Dýrt torfhús

Hvernig má það vera að torfhús geti kostað 38 milljónir í byggingarkostnað ? Og bara fyrir ca. 80 m2 eða svo ? Torf og grjót og smá viður. 

Hvernig fór fólk að því, fátækt upp til hópa,  í aldanna rás að byggja sér hús sín með enga styrki og engin lán ? Slagar hátt í byggingakostnað eða gott betur nú eftir hrun,  á steyptu meðalstóru íbúðarhúsi með bílskúr !! Og innréttingum, og vatns-og rafmagnslögnum og ljósi í hverju herbergi og veggjum á milli þeirra. Sturtu, wc og vöskum.  

Annars vona ég að bókhaldið reddist og það læðist að manni sú tilfinning að vegna þess að Árni er að stússast í þessu, sé verið að reyna að gera þetta tortryggilegt, eins og það eigi að ætla honum,, vegna uppgerðrar fortíðar  sinnar, að hann sé að misfara með fé. Það þykir mér ekki fallegt ef væri. 

Burtséð frá bókhaldinu og Árna, þá gæti ég giskað á að meira fé myndi safnast til að færa þessa byggingu, heldur en að klára hana þar sem hún er núna. Að mönnum hafi dottið í hug að skyggja á þessa fallegu kirkjubyggingu og nóg pláss um allt, er ekki sérlega bright. Það má alveg setja eitthvað skilti við þessar fornminjar og svo að hafa byggt þetta fjær, svo það nyti sín og skyggði ekki á aðrar byggingar. 


mbl.is „Ámælisverður klaufaskapur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband