að gefa út þessi bréf og þar með að halda áfram að skemma landið okkar. Eins og það sé ekki nógu laskað fyrir. Og erlendu aðilarnir...eru það alvöru erlendir aðilar eða plat ? Sem eru þá Íslendingar með fansý útlensk nöfn á ,fyrirtækjum" í útlöndum ?

Þetta langar mig til að vita.


mbl.is Reynt að setja undir leka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk

Landsbjörg fyrir björgun ykkar og vonandi að maðurinn sem bjargað var líði vel ;)
mbl.is Mannbjörg í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Airport Art

Er það sem vantar alveg og ég vona að komi. Sá það fyrir mér þegar ég beið þarna haustið 2008 og horfði á gráa hráa og tóma veggi. Það má vel vera að þeir líti betur út í dag. Öllum þeim sem ég hef nefnt þetta við þykir þetta tilvalið. Hvar er þægilegra að skoða listaverk en á flugvelli, þegar við gerum lítið annað en að bíða, hvort sem það eru Íslendingar eða ferðamenn sem í hlut eiga ?

Tel að þetta yrði upplagt fyrir íslenska myndlist sem og fyrir lánsverk erlendra meistara. Verk eftir Monet voru t.d. lánuð til USA í vetur, Dali verk ferðast víða.  Ísland liggur svo vel á milli USA og Evrópu eins og við vitum og svo hefur Harpan bæst við. Beint flug frá helstu borgum í báðum heimsálfum. Svo hversvegna ætti fólk ekki að kíkja hingað, eins og annað,  í flotta tónlistarviðburði í hörpuna og myndlistarsýningu á Leifsstöð yfir eina helgi að vetrarlagi ? Allt til alls, nóg af veggjum , næg öryggisgæsla og nóg af fólki !

 Þannig mætti fjölga ferðamönnum eins og þörf er á. Og hugsanlega annan markhóp en þann sem kemur að sumri ? Allt hjálpast að. Þetta er klárlega eitt af því.  Læt þetta nægja, gæti skrifað heila bók um þetta, svo mikið hef ég hugsað um " Ariport Art" á Íslandi ;))


mbl.is Mikil ásókn í að komast inn í Fríhöfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tottskúrar

Já, það er vel hugsað um ,,hamingjusömu hórurnar " í Zürich.

Hvað segir vinnueftirlitið þar í borg ? Vottað: fínt og hlýtt og notalegt... ? Eða verður meira lagt uppúr því að ,,vinnuskúrarnir" verði pottþétt reyklausir ?

Um að gera að loka augunum fyrir vandanum í lokuðum skúrum. Þá hverfur hann sennilega um leið. Skítt með aukið mansal í heiminum. Sorgleg niðurstaða kosninga ;(

Kannski að þeir komi upp bílaþvottastöð á sama svæði, svo kaupendur fái:

,,Tott og þvott um leið á aðeins 5 mínútunum" 

Þægilegt: ,, elskan mín, ég ætla bara rétt að skjótast í tott, nei ég meinti með bílinn í þvott.."

Oj bara !


mbl.is 53% sögðu „já“ við vændisbílskúrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband