29.3.2012 | 19:34
Corn Fleks Kjúklingabringur-rosa gott ;)
Langar aðeins að testa mig áfram á blogginu mínu og fikta smá; skipta aðeins úr fréttaþrasinu..Sjá hvernig gengur að setja inn myndir með færslu. Alveg vonalaus í tölvum og tækni ;( En fjölskylda mín og vinir mega þakka sínu sæla að ég er öllu færari í eldhúsinu ;) Set hér að ganni uppskrift að kjúkingabringum sem ég var með í matarboði um daginn í þeirri von að það gleðji jafn mikið í Netheimum og það gerði í Mannheimum. Ég skálda venjulega við eldavélina það sem ég bý til, stundum smá á meðan ég er í búðinni og er ekki vön að nota uppskriftir og man oftast aldrei sjálf hverju ég blanda saman eða hvaða krydd ég nota. Svo núna ætla ég að prófa að skrifa niður og set 1.tilraun með það hér og nú á bloggið mitt. Pínu í belg og biðu sé ég.. en óhætt að maila mér ef þið lendið í vandræðum með eitthvað. Allavega á meðan ég man þetta ennþá...;)
Corn Fleks Kjúklingabringur- passlegt fyrir 6 manns
2 pk kjúklingabringur
Ca. 300 gr. Kellog´s Corn Fleks
2 egg og smá mjólk
Krydd: Season all, svartur pipar, hvítlaukssalt, sweet chili og soyja sósa
Olía til steikingar
Aðferð:
Ég skar bringurnar í tvo bita, þvert. Kryddaði þær beggja megin og setti svo smá soyja yfir. Leyfði þessu að standa í ca. 2 klt. en það þarf ekki að vera svo lengi held ég. Pískaði svo eggin saman og setti smá mjölk útí, þá er þetta ekki alveg eins þykkt, virkar betur þannig þykir mér. Hitaði pönnuna og svo olíu á hana, eins lítið og ég taldi mig komast af með ( bévítas kaloríur..). Á meðan olían hitnaði, setti ég Corn Fleksið í plastpoka og muldi það með höndunum. Setti svo kjúklingabringurnar í , nú búið að setja þær í eggjahræruna. Og svo hristi ég pokann þar til ég sá að mulið Corn Fleksið huldi bringurnar vel. Svo brúnaði ég þær á pönnunni og setti smá af sama kryddinu aftur á, beggja megin. Setti þetta svo í eldfast mót og inní 180 gráðu heitan ofn í ca. 35 mínútur. Læt mynd fylgja en hún er ekki svo góð en sú eina sem ég er með.
Svo bar ég þetta fram með salati, bökuðum kartöflum( með olíu og grófu salti) og smábrauði með rauðu pestó, ásamt rjómasveppasósu með beikoni og lauk. , sjá uppskriftir neðar. Er með mynd af salatinu og sósunni. Í eftirrétt var ég með karamelluskyr sem ég bjó til en á enga mynd ;( Svo ég læt fylgja mynd af rjómatertu úr öðru matarboði uppá gamla mátann. Bakaði 2 svampbotna og setti koktailávexti úr dós á milli og ofan á. Það er allt og sumt og þvílík lukka sem hún olli ! Hvorki ég né aðrir höfðu smakkað þessa gömlu góðu tertu í milljón ár eða svo. Skil ekki í því að kaffishús skuli ekki selja þetta, alveg er ég viss um að þessi klassíksa terta myndi seljast eins og heitar lummur, sem fást ekki heldur að vísu...Skreytti að ganni með súkkulaðihjörtum, það var eina nútímasvindlið.
Salatið
Ísberg salat haus, púrrulaukur, rauð paprika, agúrka, cherrý tómatar, ristuð sesamfræ, salthnetur, radísur, rifinn gouda ostur og rifinn parmesan. Skreytt með appelsínusneiðum, radísum og tómötum.
Sósan
2 bakon bréf, 1 box sveppir, 1/2 gulur laukur, 2 knorr beef teningar, 1 sveppasmurostur, 1 peli rjómi, smá mjólk, maizena til þykkingar og ca. 1 tsk. jarðarberjasulta ( má t.d. vera rifsberjahlaup). Og sömu krydd og á kjúklinginn; season all, hvítlaukssalt, svartur pipar og sweet chilli.
Verði ykkur að góðu ;))
29.3.2012 | 17:57
Tapað stríð
Algjör uppgjöf Seðlabankans, viðurkennt hér með og skjalfest með nýjum seðli. Verðbólgumarkmiðin eru orðin tóm. Það er ekki neitt nýtt, þannig hefur það verið í mörg ár.Líka fyrir hrunið 2008. Leyst núna með einu viðbótarnúlli. Sigur verðtryggingar og bankamenn geta skálað ! Hvenær verður 500 kallinn að klinki ? Áður eða um leið og sá nýji kemur út ? Og þá getur t.d. Strætó hækkað uppí 500.- það er svo þægilegt að henda bara einu klinki í boxið...
Maður þætti nú ekki mjög trúverðugur í megrunarátaki með það markið að missa nokkur kíló segjum 4,5 kg. svo maður komist í kjólinn fyrir Páskana, ok aðeins of seint, segjum þá bara fyrir næstu jól svo maður missi nú ekki af Páskaeggjunum og þá hægt að bæta 1/2 kg. við eða svo. Og væri svo á sama tíma að panta sér sérsaumaðan kjól í nokkrum númerum stærri en það sem maður notar núna og hafa hann reddý... fyrir jólin 2013...;)
![]() |
10.000 króna seðill gefinn út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.3.2012 | 23:23
Huldubókhald
Hjá ríkinu, eða hvað er málið ? Skil ekki af hverju það er ekki vitað hvort bætur hafi verið greiddar eða ekki ? En þarf ekki að veita ferðamannaáritun fyrir þá sem koma vilja frá Kína ? Og ráðum við þá ekki hverjir koma og hverjir ekki ? Ef það hefur verið þannig árið 2002, af hverju ættum við þá að greiða bætur ? Eru Falun Gong meðlimir að fara fram á bætur ? Liggur nokkuð meira á að greiða það fyrr en tímann sem það hefur tekið Breiðavíkurbörn að fá sínar lúsa bætur ? Sem er aðeins örlítið brot af réttmætri upphæð að auki. Svona víst engum má mismuna hér í öllu jafnræðinu....
Annars þótti mér þetta og þykir enn smán á okkur, og leitt hvað ráðamenn þess tíma hafa verið hræddir við Kínverja. Og evt er það þannig enn, skammt er að minnast hvað þeir tóku því illa fyrir stutu síðan þegar Kínverji fékk friðarverðalun Nóbels sem þeim var ekki þóknanlegt. En sé enginn úti að kvarta núna, til hvers þá að vekja athygli á þessu nú, 10 árum síðar ?
,,Hann segir síðan óljóst hvort umræddir einstaklingar hafi fengið greiddar bætur vegna kostnaðar sína. Það fer tvennum sögum af því hvort þeir hafi fengið bætur og það er náttúrlega kurteisi að greiða þeim bætur fyrir þetta.
![]() |
Kurteisi að Falun Gong fái bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 17:49
Klón´ann bara !
Er það ekki bara það sem þarf að gera ?
Annars held ég að þetta sé of mikið fyrir hvern sem er, að hafa svo mörg málefni á herðum eins manns. Það eru takmörk á öllu, líka þeim verkefnum sem hægt er að hlaða á eina manneskju.
Sem að auki er raddlaus. Ég hélt fyrst að hann væri farinn í frí eða / og veikindaleyfi eftir að hafa heyrt í honum í Kastljósinu um daginn.
![]() |
Mótmæla fjarveru Steingríms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 17:28
Gott þefskyn
Og gott að dóp sé gert upptækt, hvort sem er ræktun eða það sem finnst af öðru við leit á flugvelli , skipum eða annarsstaðar.
En ég man ekki eftir að hafa séð margar fréttir um það að ábendigar í fíkniefnasíma hafi verið ástæðan. Nema kannski í stærri smyglmálum.
Oftast renna þeir á lyktina eða finna eitthvað í tilviljankenndri leit, í smærri málum. amk. Ætli þetta sé útskýrt með góðu þefskyni til að hlífa þeim sem hringja þó þar gildi nafnleynd ?
![]() |
Runnu á kannabislyktina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 12:34
Hvað ef
Hún væri íslensk ?
Hefði hún þá verið nafngreind ? Væri þá opið fyrir komment um málið í netheimum ? Hefðu þá réttarhöldin verið opin ?
Ég efast um það.
![]() |
Tveggja ára fangelsi fyrir barnsdráp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
28.3.2012 | 12:24
Hefndir
? Er það ástæða þessa rugls á Alþingi í nótt sem leið ? Hvað með allt tal um þjóðarhag og eigin sannfæringu ?
,,Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, minnti á að hluti þingheims hefði fyrr í vetur reynt að koma í veg fyrir að þingmál fengi að koma á dagskrá með frávísunartillögu. Ég bið þingmenn að tala varlega þegar þeir tjá sig um klækjabrögð eins þingflokks umfram annan.
Hvernig er það annars...hér gilda lög um hvíldartíma vinnandi fólks og sér lög um atvinnubílstjóra sem heita vöukulögin muni ég það rétt. Ná þau ekki til Alþingismanna ? Eða fengu þau undaþágu frá þeim lögum ? Og svo er spurning hversu hæf eru þau til að keyra til vinnu sinnar að morgni ? Talað er um að þegar fólk hvílist ekki nóg, hafi það sömu áhrif á aksturslag og það að hafa drukkið áfengi. Dómar hafa fallið ökumönnum í óhag vegna þess að sýnt var fram á að ekki hafi verið sofið nógu lengi áður en sest var undir stýri.
Mega Alþingismenn ekki slökkva á gemsum sínum á nóttunni ??? Hvernig er búist við að þeir nái að halda sönsum ? Nema kannski að þetta sé ástæða þess hvað þau eru oft vond, ókurteis og óförskömmuð hvert við annað; örmagna af svefnleysi.
![]() |
Fékk ekkert SMS-skeyti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2012 | 10:56
Skamm Prófessor !
Ekki þykir mér fallegt að tala svona um fólk sem flosnað hefur uppúr námi eða hefur verið svo ólánsamt að alast upp við erfiðar heimilisaðstæður. Kannski er það þessvegna sem meira mál er gert úr því þó þau misstigi sig smávegis ?
Er það svona sem talað er við fólk í viðtölum hjá fagfólki ? ,, þú ert bara lúser", er það sagt beint í andlitið á fólki sem þarfnast aðstoðar ? Eða er bara þannig um það fólk talað þegar það heyrir ekki til; sett í skýrslurnar ? Ég hef aldrei skilið það af hverju fólk er kallað lúser. Engin samúð sem fygir því, heldur eins og hvert annað fantaskot á fólk.
WHO skilgreinir heilbrigði sem líkamlegt, andlegt og félagslegt. Væri þá, samkvæmt þessu eðlilegt að kalla fólk sem glímir við ýmsan líkamlegan og andlegan vanda fyrir ,, heilbrigðis lúsera " ? Þætti það við hæfi ??? Mér þykir merkilega lítið gert með mikilvægi félagslegs heilbrigðis og þessi lýsing Prófessors ekki líkleg til þess að efla þann þátt í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Falla hvítfliibbarnir líka undir það að vera ,,félagslegir lúserar", því ekki nenna þeir að fylgja öllum reglum eða siðferði mjög strangt. Gékk þeim eitthvað endilega glimrandi vel í skóla og bjuggu við svaka happý heimilslíf í æsku ? Eða skiptir klæðaburðinn máli svo þeir sleppi undan stimpli Prófessorsins ?
![]() |
Slóð afbrota félagslegra lúsera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.3.2012 | 10:14
Varasamt lánatilboð
Íslandsbanki er núbúinn að bjóða fasta 4,10% vexti á ný húsnæðislán með vaxtaendurskoðunárkvæði, vá hvað þetta er langt orð. Jæja, það bjóða þeir án efa vegna þess að þeir telja sig sjálfa græða á því. Stórefast um að þeir telji væntanlega lántakendur græða á því, það er amk ekki venjan.
Ég vona að fólk falli ekki í freistni með að taka slík lán. Sama var í í boði fyrir hrun og það leit ekki vel út þegar þeir bankar sem þá höfðu veitt slík lán, ætluða að nýta sér ákvæðið í lánasamningum. Þá var fallið frá því en það er auðvitað ekki hægt að treysta á að það verði gert aftur.
Nú er verðbólgan á hraðri uppleið, og það veit Íslandsbanki. Allir spá þeir tveimur stýrivaxtahækkunum til viðbótar á þessu ári. Og á því græða þeir vegna verðtryggðu lánanna sem eru með öllu áhættulaus. Fyrir þá.
Hér er fréttin um tilboðið :
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2012/03/22/islandsbanki_laekkar_husnaedisvexti/
![]() |
Verðbólgan 6,4% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 09:42
Fréttaauglýsingar
Menn þurfa varla að hittast lengur í Öskjuhlíðinni til að ákveða verðsamráð, er það nokkuð ?
![]() |
Atlantsolía hækkar um 4 kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)