24.3.2012 | 18:04
20 ár- alltof langur tími !
Í frjálsu lýðræðisríki eru 20 ár of langur tími í embætti, hvaða embætti sem er, alltof langur. Ég tel að engum sé hollt né gott að sitja svo lengi í sama sætinu. ÓRG hefur staðið sig vel og hann mun geta gert mikið gagn áfram fyrir okkur, þó það sé á öðrum vettvangi. Þetta er því ekki neitt persónulegt. Þetta snýst um Forsetaembættið ekki um persónuna sem embættinu gegnir á hverjum tíma.
Ég vona að það komi framboð sem verða raunhæfur valkostur. Þá er hægt að halda kosningar, annars verður sitjandi Forseti sjálfkjörinn. Úrslit þeirra þurfum við svö öll að sætta okkur við, hvort sem við kjósum eða ekki og hvern svo sem við kjósum. Forseti fyrir næsta kjörtímabil verður Forseti okkar allra, hver sem niðurstaðan verður.
Ég vona síðan að sett verði í nýja stjórnaskrá að hámarkstími séu 2 kjörtímabil; 8 ár, í þessu embætti sem og öðrum.
Verum óhrædd við breytingar, þær venjast furðufljótt ;)
![]() |
66% vilja nýjan forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2012 | 13:42
Tortryggilegt
Þessi neitun Seðlabankans er til þess eins fallin að vekja tortryggni á málinu og þá má spyrja sig um hvervegna það er gert ? Er ætlunin að kasta rýrð á þá félaga sem upptakan er af ? Hvað með lög um upplýsingaskyldu opinberra aðila ?
Ég vil ekki trúa því að Seðlabankinn hafi verið notaður , líkt og aðrir bankar að því er virðist, eins og einkabanki. Á fólk nú að halda að þeir félagar hafi gert eitthvað rangt ? Óskandi að leitað verði álits hjá þeim og þeir beðnir um að liðka til að RÚV fái þessar upptökur. Svo þetta fari nú ekki á flakk í mörg ár í dómskerfinu okkar og endi svo með því að upptakan sé svo týnd....úps.
![]() |
Rúv fær ekki upptöku úr Seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2012 | 11:31
Áskorun
Til eigenda og/ eða þeirra sem stjórna og ráða hjá fyrirtækinu sem á gámabílinn sem olli því að Þorgeir Ingólfsson er nú örkumlaður til æviloka. Þetta er hörmulegt slys og ég finn líka til með bílstjóranum en Þorgeir á ekki sök á þessu, eftir því sem ég fæ séð. Þrátt fyrir vinnureglur ykkar eða venjur sem ekki voru auglýstar á sýnilegum skyltum svo fólk hefði séns á að vara sig. Þið eruð án efa miður ykkar vegna þessa slyss.
Ég hvet ykkur til þess að greiða Þorgeiri skaða-og miskabætur sem allra fyrst, þessvegna í dag nú eða á Mánudag. Það er ekki hægt að banna ykkur það. Né er hægt að banna ykkur að greiða mun hærra en hann ætti að fá m.v. þann útreikning sem farið er eftir samkvæmt lögum. Sýnið honum þá kurteisi að láta hann ekki þurfa að eiga við tryggingafélag ykkur í mörg ár og jafnvel með því að hann þurfi að draga ykkur eða tryggingafélag ykkar fyrir Hæstarétt, eins og alltof margir slasaðir þurfa að gera. Þið getið svo dúllast í því að fá bæturnar tilbaka frá ykkar tryggingafélagi. Ef tjónið fæst ekki að fullu bætt úr trygginfélagi ykkar, þá þurfið þið bara að taka það fjárhagstjón á ykkur. Það er það minnsta sem þið getið gert, því ekki getið þið bætt Þorgeiri heilsu sína eða fótlegg sem er farinn. Það má vel vera að lögin væru ykkar megin, hvað veit ég. En það eitt og sér á ekki að skipta máli. Það er líka til samkennd og brjóstvit sem er oft prýðis áttaviti.
Þið megið alveg vera það fyrirtæki sem verður öðrum til fyrirmyndar í framtíðinni og gera upp slysa-og miskabætur að eigin frumkvæði. Og biðjið hann svo afsökunar á að vinnureglur ykkar hafi rústað lífi hans og valdið honum þjáningum og örkuml. Það er meira en nóg að glíma við og það á enginn að þurfa að hafa áhyggjur af fjárhag sínum í leiðinni ( sem ég gef mér að sé til staðar vegna þess að hann er ekki að vinna) .Takk ;)
Sé það svo að skaða-og miskabætur hafi þegar verið greiddar, biðst ég afsökunar á þessu innleggi mínu.
Ég óska ÞI alls hins besta þó ég þekki hann ekki neitt né hafi hitt hann. Veit bara um málið úr frá fjölmiðlum. Þú átt alla mína samúð.
![]() |
Lít upp og þá er bíllinn að beygja fyrir mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
23.3.2012 | 20:48
Þjóðin öll
Þarf að fá að heyra þessa upptöku, ekki bara Þingmenn. Það erum jú við öll sem borgum þetta hrun með blóði, svita, tárum, reiði, sjálfsmorðum, hjónaskilnuðum, þrasi og ósætti, búsáhaldabyltingu, gjaldþrotum, landflótta ofl ofl.
Upptakan á fullt erindi til almennings að mínu mati vegna þess að þetta mál snertir okkur öll á einn eða annan hátt. Merkilegt að upptakan sé ekki löngu komin fram. Við þurfum að fá að leggja eigið mat á þessa upptöku og það er þá vonandi að hún útskýri þessa lánveitingu til fulls.
![]() |
Spyr hver sé óreiðumaðurinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.3.2012 | 19:40
Sameiningar Biskup
Ég vona að nýjum Biskup auðnist sú gæfa að efla kirkjuna okkar og verja fyrir árásum, sér í lagi þeim sem koma úr netheimum og með beittasta vopninu, tungunni, þólyklaborðið sé þar í milli. Bæði prestar og sóknarbörn. Þeir sem sjá allt á hornum sér þegar mál kirkjunnar ber á góma, endilega leyfið henni að amk að vera í friði. Þeir sem vilja hafa hana áfram, standið með henni og verjið þegar á hana eða þjóna hennar er ráðist. Mér hefur oft sviðið við að lesa það sem skrifað er í netheimum og enn meira við að sjá að því er oftast leyft að viðgangast óáreitt með öllu. Líka kirkjunni og þjónum hennar. Þögnin hefur verið æpandi hávær að mér hefur þótt. Það þykir almennt svo púkó að standa með kirkjunni og viðurkenna trú sína á Guð. En það þykir mér ekki. Ég er kannski svona púkó að mati einhvers, en þá so be it. Guð hefur ekki gert mér neitt slæmt né kirkjan, heldur þvert á móti.
Óskandi að sátt muni ríkja um nýjan Biskup sem og þessa kosningu og að það þurfi ekki kærumál og fleira að koma upp í kjölfar þessa milliriðils. Persónulega skiptir mig engu máli hvort nýr Biskup er kona eða karl. ég treysti þeim öllum sem buðu sig fram til að standa vörð um kirkjuna okkar. Ég held að það vilji fáir, ef á reyndi, sjá það gerast að kirkjan okkar deyji. En það mun hún gera hægt og rólega að óbreyttu. Mörg trúarbrögð verja trú sína með kjafti og klóm og skammast sín ekki neitt fyrir það. Það tökum við sem hér búum vonandi okkur til fyrirmyndar. Það er eitthvað að þegar fólk viðurkennir fúslega t.d. að horfa á klám , en það viðurkennir ekki trú sína á Guð, þó það eigi hana innst inni. Vinsælast er í neyð, að fólk kalli á Guð, hvort sem það gerist í hugsun eða upphátt.
Einstein sagði: ,, Það eru ekki illmenni sem skemma heiminn, heldur þeir sem horfa aðgerðarlausir á".
![]() |
Agnes og Sigurður með flest atkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 14:01
Forn Tax Heaven
Aumingjas sá gaur sem ætlaði sér að koma þessu undan skatti á sínum tíma...fyrst nú að finnast ! Eða kannski að þetta hafi verið ,, lán" sem hann fékk án nokkurra veða, hver veit ? Að hafa svo dröslað þessu alla leið til Bretlands að auki og svo ekki náð að eyða þessu og enginn annar heldur. Hann hefur kannski týnt PIN númeri þess tíma, fjársjóðskorti sínu ?
Vonandi að það taki ekki jafn langan tíma að finna allt það fé sem hvarf héðan í aðdragandi hrunsins, engum til gagns nema söfnun framtíðarinnar... ;) Verst að þetta er allt rafrænt í dag, en það finnast kannski einhver PIN númer á pappír, hefði þó verið betra ef þetta væri allt enn í klinki, pínu erfiðara að koma því undan eins níðþungt og það er, í miklu magni allavega.
Vona að ráðamenn um allan heim fari nú að átta sig á að það að koma háum fjármunum undan er ekki neitt nýtt, svo það er kominn tími á að þetta verði ekki hægt lengur. Allt rafrænt og rekjanlegt, svo mestmegnis allavegana. Ráðamenn til forna myndu án efa blóðöfunda þá nútíma tækni sem við höfum og ættum að nýta betur. Pínu meira mál að rekja slóð peninga til forna en það ætti að vera í dag. Spurning um vilja til að leysa þetta, sem kannksi skortir ?
![]() |
Fundu 30 þúsund rómverska peninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 11:55
Glæpahyski
Erum við það í augum bankanna sem treysta okkur ekki en við eigum að treysta þeim ? Rak augun í þrusugóða grein Arnar Gunnlaugssonar, byggða á hans eigin reynslu, sjá hér :
Stiklað á stóru, að þá hefur Örn verið í viðskiptum með fyrirtæki sitt í sama banka í mörg ár og nokkrar milljónir liggja þar að öllu jöfnu. Hann sótti um fyrirtækjakreditkort og þá fór bankinn fram á sjálfskuldarábyrgð á kortið. Óskaði þá Örn eftir að bankinn ábyrgðist skriflega innistæðu síns fyrirtækis en...því NEITAÐI bankinn !! Þykir Erni þetta til marks um að bankinn hafi ekki traust á sínum eigin bankarekstri og tek ég undir það sjónarmið.
Við eigum að treysta bankanum alveg blint, amk með innistæður umfram þessar frægu 20 þúsund Evrur hjá eintaklingum en sennilega ekki hjá lögaðilum..? En traustið þarf að sjálfsögðu að vera gagnkvæmt eins og Örn bendir réttilega á. Flott hjá þér Örn að þora að gera kröfur til bankans og ég vona að grein þín fái næga athygli til þess að umræða skapist um þetta í samfélaginu sem vissulega er þörf á. Vona að þú látir ekki undan kröfum bankans !!! Hættum að óttast bankana og förum fram á að okkur sé treyst. T.d. ætla Karen Millen og Hagar í mál við bankana, sem ég vona að fleiri geri og þori.
Bankar eiga ekki að drottna yfir viðskiptavinum sínum með ógnarvaldi og í fullkomnu ójafnvægi fyrir flest okkar. Við höfðum fæst okkar tök á að nota bankana eins og eigin heimabanka, það voru aðeins forréttindi örfárra að manni sýnist.
Smá pæling....fer sami banki ávallt fram á sjálfskuldarábyrgð þegar fyrirtækjakreditkort eru gefin út ? Líka hjá ,, stóru köllunum" ????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 10:28
Komið til að vera ?
Munu allir þeir sem lenda í svipuðum málum fá jafn mikið pláss í fjölmiðlum til að segja frá því sem gerðist og tjá líðan sína og þá með nafni og myndum í hvert sinn ? Eða verður látið skipta máli hver á í hlut hverju sinni í jafnræðissamfélaginu okkar ?
Vona að þessu máli ljúki með sátt allra sem hlut eiga að máli sem allra fyrst.
![]() |
Systir Guðrúnar svarar Bryndísi Schram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (69)
23.3.2012 | 00:22
Er Ave María íslenskt ?
Í fréttinni kemur m.a. fram :
,,Víkingur Heiðar Ólafsson kom fram á athöfninni, en hann var tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009. Víkingur Heiðar lék tvö íslensk lög fyrir verðlaunaafhendinguna, Sofðu, sofðu góði og Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns."
Þar sem þetta kemur fram hér, langar mig að athuga hvort einhver viti söguna með þetta fræga lag; Ave María. Google er meira á því að þetta sé eftir Bach og textinn eftir Schubert....hver veit þetta ?
Langar svo að grípa tækifærið hér og nú og fræðast um þetta. Frekar kjánalegt að segja að Íslendingur hafi samið þetta ef það er svo ekki alveg rétt eða maður veit þetta ekki almennilega.
Óska annars ML til hamingju með verðalunin fyrir bók sína ;)
![]() |
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs til Noregs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.3.2012 | 23:30
Konur sem hata karla
? Eða hefur jafnréttið sýnt á sér skuggamynd sem birtist í þessum glæpum sem nú beinast að körlum ? Konur stunda sem betur fer sárafá ofbeldiglæpi og það er vonandi að það haldist þannig áfram. Svo óvenjulegt er þetta og sem betur fer, að lögin í Zimbabwe ná ekki til kvenna sem nauðga, kemur m.a. fram í fréttinni. Ein tilgátan er að þetta eigi að koma í veg fyrir að það upplýsist um glæpi..virki þessi hugsanlegi svartagaldur þá munu þær sleppa með glæpi sína.
Hver hefði trúað að slíkt gæti gerst ? Vonandi að þetta verði stöðvað og að þetta breiðist ekki um heiminn. Nóg ofbeldi er fyrir og ekki þörf á að bæta neinu við það sem þegar er. Annars hélt ég að þetta væri heiti á skáldsögu þegar ég las þessa fyrirsögn, svo ótrúlegt er þetta.
![]() |
Konur nauðga körlum á hraðbrautum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)