Ásta Ragnheiður Elín

Eins og fram hefur komið nýlega að REÁ sé kölluð sem grín ;)  Af hverju ætli það sé... ?

Annars þykir mér ekki fallegt að hafna afsökunarbeiðni. Sem er þó meira en þjóðin öll fékk í hruninu og eftir það. Svo er erfitt að ræða málið svo löngu á eftir, þegar ekki var farið beina leið með JG í blóðprufu til að taka af allan vafa. Sem er það sem kjörinn Forseti Alþingis hefði átt að gera þá um kvöldið en gerði því miður ekki.  Mikið hefði nú verið fínt ef REÁ, eða aðrir Alþingismenn,  hefði lagt það til þá um kvöldið eða ,,farið fram á það". Hversvegna var það ekki gert ? En það góða við að halda þessu máli á lofti er það að héðan í frá ætti að verða erfiðara fyrir menn að mæta í vinnu sína á Alþingi, eftir að hafa fengið sér svo mikið sem einn sopa og það þarf klárlega að kaupa nokkra áfengismæla til að grípa til, komi slíkar vangaveltur aftur fram. Svo mun koma í ljós hvort mun heyrast oftar píp í þeim eða í bjöllu Forseta ;)) Væri alveg hægt að veðja uppá það á betson.com....

Vont fyrir alla að hafa slíka óvissu sem verður ekki sönnuð né afsönnuð héðan í frá. Vafinn mun ávallt verða til staðar, með réttu eða röngu. 

Nú eða hreinlega festa í lög að Alþingismönnum sé heimilt að mæta til vinnu eftir að hafa smakkað áfengi sem og skrælþunnir daginn eftir. Það ætti að koma í veg fyrir tuð sem þetta. Svo skil ég ekki af hverju fjömliðlar og þmt mbl.is hafi enn ekki birt upptökur af JG í pontu þetta kvöld, til að leyfa fólki að sjá sjálft hvað um var að ræða. Jú, hver sem er getur svosem leitað að þessu á althingi.is..en það var svosem einnig hægt þegar Sigmundur Ernir fékk á sig sömu ásökun en engu síður var það sýnt í fjölmiðlum. Sú ásökun reyndist rétt. 


mbl.is Telur ummælin vítaverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alþingi er eins og leikskóli fyrir vitleysinga... okkur að kenna, við kjósum 4flokksfíflin; Reyndar hefur ekkert annað verið á boðstólum per se, bara íslenska 4fkollsvitleysingafélagið

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2012 kl. 09:00

2 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Þeir eru amk langan veg frá því að vera góð fyrirmynd í mannlegum samskiptum DoctorE hvað þá að eiga létt með að fara að þeim lögum sem öðrum er gert að fara eftir.

Þeir þurfa að taka sig á og bæta , það getur varla verið að Alþingi sé góður vinnustaður.

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 11.6.2012 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband