Færsluflokkur: Bloggar
17.10.2012 | 12:55
Vantar mannverndarsamtök
Meðhöndlaður eins og skepna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2012 | 10:54
Aftur til Köpen, plís ;)
Það hefur hækkað uppúr öllu valdi, flug til Köpen eftir að WOW tók sér vetrarfrí, svo plís Skúli, endurskoðaðu það , svo hinir lækki þá sín verð, þó það væri bara fáar ferðir.
Svo ég gríp tækifærið hér með sem kona og reyni að hafa áhrif á ákvarðanir þínar með WOW ...
Konurnar yfirtaka líf Skúla Mogensen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2012 | 10:29
Það vantar ummælin !!!
Búin að spila myndbrotið 2 skipti og heyri ekki neitt minnst á þessar möppur með nöfnum kvenna sem gætu komið til greina í þau störf sem hann talar um.
Mbl.is kippir því vonandi í liðinn ;) Eða ef einhver gæti verið mér svo góður og sagt mér á hvaða sekúndu þau er að finna, ef þau hafa samt farið fram hjá mér , takk
Möppur fullar af konum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.10.2012 | 08:21
Á fólk að keyra og henda ?
Og nota orkuna sem sparast í rafmagn, til að auka hagnað olíufélaga í staðinn og menga um leið, jafnmikið eða jafnvel meira ?
Ég á erfitt með að sjá þetta raunhæft í framkvæmd, ef það á að þurfa að keyra á þær fáu endurvinnslustöðvar sem eru hér, með hverja einustu blessaða sprungnu sparperu. RÁNDÝRAR og það væri gott að vita hversvegna í ósköpunum það er ?? Er það eitthvert samkomulag við framleiðendur, þar sem þeir munu selja færri perur, svo þeir haldi sömu innkomu ?? Ráðamenn þurfa að finna lausn á því, eða hunsa bannið með einhverjum hætti. Þetta gengur ekki upp svona.
Þó svo þær eigi að duga lengur, þá duga þær ekki endalaust og ekki má henda þeim með heimilssorpi og það er ekki þannig að fólk hafi séns á að henda þeim í göngufjarlægð frá heimilum sínum. Jafnvel þó svo væri...það er fólk sem er ekki tilbúið til að labba nokkur skref með ruslið á sinn stað og margir sem ekki geta það.
Og hvernig á fólk að hreinsa upp ef þær brotna, víst ekki má ryksuga né sópa ??? Er eiginlega hissa á að það hafi verið samþykkt að framleiða og selja svo baneitraða og hættulega vöru, ætlaða til heimilisnota !!! Svona þegar ég hugsa það aðeins núna.
En það kemur einnig fram að það sé bannað að selja og dreifa glóperum....en má þá semsagt framleiða þær áfram ??? Ef svo, hvaða lönd fá þá að kaupa áfram...svona svo maður geti þá smellt sér þangað í fríum og komið heim með fullt af venjulegum ljósaperum Eða yrði maður þá járnaður og sektaður á Leifsstöð og hent í tukthúsið með kertaljósi eða bara kannski olíulukt.. ??
Hvorki má nota kúst né ryksugu á kvikasilfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2012 | 23:34
Veðja á
Að þessi frétt verður númer 1 yfir mest lesið á mbl.is áður en við vitum af
Og svo er svo skrítið að í gegnum tíðina, eins og ég man það, að ef það hafa verið fallegar og heilbrigðar ástarsenur í myndum í tv, þá hafa þær oftar en ekki verið bannaðar, eins og hvert annað feimnismál og huss, huss.
Held það sé ekki rétt að banna ungu fólki að horfa á það sem flest okkar myndu kalla heilbrigða og fallega ást. Mætti amk endurskoða það. Og svo hef ég lengi vorkennt söngvurum að þurfa að vera hálfnaktir til að ná athygli áhorfenda.
Klámiðnaðurinn niðurlægir konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
16.10.2012 | 19:55
Hverrar krónu virði
Og ég er fegin að þetta var gert og niðurstaða fékkst. Þá er hægt að leggja það í fortíðina og halda áfram, fyrir samfélagið og fyrir fyrrverandi Forsætisráðherra um leið. Skiptar skoðanir hafa verið dómstólinn og niðurstöðu hans, en það er erfitt að ná sátt um alla dóma, eða flest alla í það minnsta, svo það hefði aldrei fengist niðurstaða sem 100% sátt hefði orðið um hvort sem var. Persónulega hefði ég viljað sjá aðra útkomu, en ég hef náð sáttum við útkomuna eins og hún var og áttað mig á að lengra verður ekki farið með hlut ráðherra í hruninu. Það þarf að gleyma og fyrirgefa, við erum svo fámenn að annað er ekki hægt og reyna að muna, þó oft sé það erfitt, að þau eru öll mennsk með sína kosti og galla eins og við öll hin ;)))
Hitt er annað að mér þykir vanta að vita meira með þennan kostnað. Hvað hefðu þeir dómendur og starfsmenn við dómstólinn kostað okkur hvort sem var ? Eða er sá kostnaður sem hér um ræðir allt í auka/ næturvinnu fyrir þá sem unnu að málinu ??? Þetta þykir mér þurfa að koma skýrar fram, amk er ég ekki alveg tilbúin að kaupa það hér og nú, að þetta hafi verið einungis vegna þessarar vinnu. Ef svo, þá þarf einnig betri sundurliðun; fjölda starfsmanna og laun per tíma og vinnufjölda, og þá með góðum rökstuðningi með, því upphæðin er svakalega há og mun hærri en ég hefði giskað á. Mér brá við að lesa fyrirsögnina.
Og til framtíðar litið, mun þetta hafa talsverð áhrif án minnsta vafa. Fyrir ráðamenn núverandi og framtíðar ( og Þingheim allan) að vanda betur til aðgerða og gæta að því að sofna ekki á verðinum og vera duglegri að spyrja gagnýninna spurninga innan starfsliðs síns og kalla eftir upplýsingum sem þarf og draga í efa það sem þarf og þegar. Láta ekki plata sig blákallt ogvafalaust ;)) Og ég vona að ráðamönnum framtíðar lærist að oft er allt sem þjóðin þarf er að heyra af einlægni : ,,Afsakið og fyrirgefið, mér urðu á mistök". Það hefði sennilegast nægt ráðherrunum sem voru við völd í október 2008 og það hefði sparað mikla reiði, hrun á trausti, tíma og fjármuni. Og það kostar ekki krónu að nota þessi mikilvægu og allt of mikið spöruðu orð , bæði hjá þeim og upp til hópa. Það er það kómíska og sorglega um leið.
Fyrir fjölmiðlafólk að gera slíkt hið sama.Eitt af því er að hætta að birta fréttatilkynningar hikstalaust , eins og um heilagan sannleik væri að ræða. Ekki kaupa allt svo möglulaust og það þarf að lagast enn betur hvað gagnýnar spurningar varðar og t.d. þarf fjölmiðlafólk að fá leyfi til að vinna vinnu sína, án þess að missa vinnu sína. Spyrja t.d. þá sem eru nú að fjárfesta; hvar fékkstu peninga fyrir þessu ???? Það er ekki gert svo ég sjái nógu mikið af amk. og verður lífsnauðslynlega að breytast. Fái menn lán í banka fyrir risakaupum á fyrirtæki, biðja þá um að skoða lánasamninga, lántakar eiga að mega það , þó bankar beri fyrir sig bankaleynd.
Og fyrir almenning, að láta ekki framar bjóða sér það sem hér hefur tíðkast ;þöggun og allt undir mottum eða ofan í skúffum og huss, huss. Svo enn og aftur, þetta var há upphæð vissulega í öllu árferði og sér í lagi núna, en hverrar krónu virði og varð að gerast. Má líta á þennan kostnað sem mikilvæga fjárfestingu fyrir samfélagið inní ókomna framtíð Eftir að þessu máli lauk, var næstum hægt að finna hvað spennan í samfélaginu minnkaði; eins og ef stungið hefði verið á risa-stóra blöðru, hjúkket að þetta er búið sem ekki var hjá komist að yrði farið í !!!
Og það er mín einlæga ósk frá hjartanu mínu og von að samfélag okkar verði betra á allan hátt. Þó svo þetta taki allt saman mikinn tíma og kosti mikið. Það var svo margt að , þessvegna varð hrunið svo svakalegt á öllum sviðum, ekki bara hvað peninga varðar, heldur traustið sem molnaði alveg í mjöl. Og einnig vona ég að ráðamenn framtiðar átti sig á því að þeir eru að vinna fyrir okkur; þeir eru til fyrir okkur í að þjónusta okkur og hag landsins, en ekki við þeim eða þeir sínum eigin hag. Og að þeir átti sig á því að þjóðin mun ekki láta bjóða sér uppá neitt annað en það allra besta, eins og við eigum svo sannarlega skilið ;)) Þetta ár, 2012, er það ár sem verður minnst sem uppgjörs-og vendipunktsárinu og eftir þetta ár mun allt fara áfram og upp og á við og uppbygging á trausti og öllu öðru sem hér hrundi, mun hefjast. Það er ég fullviss um
117 milljónir fyrir landsdóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.10.2012 | 16:45
Traustur bakhjarl bankanna ;)
Lögbann ekki sett á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.10.2012 | 15:35
Af hverju þarf hún að hætta í stjórnum ?
Veit ekki hvaða stjórnum hún situr í nú, það kemur ekki skýrt fram þykir mér. Og veit ekki hvort þau fyrirtæki skarist eitthvað á við það starf sem hún er nú ráðin til. En þurfa karlar almennt að hætta í stjórnum fyrirtækja, þó þeir fái ágætis störf, eins og nú með Ragnhildi ? Fær hún það launatap bætt upp í nýju starfi ?
Leyfist körlum oftar en konum, að vera í mörgum störfum á sama tíma ????? Og fá laun fyrir þau öll á sama tíma... mér finnst eins og það sé svo oft þannig, að karlar megi vera á mörgum stöðum á sama tíma..
Ragnhildur færir sig til Landsbankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2012 | 12:31
Fasta krónutöluálagningu
T.d. 10 krónur og endurskoða það svo þegar það koma betri tímar og sterkari króna ;)) Og hætta þessu stússi með að hækka og lækka margsinnis yfir daginn...hvernig á fólk að ná að finna út á mínútumillibili hvar er ódýrast að tanka hverju sinni ?
Væri það ekki bara upplagt ráð fyrir olíufélögin ? Það fylgir ekki fréttinni hvort olífélögin hafi tapað krónum per líter á sama tíma og þykir mér fréttin lögð þannig upp að samúðin eigi að fara til þeirra, líka þeirra sem hafa fengið milljarða afskrifaða og dömpað yfir línuna. Ef þetta er svona skelfilegur bransi...af hverju eru menn þá að standa í þessum buisness ???
Og að andúðin eigi að fara til vondra yfirvalda sem þurfa að reyna að bjarga því sem örfáir skemmdu hér í hruninu, með aðgerðum sínum eða /og aðgerðarleysi.
Þó svo olíufélögum sé hér stillt upp sem fórnfúsum örlátum góðmennum, þá þýðir ekki að lækkuð % hafi sjálfkrafa skilað þeim færri krónum í kassann.
Þannig skil ég þessa frétt amk.
Bensín hækkað um 80% síðan 2009 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2012 | 08:24
Unprofessional hroki
Af fólki sem vill láta til sín taka í stjórnmálum að tala með þeim hætti sem þau gera; ,,hrægammar með froðukrónur" Hallærislegt og púkó og ég spái því að þau ná ekki manni á þing. Að auki, hvernig ætla þau að sigta þá út ? Það er eitt hvort svona sé talað um þann hóp manna sem fólk álitur ábyrgt fyrir því sem hér gerðist fyrir 4 árum, eða hvort þetta sé sett fram í ályktun frá stjórnmálaflokki.
Munu þau þora að horfa í augun á þeim sem þau vísa til, og segja beint við það fólk / eða þá menn reikna ég með: ,, þú ert hrægammur " ???? Eru þau tilbúin með lista yfir þá sem þau eru að vísa til ? Eða á þetta bara að vera gisk og koma í ljós eftir að þau komast á þing, eins og þau halda að gerist með slíku orðalagi ???
Þau byrja ekki vel og fá því falleinkun mína hér með.
Samstaða vill taka upp nýkrónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)