Færsluflokkur: Bloggar

Óheillaland Íslandsvina ?

Mikið er þetta skrítið og leitt að heyra ;(  Fyrir stuttu síðan kom Tom Cruise hingað í sömu erindagjörðum, heim aftur til USA og púmm, eins og þruma úr heiðskýru lofti var hann skilinn.

Nú Russell Crowe. Þetta er bæði leitt og slæmt um leið fyrir orðspor landsins að ferðir hingað endi svo með hjónaskilnuðum. Hvað er málið ? Algjör tilviljun vona ég. Kannski eru fleiri Íslandsvinir sem hafa lent í því sama eftir að hafa verið hér ?  Man það ekki, en ég vona að listinn lengist ekki, svo það hafi ekki þau áhrif að hingað þori frægt fólk ekki að koma meir. Amk ekki þau sem eru gift. 


mbl.is Russell Crowe skilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér með verðtryggingu

Hér er fólki bolað burt til að aðrir geti svo leigt þeim það sama aftur. Með verðtrygginguna að vopni og stökkbreyttar greiðslur sem ekki fást leiðréttar.  Þar er fólki bolað burt af sömu ástæðu; ríkisvaldið hjálpar þeim að eignast meira sem nóg eiga en þurfa endalaust mikið. Hér eru skuldaeigendur í skjóli yfirvalda, alt fyrir þá gert.

Bara smá pæling....


mbl.is Fólk rekið af heimilum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorgmædd og reið

Að lesa þessa frétt ;(   Hvernig er hægt að skjóta svona fallega og yndislega fugla ? Hvað hafa þeir gert þeim sem skutu þá ? Ég er mjög leið og reið um leið. Svei ykkur sem skutuð þá, svei ykkur !!!

Hvítir fallegir fuglar, sem eru svo friðsælir og tryggir maka sínum lífið út. Kannski að sumt fólk eigi erfitt með að horfa á þá þessvegna; fólk sem ekki höndlar fegurð, frið og kærleik ?


mbl.is Sex svanir skotnir á Stokkseyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 tölvukerfi ástæðan ?

Þetta er einkennilegt og sorglegt mál og ég finn til með þessum unga Svía. Vonandi heldur hann amk fótleggin sínum og mun geta gengið án hjálpar. En útlit fótleggjarins mun án efa verða slæmt því miður fyrir hann. Og vonandi að það verði ekki lagt á hann í þokkabót, að fara fyrir dómstóla með mál sitt og eftir 10 ár fá smánarbætur eins og þekkjast hér á landi. 

Það væri þó fróðlegt að vita hvort hluti ástæðunnar sé sú að færndur okkar séu með yfir 100 mismunandi tölvukerfi sem hafa valdið því að maðurinn týndist ?

Og um leið hvort mistök í meðhöndlun og dauða sjúklinga hér á landi, megi rekja til þess hér heima.

Og oh my God ef nýtt háskólasjúkrahús sem Davíð Oddsson pantaði og enginn þorir að bakka með virðist vera, verður að veruleika eins og hvert annað álver í hjarta borgarinnar, hversu margir eigi eftir að týnast þar í því ferlíki og með yfir 100 tölvukerfum !!! Fyndið að tölvukerfin skuli vera álíka mörg og þær byggingar sem LSH starfar í og vill sameina í einn stóran klump. 


mbl.is Týndist á sænsku sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

50 þús.kr. kosningagjald ! Kommón !!!

Hef aldrei heyrt svona áður...er þetta eitthvað nýtt ? Og er flokksval sama og prófkjör ?

Hver veit ? 

Er ekki nokkuð langt gengið að rukka fólk fyrir að fá að kjósa ?

Held að það væri þá ráð fyrir þá sem ekki eiga 50.000.- krónur eða blöskrar það einfaldlega að vera rukkaðir fyrir að fá að kjósa í flokksvalinu hjá Samfylkingunni, að hunsa þá flokkinn algjörlega í næstu kosningum !!! 1/3 af atvinnuleysisbótum, svona ca. að ég held.

Fylgist flokkurinn ekki neitt með ástandinu í samfélaginu ? Eða gera þeir það og er bara alveg sama þó margir eigi erfitt og ná ekki endum saman með alltof lág laun eða bætur ?

Eru skoðanir og val þeirra sem meira eiga;  mikilvægara , betra , klárara og réttara ??? Og það í jafnaðarflokki...

Samfylkingin, eða fólkið í honum réttara sagt, talar nokkuð skýrt með þessum hætti þykir mér; að einungis þeir sem eigi peninga séu þess verðir að hlusta á og gera eitthvað fyrir. Aðrir skipti ekki máli. Ég á ekki orð yfir Samfylkinguna  að rukka fólk fyrir að kjósa á netinu !!! Þó það væri bara 10 kall. 


mbl.is Val á lista bundið við flokksfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sviðsett kosningatrikk ?

Til að búa til samúð og ná atkvæðum útá það ? Vona ekki, en maður veit aldrei hvað mönnum lætur sér detta í hug til að ná kjöri. Hann á jú á brattann að sækja gegn Romney.
mbl.is Skotið á kosningaskrifstofu Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komdu aftur Hemmi ;)

Ég hélt fyrst að Hemmi væri að byrja aftur með þættina sýna; yrði comeback uppá ameríska vísu.

En því miður, upprifjun og þá skildi ég af hverju nafnið á þættinum var ekki alveg það sama. Gaman að sjábrot úr þáttunum, en þvílíkt svekkelsi. Að Þórhalli ólöstuðum. 

Hemmi Gunn : Komdu aftur á skjáinn með þættina þína, plís ;) Og breyttu engu, hafðu allt eins og það var, það virkaði vel og því engin þörf á að breyta, plús það að fólki líkar upp til hópa við það sem það kannast við, sér í lagi á erfiðum tímum eins og eftir hrunið 2008. Að þú komir aftur með þættina þína, mun án efa skipta miklu máli í bataferli þjóðarinnar. Í alvörunni. 

Og RÚV : Bjóðið honum að koma aftur með eigin þætti, þá beint í kjölfar þessarar upprifjunar. Það þarf að hafa sans fyrir því hvað fólk vill horfa á og halda í óbreytt snið á þáttum og stjórnendum sem áhorfendum líkar við. Eins og þeir hafa vit á að gera í USA ;))

Þessir þættir voru svo jákvæðir og skemmtilegt léttmeti Smileakkúrat það sem þjóðarsálin þarf á að halda í öllu þessu endalausa argaþrasi.

 


mbl.is Hemmi beint á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna þarf flokkaflakk

Vilji kjörnir fulltrúar ekki sitja fyrir þann flokk sem þeir náðu kjöri úta, þurfa þeir einfaldlega að segja af sér og leyfa varamanni að taka við. Hugsið ykkur ef þetta væri eins í fótboltanum !!! Ef hægt væri að gera félagabreytingu í miðjum leik , kommón !

Og hvernig eiga svo kjósendur Bjartrar framtíðar að geta treyst því að hann hoppi ekki af þeirri lest í miðjum klíðum líka ???


mbl.is Róbert til liðs við Bjarta framtíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er GÞÞ eins í einkalífinu ?

Að taka alltaf upp veskið og vera kosý, því annars gæti einhverjum þótt hann leiðinlegur og púkó og vilja ekki vera memm ? Kallast að neyðast til að kaupa sér vini...

Eða var léttara að forðast að vera ,,leiðinlegi gaurinn " á kostnað OR ???? Og kannski víðar en í OR ??? Einkennilegt að vera í stjórnmálum og stjórnum fyrirtækja og þora ekki að segja nei !  


mbl.is Erfitt að vera leiðinlegi maðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna þeim 3 og járna !!!

Er það sem þarf að gera. Það þurfa að vera lög sem skylda þá til að svara.  Það var ekki verið að bjóða þeim í tesopa. Þetta er ekki boðlegt !!!

Hvað hafa þeir að fela ??????? Við hvað eru þeir hræddir, eins klárir og þeir þóttust vera í að reka fyrirtæki ?????

Svei þeim gunguhátturinn, svei þeim ! Og einnig löggjafanum að hafa ekki lög sem skylda menn til að svara !!!! Það þarf að setja slík lög í hvelli og sækja þá 3 og láta þá svara og birta svo viðbót við skýrsluna. Mæti þeir ekki, þarf að vera til staðar háar fjársektir og heimild til að setja menn í varðhald, þar til þeir vilja svara. Hvað rugl er að menn megi afþakka að svara og hvað varð um ábyrgðina sem réttlætti há laun þeirra ?????? Ég er ekki refsiglöð né hlynnt fangelsum eða neinu í þá veru, en þetta þarf samr að gera með þessa 3 karla og það strax ! 


mbl.is Hjörleifur svaraði nefndinni ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband