Og hvað svo ?

Verður þá það næsta að krefast þess að starfsumsækjendur og starfsmenn samþykki vinabeiðnir hugsanlegra sem og núverandi vinnuveitenda ? Það er bannað í USA að spyrja persónulegar spurninga á borð við hjúskaparstöðu, fjölda barna eða hvort viðkomandi eigi börn eða ekki og svo það sem fram kemur og evt fleira.

 Að fara fram á að hnýsast inná FB, hefði ég haldið að þyrfti ekki að banna sérstaklega með nýjum lögum, þar sem það virkar svo augljóst að verið er að reyna að smeygja sér gróflega framhjá lögunum eða ekki í raun, því á FB eru upplýsingar um margt og oft allt, það sem ekki má lögum samkvæmt spyrja fólk um.

Leiðinlegt að það skuli þurfa að setja lög um það sem virkar svo sjálfsagt að láta ógert, eins og hér er fjallað um að krefast lykilorðs sem veitir aðgans inní einkalíf fólks.

,,Í Kaliforníu hefur þegar verið lagt fram frumvarp til laga sem myndu banna vinnuveitendum að krefja bæði starfsmenn og starfsumsækjendur um notendanöfn þeirra á samskipamiðlum, sem og lykilorð. "


mbl.is Vinnuveitendum verði haldið frá Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Happy, Happy, Happy Ho

Það er óskandi að sá dagur renni upp að eftirspurn eftir vændi deyji drottni sínum.

Og um leið þráláta mýtan um Hamingjusömu Hóruna.


mbl.is Húðflúra strikamerki á vændisþræla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjulegt

Að lesa svona frétt, enn ein jákvæða fréttin um velgengni íslenkrar menningar-og listar. Á dögunum var ungur maður sæmdur BAFTA verðlaunum í kvökmyndagerð, muni ég það rétt. Einar Már fékk litla Nóbelinn um daginn ( áts, man ekki hvað þau verðlaun heita... ?) og mér þykir næstum eins og það líði ekki sú vika að fréttir af þessum toga sjást í fjölmiðlum og mjög áberandi eftir hrun og ég veit ekki hvort þeim hafi fjölgað eða ég veitt þeim meiri athygli frá hruninu 2008.

Vona að fleiri verði jákvæðir gagnvart því að opinbert fé fari í skapandi geirann, hvað sem það heitir hverju sinni; listamannalaun, rithöfundalaun eða annað. Þetta skilar sér tilbaka á einn eða annan hátt og verðmætin eru alvöru; ekki plat eða loft á Excel skjali.

 


mbl.is Bók Hallgríms í 8. sæti á Amazon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skætingur

Og stælarnir og frekjan í bönkunum, eins og þeir hafi efni á því ! Svei, svei.

Það mætti halda að þeir telji sig græða á því að viðhalda hroka sínum stælum , skætingi og frekju, vitandi að álitið á þeim og traust er einskis virði, amk ekki ýkja mikið.

Að drekkja fólki með skuldum og öðrum með upplýsingum á ekki að vera hluti af verksviði þeirra og skrítið að þeir allir 3 geri það sama eins og hér er fjallað um, sem svar við sömu einföldu spurningunni þar sem svarið hefði átt að komast vel fyrir á einungis einu A4 blaði. Jafnvel hefði eitt A5 nægt.  Það er nú meira hvað maður á að trúa því að hér ríki samkeppni á bankamarkaði ....LOL

Látum ekki bankana stjórna okkur og hræða. Við höfum alltaf þau völd að taka innistæður okkar út.


mbl.is Drekkt í upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IcelandExpress hætt

Eða hvað ? Þarna kemur fram að 17 félög annist flug um Leifsstöð og ég taldi þau líka á listanum og það passar, 17 félög eru upptalin með nöfnum.

Hrekkur ? Eða er IcelandExpress komið með nýtt nafn ? Eða eru þeir hægt og hljótt hættir en enn að selja miða ???

Þetta langar mig til að vita, því maður trúir jú því sem fram kemur í fjölmiðlum og ekki lýgur Mogginn !


mbl.is 15 þúsund farþegar á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt og alvarlegt

Það þykir mér og man ekki eftir að eftirfarandi hafi áður komið fram um PIP málið ;

,,Eftir að upp komst að PIP-púðarnir geymdu iðnaðarsílikon leitaði hún til Jens sem skoðaði hana og sagði allt líta eðlilega út. „Þá gat hann ekki staðfest við mig að ég væri með PIP-púða. Það er ekki fyrr en ég fæ boð í ómskoðun að ég fæ það staðfest. Í ómskoðuninni kom í ljós að báðir púðarnir voru sprungnir og þá brotna ég alveg saman."

Hvað ætli langur tími hafi liðið á milli þess sem læknir skoðar hana og segir allt 100% ok, þar til hún fór svo í ómskoðun ? 3 mánuðir ca. ? Veit ekki en gæti verið ca sá tími, amk ekki mjög langur að ég giska.

Og svo að hafa ekki geta staðfest hvaða tegund, það skil ég ekki ? Hvernig gat þá verið að hún fékk boð um ómskoðunina ??? Sé samt ekki hvaða læknir setti púðana í hana í byrjun, fyrir 10 árum.  Ef það er sami læknir og sagði allt ok í skoðun og vissi ekki hvaða tegund, þá þykir mér það vera alvarlegt.

 


mbl.is Getur ekki lýst því með orðum hvað henni er létt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20 ár- alltof langur tími !

Í frjálsu lýðræðisríki eru 20 ár of langur tími í embætti, hvaða embætti sem er, alltof langur. Ég tel að engum sé hollt né gott að sitja svo lengi í sama sætinu. ÓRG hefur staðið sig vel og hann mun geta gert mikið gagn áfram fyrir okkur, þó það sé á öðrum vettvangi. Þetta er því ekki neitt persónulegt. Þetta snýst um Forsetaembættið ekki um persónuna sem embættinu gegnir á hverjum tíma.

Ég vona að það komi framboð sem verða raunhæfur valkostur. Þá er hægt að halda kosningar, annars verður sitjandi Forseti sjálfkjörinn. Úrslit þeirra þurfum við svö öll að sætta okkur við, hvort sem við kjósum eða ekki og hvern svo sem við kjósum. Forseti fyrir næsta kjörtímabil verður Forseti okkar allra, hver sem niðurstaðan verður.

Ég vona síðan að sett verði í nýja stjórnaskrá að hámarkstími séu 2 kjörtímabil; 8 ár, í þessu embætti sem og öðrum.

Verum óhrædd við breytingar, þær venjast furðufljótt ;)

 


mbl.is 66% vilja nýjan forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tortryggilegt

Þessi neitun Seðlabankans er til þess eins fallin að vekja tortryggni á málinu og þá má spyrja sig um hvervegna það er gert ? Er ætlunin að kasta rýrð á þá félaga sem upptakan er af ? Hvað með lög um upplýsingaskyldu opinberra aðila ?

Ég vil ekki trúa því að Seðlabankinn hafi verið notaður , líkt og aðrir bankar að því er virðist, eins og einkabanki. Á fólk nú að halda að þeir félagar hafi gert eitthvað rangt ? Óskandi að leitað verði álits hjá þeim og þeir beðnir um að liðka til að RÚV fái þessar upptökur. Svo þetta fari nú ekki á flakk í mörg ár í dómskerfinu okkar og endi svo með því að upptakan sé svo týnd....úps.


mbl.is Rúv fær ekki upptöku úr Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun

Til eigenda og/ eða þeirra sem stjórna og ráða hjá fyrirtækinu sem á gámabílinn sem olli því að Þorgeir Ingólfsson er nú örkumlaður til æviloka. Þetta er hörmulegt slys og ég finn líka til með bílstjóranum en Þorgeir á ekki sök á þessu, eftir því sem ég fæ séð. Þrátt fyrir vinnureglur ykkar eða venjur sem ekki voru auglýstar á sýnilegum skyltum svo fólk hefði séns á að vara sig. Þið eruð án efa miður ykkar vegna þessa slyss.

Ég hvet ykkur til þess að greiða Þorgeiri skaða-og miskabætur sem allra fyrst, þessvegna í dag nú eða á Mánudag. Það er ekki hægt að banna ykkur það. Né er hægt að banna ykkur að greiða mun hærra en hann ætti að fá m.v. þann útreikning sem farið er eftir samkvæmt lögum. Sýnið honum þá kurteisi að láta hann ekki þurfa að eiga við tryggingafélag ykkur í mörg ár og jafnvel með því að hann þurfi að draga ykkur eða tryggingafélag ykkar fyrir Hæstarétt, eins og alltof margir slasaðir þurfa að gera. Þið getið svo dúllast í því að fá bæturnar tilbaka frá ykkar tryggingafélagi. Ef tjónið fæst ekki að fullu bætt úr trygginfélagi ykkar, þá þurfið þið bara að taka það fjárhagstjón á ykkur. Það er það minnsta sem þið getið gert, því ekki getið þið bætt Þorgeiri heilsu sína eða fótlegg sem er farinn. Það má vel vera að lögin væru ykkar megin, hvað veit ég. En það eitt og sér á ekki að skipta máli. Það er líka til samkennd og brjóstvit sem er oft prýðis áttaviti.

Þið megið alveg vera það fyrirtæki sem verður öðrum til fyrirmyndar í framtíðinni og gera upp slysa-og miskabætur að eigin frumkvæði. Og biðjið hann svo afsökunar á að vinnureglur ykkar hafi rústað lífi hans og valdið honum þjáningum og örkuml. Það er meira en nóg að glíma við og það á enginn að þurfa að hafa áhyggjur af fjárhag sínum í leiðinni ( sem ég gef mér að sé til staðar vegna þess að hann er ekki að vinna) .Takk ;)

Sé það svo að skaða-og miskabætur hafi þegar verið greiddar, biðst ég afsökunar á þessu innleggi mínu.

Ég óska ÞI alls hins besta þó ég þekki hann ekki neitt né hafi hitt hann. Veit bara um málið úr frá fjölmiðlum.  Þú átt alla mína samúð.


mbl.is Lít upp og þá er bíllinn að beygja fyrir mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin öll

Þarf að fá að heyra þessa upptöku, ekki bara Þingmenn. Það erum jú við öll sem borgum þetta hrun með blóði, svita, tárum, reiði, sjálfsmorðum, hjónaskilnuðum, þrasi og ósætti, búsáhaldabyltingu, gjaldþrotum, landflótta ofl ofl.

Upptakan á fullt erindi til almennings að mínu mati vegna þess að þetta mál snertir okkur öll á einn eða annan hátt. Merkilegt að upptakan sé ekki löngu komin fram. Við þurfum að fá að leggja eigið mat á þessa upptöku og það er þá vonandi að hún útskýri þessa lánveitingu til fulls.

 


mbl.is Spyr hver sé óreiðumaðurinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband