11.11.2012 | 23:58
Gefa bara frí !
Einfaldast og öruggast ;) Amk mætti senda út þær tilkynnngar, að hver og einn ákveði það fyrir sín börn, þar sem það er jú skólaskylda hjá okkur.
Af hverju þarf að þvæla þessum greyjum útí þessa óvissu og taka séns á slysum, þegar spáin er svona brjáluð ? Og hvað ef það verður svo enn brjálaðra í lok dags...þurfa foreldrar að senda þau með svefnpoka og tannbursta með sér ?
Ekki man ég eftir svo áberandi fréttum og viðvörunum , áður en allt snjóaði í kaf fyrir norðan og gaman væri að það yrði rifjað upp hvað var birt og hvar...svona í ljósi þess að skotið var á ráðherra sem hafði ekki tekið eftir neinum viðvörunum. Komu þær með svo áberandi hætti ..? En gott að það var gert sv omikið mál úr því og veðurfréttatími RÚV nýttur til að bauna á hann...menn hafa tekið sig á með viðvaranir sem er mjög gott mál
![]() |
Foreldrar fylgi börnum í skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2012 | 14:07
Afgerandi ?
![]() |
Getur verið kalt á toppnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
11.11.2012 | 13:15
Asnalegar reglur prófkjöra
Ég tók eitt sinn þátt og kaus í prófkjöri og sé ekki ástæðu til að gera það aftur, því miður.
Hélt að prófkjör væru til þess að maður mætti velja það fólk á lista sem maður vildi hafa þar...en oh nei oh nei.., ekki svo gott !!
Það var einhver tiltekinn lágmarksfjöldi frambjóðenda sem var SKYLT að velja á listann , svo atkvæði manns sé tekið gillt, takk fyrir !! Sem þýddi það í mínu tilfelli, að ég var tilneydd til að velja fólk sem ég vildi ekki. Það gengur ekki upp í mínum huga og þarf að breyta að sjálfsögðu.
![]() |
Glímir við arfleifð hrunsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.11.2012 | 01:41
Var það skeggið ? ;)
Sem hjálpaði eða... ? Eða má kannski bara tala um útlit þegar um konur og stjórnmál er að ræða...vil annars sjá hann og aðra karlmenn á Alþingi með bindi ;) Fátt sem toppar flotta menn í valdastöðum sem eru flott klæddir og með vel valið bindi...
Rakaðu svo skeggið af þér, flottari þannig ! Þarft ekki lengur á því að halda, þú ert búinn að sigra þessa lotu !!! Og til hamingju segi ég bara, þó ég sé ekki alltaf sammála þér, en þannig er það bara með allt fólk á jörðinni.
Nema ef planið er að leika jólasvein í jólafríinu...;o Svefngals-hálfkæringur , úff...góða nótt
![]() |
Skilur þá sem vilja konu í forystu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2012 | 23:07
BB átti að setja sig í mun aftara sæti !
Ég man eitt sinn þegar ISG var framboði i Borginni, eða flokkurinn hennar, þá setti hún sig í 8.sæti, muni ég það rétt. Og komst áfram !
Sterkur leiðtogi og formaður flokks, á ekki að setja sig í 1. sæti, of léttur sigur. Og aðeins um helmingur sem hann náði af atkvæðum...sýnir engan veginn þann styrka sem formaður þarf að hafa, því miður.
Trúi hann nóg á sjálfan sig og aðra sem eru á lista, á hann ekki að óttast að setja sig taslvert aftar en hann gerði ;)))
Það er ekki nóg að vera alnafi afa síns, það er ekki nóg ;o ;o !!
![]() |
Bjarni með 54% atkvæða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
10.11.2012 | 18:42
Spörum tuð og þras-nýtum reynslu Dana !
Og hættum að spá í að leggja sykurskatt á og eins á feitan mat. Sjálfri þótti mér það sniðugt...alveg þar til ég las þessa frétt. Þarf ekki meira til að skipta 100% um skoðun..verst a ðher væri samt hægt að gera þetta í trausti þess að við skokkum hvorki né hjólum yfir landamæri til að kaupa ódýrari vöru..svo ég vona að sú staðreynd verði ekki misnotuð hér og þetta sett á engu síður ??
Svo allir kæru Alþingismenn...drop it ! Takk ;o
![]() |
Fituskattur aflagður og hætt við sykurskatt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.11.2012 | 12:19
Hlutastarf ?
Er það hlutastarf með nægan frítíma að vera Alþingismaður ?
Er það hlutastarf með nægan frítíma að vera formaður Bændasamtakanna ?
Til hvers að ætla sér tvö störf á fullum launum...annað ef t.d. laun hans sem Alþingismaður myndi skerðast krónu á móti krónu við laun fyrir formennsku í Bændasamtökunum....sem ætti evt að taka upp í jafnræðissamfélaginu okkar ;o
Og er hann að færa lögheimili sitt út á land til að misnota búsetustyrki, eða býr hann úti á landi nú þegar sannanlega og verður þar áfram eða ef svo, færir hann þá lögheimili sitt á mölina í Reykjavík ? Mér þykir svona flakk með lögheimili Alþingismanna forkastanlegt og á pari við kennitöluflakk fyrirtækja sem fólk þolir ekki upp til hópa. Ég vona að lögheimilsmál hans verið upplýst um og hann spurður um það og hvort hann ætli að flakka með það á pappírum eða ekki.
Annars fagna ég því að nýjir menn bjóði sig fram, það þarf 100% endurnyjun en það nýja fólk þarf að vera heiðarlegt svo hægt sé að byggja upp traust og bera virðingu fyrir Alþingi.
![]() |
Fyrst og fremst landsbyggðarmaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.11.2012 | 10:55
Þakklæti og kurteisi...FRÍTT ;)
Og hann veit sem er, að þakklæti kostar ekki neitt og að það er ekki neitt leyndarmál að hann er manneskja með tilfinningar en ekki vélmenni ;o Eitt af fáu sem er frítt í þessum blessaða heimi okkar og það er of mikið sparað af því sem frítt er , því miður; eins og t.d. hrós, fyrirgefning, heiðarleiki, traust, tillitssemi, hjálpsemi og já, það að nota stefnuljós í umferðinni ofl. ;o ;o )))
![]() |
Táraðist við að ávarpa unga stuðningsmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.11.2012 | 07:48
Og...var skuldin greidd ?
Og hver var upphæðin ? Og hver borgaði, hafi þetta skilað sér sannanlega til ISAVIA ? Eða fengu þeir séns eftir þessa 9 daga ?
Þessi frétt er eins og hver önnur hálfkveðin vísa þar sem einungis er fjallað um það hveru lengi vélin var kyrrsett.
![]() |
Var kyrrsett í níu daga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2012 | 09:09
Landsbjörg
Hefur verið talsvert nefnt í umræðu um meint ólöglegt gjaldeyrisbrask þar sem framkvæmdastjórinn , nú fyrrverandi, hefur verið innblandaður, sem og nafn markaðsstjóra Landsbjargar. Í bloggheimum sýnist mér yfir línuna, að fólk sé á því að láta ekki meinta lögbrot starfsmanna Landbjargar, bitna á fjáröflun , sölu á Neyðarkallinum. Það sama er eðlilegt að segja um þessi hræðilegu mál sem áttu sér stað í Landakosttskóla. Það er því miður ekki skortur á fólki sem er óheiðarlegt og rotið að innan og margt af því fólki misnotar aðstöðu sína eða stöðu í starfi sínu, eða er sakað um það amk. Í báðum málum, með Landakotsskóla og með mál fyrrverandi framkvæmdastjóra Landsbjargar hefur ekki verið ákært né dæmt. Og Sr. Georg er látinn svo ekki verður réttað yfir honum héðan í frá í dómssölum landssins.
Ég held að langflestir dæmi ekki Landsbjörgu úr leik vegna þeirra upplýsinga sem fram hafa komið. Og sem betur fer segi ég, við þurfum hér eftir sem hingað til á þeim að halda og síðasta dæmið var um liðna helgi í því ofsroki sem óð yfir landið okkar. Þetta mál með fyrrverandi framkvæmdastjóra Landsbjargar lítur vissulega afar illa út lögmenn hans eiga ekki öfundvert verk framundan, m.v. það sem heyrist á upptökunni. Og 10 klt efni eftir....
Ég vona sömuleiðis að flestir láti sér ekki detta í hug að dæma Kaþólsku kirkjuna fyrir þau rotnu epli sem þar störfuðu. Og því síður Þjóðkirkjuna okkar. Kirkjan sem stofnun er ekki sú sem er sökuð um þessi skelfilegu brot gegn saklausum börnum sem þar voru og bera sár á sálu sinni alla ævi sína. Ég vona að þau muni ná að vinna sig í gegnum ömurlega lífsreynslu sína.
![]() |
Beitt ofbeldi árum saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)