11.3.2012 | 17:23
Innrás
Er nema von að fólki hafi brugðið við "Back to the Future" senu, að 2007 Víkingarnir okkar væru mættir á ný á þyrlunum ,,sínum" ...í þetta inn í innrás með Tortula Dollarana sína í farteskinu..oh my God ;)
En hvernig er það, mega Rússar kaupa jarðir hér ? Hver veit það ...?
Ef svo, munum við þá leyfa þeim að kaupa eða hrekja þá á brott með öllum ráðum tiltækum, þrátt fyrir allt tal um nauðsyn erlendrar fjárfestingar ?
![]() |
Lentu þyrlu á bílastæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.3.2012 | 16:39
Sköpunarkraftur
Þjóðarinnar er magnaður. Hér er enn eitt dæmið um það. Alvöru tækifæri til að fjárfesta í , ekki neitt loft ! Ég elska og dáist að öllu þessu frábæra fólki sem við eigum í hinum ýmsu listgreinum. Styðjum vel við bakið á öllu okkar skapandi fólki.
Gangi þeim öllum vel ;))
![]() |
Hlutu vöruhönnunarverðlaun Grapevine |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2012 | 15:19
Má engu breyta, þegar á reynir ?
Eða skiptir bara máli að ,,rétta " fólkið geri það ?
Þeir sem sitja í Stjórnlagaráði buðu sig fram og það mátti hver sem er gera sem hafði náð 18 ára aldri muni ég það rétt. Svo var kosið og það fólk hefur haft það verkefni að koma með tillögur að nýrri Stjórnarskrá sem búið er að tala um að vanti í áratugi. Og þjóðin á síðan að ég vona amk , að fá að kjósa um þessar breytingar. Má vera að LMFÍ sjái þessu allt til foráttu að hluta til vegna þess að lögfræðingar einir áttu að fá launin fyrir að vinna breytingarnar ?
Það stangast pínu á hvað það er tuðað mikið um allt milli himins og jarðar og þess krafist með réttu að nýtt Ísland rísi úr sæ. Leyfum því að gerast og slökum aðeins á með tuðið í hvert sinn sem einhverju er reynt að breyta ! Please.
![]() |
Stjórnlagaráð lýkur störfum í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2012 | 14:39
Skemmtileg hugmynd
Með þessa lyklakippu og það væri gaman að vita hver hannaði hana. Einhver sem veit ?
Og gangi átakið sem best.
Loksins að augu okkar eru opnuð fyrir því að karlmenn þurfa , eins og konur, reglubundið tékk og þó fyrr hefði verið. Það hefur hallað á hlut karla hvað þetta varðar og spurning að sameina átökin ? Eða skipta því sem safnast jafnt á milli kynja...svona í allri jafnréttisumræðunni.. ;)
![]() |
8,2 milljónir safnast í Mottumars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2012 | 13:05
Englahópurinn stækkar
Hrunið var engum að kenna, enginn gat gert neitt og allir saklausir. Ekki ráðamönnum um að kenna, ekki Seðlabankanum, ekki FME, ekki bönkunum, ekki Víkingunum og ekki heldur þeim sem endurskoðuðu.
En hverjum var þá ,,velgegninni" að þakka ? Sennilega engum, það hefur þá líka verið á autopilot.
Merkilegt hvað þetta algjöra hrun haustið 2008 var algjörlega sjálfvirkt; á autopilot. Vá hvað hrunið hefði orðið svakalega miklu verra ef einhver hefði gert einhver mistök, áts ! Eins gott að við eigum bara fullkomið fólk sem kann allt, veit allt, skilir allt og gerir ávallt allt rétt og löglegt.. ;)) Mikið megum við vera þakklát með það. Það eru jú bara skúrkar í útlöndum eins og við vitum. Já og í bíómyndunum líka.
Það hefði ekki þurft nein ofurlaun , þetta gerðist allt sjálfkrafa hvort sem er, bæði ,, velgengnin" og hrunið. Bjánar vorum við að trúa því að ofurlaun tryggðu okkur súperheila í hverri stöðu...allt sem þurfti var einn autopilot takki. Ætli hann sé enn á " ON" ?
En við búum í réttarríki þar sem fólk er saklaust þar til og ef sekt sannast, sem betur fer. Ekki ætla ég að reyna að kveða upp dóm, enda ekki mitt að gera það. En þetta fer nú samt að verða pínu pons grunsamlegt mál, þetta blessaða hrun sem enginn er sekur af, þykir mér í hálfkæringi ;)
![]() |
PwC hafnar málatilbúnaði bankana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2012 | 10:35
Frábært að heyra
![]() |
Meiri peningar til kynningar á kúnst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2012 | 09:00
50% eineigðir
Svona næstum því amk. Þetta er svakalega hátt hlutfall. Mér þykir það nú hafa verið þannig að það hafi verið einn og einn sem var eineigður.
Hvernig var þetta fyrir haustið 2008 ? Væri hægt að fá einhverskonar ,,bílljósavísitölu" síðust 10 árin eða svo, birta ? Það ættu skoðanastöðvar að hafa upplýsingar um. Er þetta ein af mörgum birtingarmyndum þess að fólk er illa stadd fjárhagslega ? Eða er bara verið að veita þessu athygli núna ? Hvað kostar að skipta um perur eða það sem þarf til að laga þetta ? Þetta langar mig að vita.
Oft þarf nefnilega að skipta um allt ljósið. En það er gott að lögreglan ætlar ekki að sekta að sinni. En þetta þarf þó að lagast til að gæta öryggis í umferðinni, hvort sem kemur til sekta eða ekki ;)
![]() |
Margir eineygðir í umferðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2012 | 19:59
Gjaldmiðils Menu ?
Er það virkilega þannig að það sé bara undir okkur komið hvaða gjaldmiðil við veljum ? Bara eins og að setjast inná á næsta veitingahús og velja gjaldmiðil og svo aðalréttinn á eftir og vínið með ? Vá, ef þetta er svona auðvelt, eftir hverju er þá verið að bíða ?
Hafa t.d. Svíar ekki neitt um þetta að segja ? Einn daginn er það Evra, næsta US $, næst Kanada $...hvað með að klippa 2 núll af krónunni okkar aftur ? Hverju gleymi ég ? Listinn er langur yfir þá möguleika sem fram hafa komið og allir eru með bestu töfralausnina til sölu fyrir kjósendur.
En að breyta bara útlitinu á blessaðri krónunni sem við eigum og sjá hvort heimurinn kaupi það um leið að hér sé búið að taka til í fjármálum banka, ríkis ofl. ? Hókus pókus, púff !
Væri ekki nær að bæta hagstjórnina ? Er það ekki sagt vera rót vandans hvort sem er ? Hagstjórn lagast ekki að sjálfu sér ekki frekar en fólk sem þarf að taka sig á með ofþyngd léttist ekki við það eitt að skipta McDonald´s út fyrir Burger King !
![]() |
Segir sænsku krónuna vænlegri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.3.2012 | 17:44
Tilraunum á fólki er ólokið og hvaðan koma 500 milljónir ?
Vona að þetta gangi allt upp hjá þeim en hvaða fólk er það sem býður sig fram í að prófa nýja lyfið ? Er það allt hér á landi og veit það af því , eða hvernig virkar þetta ? Og hvað ef tilraunir á fólki ganga ekki að óskum ? Hvað verður þá lyfið ?
500 milljónir, sem þeir segja að búið sé að tryggja í aukið hlutafé...hvaðan kemur það ? Eru bankarnir farnir að lána á ný ? Ef svo, þá hvaða bankar ? Og ef svo, verða þau þá sannanlega endurgreidd eða verða þau afskrifuð , gangi þetta ekki upp ? Hvaða tryggingar og veð eru til staðar, sé þetta lánsfé ?
Ég vona að fjölmiðlar spyrji um svona atriði eins og fjármögnun, það var ekki nógu mikið spurt fyrir hrun, eins og ef það væri aukatriði hvernig fyrirtæki fengu fjármuni. Og eins ef um ..erlenda aðila" er að ræða...hverjir væru það þá ?
![]() |
Lyfjaverksmiðja á Siglufirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.3.2012 | 16:02
Þvílík fegurð
![]() |
Augu heimsins á mynd frá Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)