26.3.2012 | 11:33
Leikjafræði
Í fréttinni segir m.a.: ,,..bankinn væri í mun betri samningsstöðu, í leikjafræðilegu samhengi.." man ekki eftir að hafa heyrt þetta áður..? Svo ég Googlaði og þetta er nokkuð áhugavert þykir mér.
Wikipedia segir m.a. :
,,Eitt þekktasta dæmi leikjafræðinnar nefnist siðklemma fangans (e. prisoner's dilemma).Hann lýsir þeim valmöguleikum og hugsanlegum útkomum þess þegar tveir einstaklingar, A og B, eru ákærðir fyrir glæp. Þeir eru aðskildir við yfirheyrslur og þurfa að ákveða framburð sinn. Ef báðir þegja fá þeir báðir mildan dóm. Ef annar bendir á hinn og hinn þegir er þeim fyrrnefnda sleppt en sá síðarnefndi fær þungan dóm. Ef þeir benda báðir hvor á annan fá þeir báðir dóma." - mikið er búið að benda hvor á annan þegar orsakir hrunsins ber á góma eins og vitað er. Enginn hefur bent á sjálfan sig so far.
Á vísindavef HÍ segir m.a. undir fyrirsögninni: ,, Hvað er leikjafræði ?"
,,Hvert sem viðfangsefnið er eiga líkön leikjafræðinga það sameiginlegt að í þeim er ákveðnu kerfi lýst með því að tiltaka hverjir taka ákvarðanir í því, hvaða valkosti þeir eiga, hvaða hagsmuna þeir eiga að gæta, hvaða upplýsingar þeir hafa og hvaða leikreglur eru rammi samskipta þeirra. Yfirleitt er gert ráð fyrir að aðilar taki rökréttar ákvarðanir sem miða að því að hámarka eigin hag en það er þó ekki algilt. Sum áhugaverðustu líkön leikjafræðinnar gera ráð fyrir að stundum geri menn mistök eða að þeir skilji leikinn ekki fullkomlega, að geta þeirra til að greina áhrif ákvarðana sinna og annarra sé takmörkuð."
Hvað starfa margir leikjafræðingar hjá Seðlabankanum ? Eða innan stjórnsýslunnar eða bara opinbera batterísins almennt ? Finn engann á Google með þessu starfsheiti. Kannski hefði mátt nota þessa fræðigrein meira ? Sem er einnig útskýrð sem einhverskonar regnhlíf eða þverfagleg umgjörð. Það hefði verið fínt að hafa haft slíka regnhlíf í því mikla ,,fárviðri" sem geysaði hér í aðdraganda hrunsins....
![]() |
Sala bankanna leysir vandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.3.2012 | 10:19
Allir nema einn
Skemmtu sér vel og nutu sýningarinnar. Sá eini var algjörlega í spreng og lá lífið á við að komast á wc á undan öðrum í lok sýningar, enda eflaust búinn að hlæja sig máttlausan. Í fátinu gleymdi hann að klappa, skiljanlega, enda á allra síðasta séns svo ekki færi illa og pínleg uppákoma myndi skapast...:)
Held það sé meira en óhætt að treysta viðbrögðum fjöldans og láta ekki einn mann á hraðferð stoppa sig í að sjá leikrit Jóns Gnarr.
![]() |
Klappaði ekki og gekk út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.3.2012 | 00:32
Segðu bara já
Þóra, sláðu til ;)
Þú yrðir án efa flott í þetta hlutverk, virkar kurteis, hefur fágaða framkomu, ert vel máli farin, virkar nokkuð klár, þægilega rödd og talanda. gæti lýst þér betur ef ég þekkti þig, en út frá skjánum get ég sagt þetta. Og að vísu frá Norræna húsinu þar sem þú stjórnaðir spjalli við Evu Gabrielson, sem bjó með Stig Larsson. Þá skynjaði ég nærveru þína pínu pons og hún var hlý og þægileg og það held ég öllum í salnum hafi fundist sömuleiðis.
Svo held ég að það yrði áhugaverð landkynning að fá hjón með 6 börn á Bessastaði, þar af 1 sem væri enn á brjósti. Og með heimavinnandi sjónvarpsvanan eiginmann að auki...5 stjörnur !!!
![]() |
Kurteisi að íhuga framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.3.2012 | 23:47
Fantar
Sem fara illa með fjórfætta málleysingja...hvernig koma þeir fram við mannfólkið ? Maka sína, börn, vinnufélaga , viðskiptafélaga ?
Hversu líklegt er að fantaskapurinn sé einungis tengdur dýrum, hvort sem eru hross, hundar eða önnur dýr ?
Og afhverju losar fólk sig ekki við dýrin sem það hirðir ekki um ? Er hluti af þessu þörfin fyrir að sína hver ræður og stjórnar ? Kúgun ? Skil ekki svona grimmd og hef aldrei gert.
![]() |
Ill meðferð á dýrum þjóðarsmán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2012 | 23:29
Og hvað svo ?
Verður þá það næsta að krefast þess að starfsumsækjendur og starfsmenn samþykki vinabeiðnir hugsanlegra sem og núverandi vinnuveitenda ? Það er bannað í USA að spyrja persónulegar spurninga á borð við hjúskaparstöðu, fjölda barna eða hvort viðkomandi eigi börn eða ekki og svo það sem fram kemur og evt fleira.
Að fara fram á að hnýsast inná FB, hefði ég haldið að þyrfti ekki að banna sérstaklega með nýjum lögum, þar sem það virkar svo augljóst að verið er að reyna að smeygja sér gróflega framhjá lögunum eða ekki í raun, því á FB eru upplýsingar um margt og oft allt, það sem ekki má lögum samkvæmt spyrja fólk um.
Leiðinlegt að það skuli þurfa að setja lög um það sem virkar svo sjálfsagt að láta ógert, eins og hér er fjallað um að krefast lykilorðs sem veitir aðgans inní einkalíf fólks.
,,Í Kaliforníu hefur þegar verið lagt fram frumvarp til laga sem myndu banna vinnuveitendum að krefja bæði starfsmenn og starfsumsækjendur um notendanöfn þeirra á samskipamiðlum, sem og lykilorð. "
![]() |
Vinnuveitendum verði haldið frá Facebook |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.3.2012 | 15:49
Happy, Happy, Happy Ho
Það er óskandi að sá dagur renni upp að eftirspurn eftir vændi deyji drottni sínum.
Og um leið þráláta mýtan um Hamingjusömu Hóruna.
![]() |
Húðflúra strikamerki á vændisþræla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2012 | 15:27
Ánægjulegt
Að lesa svona frétt, enn ein jákvæða fréttin um velgengni íslenkrar menningar-og listar. Á dögunum var ungur maður sæmdur BAFTA verðlaunum í kvökmyndagerð, muni ég það rétt. Einar Már fékk litla Nóbelinn um daginn ( áts, man ekki hvað þau verðlaun heita... ?) og mér þykir næstum eins og það líði ekki sú vika að fréttir af þessum toga sjást í fjölmiðlum og mjög áberandi eftir hrun og ég veit ekki hvort þeim hafi fjölgað eða ég veitt þeim meiri athygli frá hruninu 2008.
Vona að fleiri verði jákvæðir gagnvart því að opinbert fé fari í skapandi geirann, hvað sem það heitir hverju sinni; listamannalaun, rithöfundalaun eða annað. Þetta skilar sér tilbaka á einn eða annan hátt og verðmætin eru alvöru; ekki plat eða loft á Excel skjali.
![]() |
Bók Hallgríms í 8. sæti á Amazon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2012 | 14:31
Skætingur
Og stælarnir og frekjan í bönkunum, eins og þeir hafi efni á því ! Svei, svei.
Það mætti halda að þeir telji sig græða á því að viðhalda hroka sínum stælum , skætingi og frekju, vitandi að álitið á þeim og traust er einskis virði, amk ekki ýkja mikið.
Að drekkja fólki með skuldum og öðrum með upplýsingum á ekki að vera hluti af verksviði þeirra og skrítið að þeir allir 3 geri það sama eins og hér er fjallað um, sem svar við sömu einföldu spurningunni þar sem svarið hefði átt að komast vel fyrir á einungis einu A4 blaði. Jafnvel hefði eitt A5 nægt. Það er nú meira hvað maður á að trúa því að hér ríki samkeppni á bankamarkaði ....LOL
Látum ekki bankana stjórna okkur og hræða. Við höfum alltaf þau völd að taka innistæður okkar út.
![]() |
Drekkt í upplýsingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2012 | 10:05
IcelandExpress hætt
Eða hvað ? Þarna kemur fram að 17 félög annist flug um Leifsstöð og ég taldi þau líka á listanum og það passar, 17 félög eru upptalin með nöfnum.
Hrekkur ? Eða er IcelandExpress komið með nýtt nafn ? Eða eru þeir hægt og hljótt hættir en enn að selja miða ???
Þetta langar mig til að vita, því maður trúir jú því sem fram kemur í fjölmiðlum og ekki lýgur Mogginn !
![]() |
15 þúsund farþegar á dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.3.2012 | 00:54
Nýtt og alvarlegt
Það þykir mér og man ekki eftir að eftirfarandi hafi áður komið fram um PIP málið ;
,,Eftir að upp komst að PIP-púðarnir geymdu iðnaðarsílikon leitaði hún til Jens sem skoðaði hana og sagði allt líta eðlilega út. Þá gat hann ekki staðfest við mig að ég væri með PIP-púða. Það er ekki fyrr en ég fæ boð í ómskoðun að ég fæ það staðfest. Í ómskoðuninni kom í ljós að báðir púðarnir voru sprungnir og þá brotna ég alveg saman."
Hvað ætli langur tími hafi liðið á milli þess sem læknir skoðar hana og segir allt 100% ok, þar til hún fór svo í ómskoðun ? 3 mánuðir ca. ? Veit ekki en gæti verið ca sá tími, amk ekki mjög langur að ég giska.
Og svo að hafa ekki geta staðfest hvaða tegund, það skil ég ekki ? Hvernig gat þá verið að hún fékk boð um ómskoðunina ??? Sé samt ekki hvaða læknir setti púðana í hana í byrjun, fyrir 10 árum. Ef það er sami læknir og sagði allt ok í skoðun og vissi ekki hvaða tegund, þá þykir mér það vera alvarlegt.
![]() |
Getur ekki lýst því með orðum hvað henni er létt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)