30.3.2012 | 09:35
Óþarfi að eiga til að eyða
Hversu eftirsóknarvert er að fá hagvöxt sem án efa verður að mestu fenginn með dýrum lánum og mikið af þeim verðtryggðum að auki ? Minnir að ca. 50% hagnaður bankanna sé kominn frá verðtryggðum lánum. Og verðbólgan er á hraðri uppleið, búið að spá því að hún aukist...beint í verðtryggðu lánin okkar. Á sama tíma býður einn bankanna ný húsnæðislán með 4,10% vöxtum með vaxtaendurskoðunarákvæði. Svona eins og þeir haldi að fólk sé bjánar að taka sénsinn á því að vextir hækki ekki....eins og að spila í rússneskri rúllettu þar sem bankinn heldur einn á vopninu...sneddý tilboð.
Man að eftir hrunið 2008 var talað um það að bankarnir urðu stífari með yfirdráttarlán og það var líka talað um að heimildir fólks voru lækkaðar. Líka á kreditkortum. Mig langar að vita hvort þeir séu orðnir rosa ,,góðir" á ný, svo fólk hafi einhvern pening til að eyða og séu komnir á full svíng á ný með yfirdráttalán á gósenvöxtum og auknar heimildir á kredit. Eitthvað þarf að gera, fólk er jú búið að taka út tugi milljarða úr viðbótarlífeyri sínum og allt tómt þar.
![]() |
Hækkar hagvaxtarspá sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2012 | 09:06
Ég táraðist
Í hjarta mínu að lesa þessa frétt, svo leið er ég yfir því að við erum með 63 Alþingismenn á launum til þess að ÞJÓNA okkur öllum, hvort sem við kusum þau eða ekki og hvað sem okkur kann að finnast um þau.
Að vera með þessi endalausu læti og stæla, hefndir og skot út og suður. Hvernig á að ná upp trausti og virðingu á Alþingi okkar, þegar fréttir í þessum stíl eru nánast daglegt brauð ? Sé ekki hvernig það á að vera hægt og það verður að ríkja traust á Alþingi og virðing. Bruðlandi með fjármuni okkar allra. Takandi af okkur það að fá að kjósa; að fá nýja Stjórnarskrá. Eins og hver annar þjófnaður. Nú þarf að hafa aðra og sér kosningu um þau mál sem til stóð að kjósa um samhliða Forsetakosningum. Til þess að hafa þetta nógu dýrt. Vissulega er það atvinnuskapandi sé það markmið þeirra á tímum niðurskurðar.
Læt þetta nægja að sinni svo ég skrifi nú ekki eitthvað meira sem ég sé mikið eftir á meðan ég er svona leið og reið um leið ;( ;( ;(
![]() |
Ekki kosið samhliða forsetakjöri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2012 | 00:47
Eitthvað fissí
Þetta viðtal Í Kastljósinu...? Forstjórinn virtist svo stressaður og í mikilli vörn. Þannig upplifði ég þetta viðtal. Og svo vona ég að skatturinn renni öllum þessum tölum saman um fiskverð og hlut sjómanna við laun þeirra. Heildarupphæð launa allra sjómanna og starfsfólk í fiskvinnslum, sbr. við hagnað Samherja...hver ætli % talan sé í launakostnaði ? Svo maður geti séð hvort svigrúm sé til hækkunar.
Jóhannes er afar góður fréttamaður og kurteis. Það er til fyrirmyndar þykir mér. Furða mig samt á því hversvegna Helgi Seljan var ekki látinn taka þetta viðtal, þar sem hann var með fyrri innslög um málið. Af hverju ætli það hafi verið skipt um fréttamann ?
Annars má vel vera að allt sé satt og rétt og ekki öfunda ég rannsakendur málsins.
![]() |
Þorsteinn hafnar ásökunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.3.2012 | 23:03
Lögreglubílar
Eru stundum notaðir í stað sjúkrabíla, samkvæmt manni sem ég heyrði viðtal við í dag. Hann hafði veikst og var sviptur sjálfræði sagði hann frá. Það þótti honum ekki vera í lagi á meðan likamlega veikt fólk er sótt með sjúkrabílum. Það þykir mér heldur ekki vera í lagi, að lögreglubílar séu notaðir eftir því hvað sé að.
Eins tel ég varasamt að það verði einungis yfirvalda að svipta fólk sjálfræði, þó ég sé sammála að það þurfi að breyta því eins og það er núna; að það sé einungis fjölsyldan sem þurfi að fara fram á það. Væri evt ráð að fjölskyldan hefði amk andmælarétt sem væri þá virtur. Ekki vil ég sjá þá þróun að kerfið geti ákveðið þetta sjálft. Svo heyir maður stundum af fólki sem neitar líkamlegri meðferð og er í afneitun að eitthvað sé að. Ekki er það fólk þvingað á sjúkrahús í aðgerð eða til að taka lyf svo ég muni eftir að hafa heyrt um. Af hverju er það ekki alveg eins gert ?
Annað sem ég hef oft velt fyrir mér varðandi sjúkrahúskostnað. Hvernig ætli það sé í þeim löndum sem fólk þarf sjálft að greiða reikningana til fulls eða að stórum hluta. Þegar það er svipt sjálfræði og vistað á geðdeildum...fær það svo reikning sendan heim eftir það ? Þó svo það hafi ekki sjálft stofnað til kostnaðar; ekki óskað eftir þjónustu viðkomandi lækna og sjúkrahúss ?
Gott að spennitreyjur tilheyri fortíðinni, sem og keðjur og hlekkir. En það er ekki nóg að keðjur og hlekkir séu fjarlægðir á meðan ósýnilegar keðjur og treyjur eru enn til staðar í ýmsum myndum.
Gott að við stöndum vel í þessum málum miðað við marga aðra. En ég hefði þó viljað sjá samanburð við þá sem standa sig allra best, sem ég veit ekki hvaða land gerir. Það er ávallt best að miða sig við þann besta en ekki þann sem stendur sig verr eða illa en eigið land.
![]() |
Nauðungarvistun vandmeðfarin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2012 | 21:59
Stefnir í
Spennandi Forsetakosningar og um leið, þjóðaratkvæðagreiðsluna sem talað hefur verið um samhliða þeim.
Gott að lífsmark skuli vera í lýðræðinu. Það á enginn að eiga nokkurt embætti hér í áratugi. Enginn.
![]() |
Kristín íhugar framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.3.2012 | 21:17
Tortula Dollarar með heimþrá ?
Fram kemur að greiða þurti með seðlum.
En það vantar hverjir keyptu og séu það ,,erlendir aðilar", þá þarf að sjálfsögðu að segja hverjir það eru. Gætu allt eins verið plat útlendingar með útlensk nöfn á fyrirækjum með group eitthvað.
Vil vera viss um að peningar sem gufuðu upp í hruninu 2008, séu ekki á leið inní landið með þessum hætti. Það hljóta að vera peningar sem þarf að gera upptæka hvort sem er, eða hvað ? HVerngi læt ég, það var engu stolið hér, þetta var aldrei neitt alvöru, bara loft...sem þarf samt að borga með alvöru peningum í gegnum skattahækkanir og niðurskurð. Skritið.
![]() |
Evran keypt á 239 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2012 | 19:34
Corn Fleks Kjúklingabringur-rosa gott ;)
Langar aðeins að testa mig áfram á blogginu mínu og fikta smá; skipta aðeins úr fréttaþrasinu..Sjá hvernig gengur að setja inn myndir með færslu. Alveg vonalaus í tölvum og tækni ;( En fjölskylda mín og vinir mega þakka sínu sæla að ég er öllu færari í eldhúsinu ;) Set hér að ganni uppskrift að kjúkingabringum sem ég var með í matarboði um daginn í þeirri von að það gleðji jafn mikið í Netheimum og það gerði í Mannheimum. Ég skálda venjulega við eldavélina það sem ég bý til, stundum smá á meðan ég er í búðinni og er ekki vön að nota uppskriftir og man oftast aldrei sjálf hverju ég blanda saman eða hvaða krydd ég nota. Svo núna ætla ég að prófa að skrifa niður og set 1.tilraun með það hér og nú á bloggið mitt. Pínu í belg og biðu sé ég.. en óhætt að maila mér ef þið lendið í vandræðum með eitthvað. Allavega á meðan ég man þetta ennþá...;)
Corn Fleks Kjúklingabringur- passlegt fyrir 6 manns
2 pk kjúklingabringur
Ca. 300 gr. Kellog´s Corn Fleks
2 egg og smá mjólk
Krydd: Season all, svartur pipar, hvítlaukssalt, sweet chili og soyja sósa
Olía til steikingar
Aðferð:
Ég skar bringurnar í tvo bita, þvert. Kryddaði þær beggja megin og setti svo smá soyja yfir. Leyfði þessu að standa í ca. 2 klt. en það þarf ekki að vera svo lengi held ég. Pískaði svo eggin saman og setti smá mjölk útí, þá er þetta ekki alveg eins þykkt, virkar betur þannig þykir mér. Hitaði pönnuna og svo olíu á hana, eins lítið og ég taldi mig komast af með ( bévítas kaloríur..). Á meðan olían hitnaði, setti ég Corn Fleksið í plastpoka og muldi það með höndunum. Setti svo kjúklingabringurnar í , nú búið að setja þær í eggjahræruna. Og svo hristi ég pokann þar til ég sá að mulið Corn Fleksið huldi bringurnar vel. Svo brúnaði ég þær á pönnunni og setti smá af sama kryddinu aftur á, beggja megin. Setti þetta svo í eldfast mót og inní 180 gráðu heitan ofn í ca. 35 mínútur. Læt mynd fylgja en hún er ekki svo góð en sú eina sem ég er með.
Svo bar ég þetta fram með salati, bökuðum kartöflum( með olíu og grófu salti) og smábrauði með rauðu pestó, ásamt rjómasveppasósu með beikoni og lauk. , sjá uppskriftir neðar. Er með mynd af salatinu og sósunni. Í eftirrétt var ég með karamelluskyr sem ég bjó til en á enga mynd ;( Svo ég læt fylgja mynd af rjómatertu úr öðru matarboði uppá gamla mátann. Bakaði 2 svampbotna og setti koktailávexti úr dós á milli og ofan á. Það er allt og sumt og þvílík lukka sem hún olli ! Hvorki ég né aðrir höfðu smakkað þessa gömlu góðu tertu í milljón ár eða svo. Skil ekki í því að kaffishús skuli ekki selja þetta, alveg er ég viss um að þessi klassíksa terta myndi seljast eins og heitar lummur, sem fást ekki heldur að vísu...Skreytti að ganni með súkkulaðihjörtum, það var eina nútímasvindlið.
Salatið
Ísberg salat haus, púrrulaukur, rauð paprika, agúrka, cherrý tómatar, ristuð sesamfræ, salthnetur, radísur, rifinn gouda ostur og rifinn parmesan. Skreytt með appelsínusneiðum, radísum og tómötum.
Sósan
2 bakon bréf, 1 box sveppir, 1/2 gulur laukur, 2 knorr beef teningar, 1 sveppasmurostur, 1 peli rjómi, smá mjólk, maizena til þykkingar og ca. 1 tsk. jarðarberjasulta ( má t.d. vera rifsberjahlaup). Og sömu krydd og á kjúklinginn; season all, hvítlaukssalt, svartur pipar og sweet chilli.
Verði ykkur að góðu ;))
29.3.2012 | 17:57
Tapað stríð
Algjör uppgjöf Seðlabankans, viðurkennt hér með og skjalfest með nýjum seðli. Verðbólgumarkmiðin eru orðin tóm. Það er ekki neitt nýtt, þannig hefur það verið í mörg ár.Líka fyrir hrunið 2008. Leyst núna með einu viðbótarnúlli. Sigur verðtryggingar og bankamenn geta skálað ! Hvenær verður 500 kallinn að klinki ? Áður eða um leið og sá nýji kemur út ? Og þá getur t.d. Strætó hækkað uppí 500.- það er svo þægilegt að henda bara einu klinki í boxið...
Maður þætti nú ekki mjög trúverðugur í megrunarátaki með það markið að missa nokkur kíló segjum 4,5 kg. svo maður komist í kjólinn fyrir Páskana, ok aðeins of seint, segjum þá bara fyrir næstu jól svo maður missi nú ekki af Páskaeggjunum og þá hægt að bæta 1/2 kg. við eða svo. Og væri svo á sama tíma að panta sér sérsaumaðan kjól í nokkrum númerum stærri en það sem maður notar núna og hafa hann reddý... fyrir jólin 2013...;)
![]() |
10.000 króna seðill gefinn út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.3.2012 | 23:23
Huldubókhald
Hjá ríkinu, eða hvað er málið ? Skil ekki af hverju það er ekki vitað hvort bætur hafi verið greiddar eða ekki ? En þarf ekki að veita ferðamannaáritun fyrir þá sem koma vilja frá Kína ? Og ráðum við þá ekki hverjir koma og hverjir ekki ? Ef það hefur verið þannig árið 2002, af hverju ættum við þá að greiða bætur ? Eru Falun Gong meðlimir að fara fram á bætur ? Liggur nokkuð meira á að greiða það fyrr en tímann sem það hefur tekið Breiðavíkurbörn að fá sínar lúsa bætur ? Sem er aðeins örlítið brot af réttmætri upphæð að auki. Svona víst engum má mismuna hér í öllu jafnræðinu....
Annars þótti mér þetta og þykir enn smán á okkur, og leitt hvað ráðamenn þess tíma hafa verið hræddir við Kínverja. Og evt er það þannig enn, skammt er að minnast hvað þeir tóku því illa fyrir stutu síðan þegar Kínverji fékk friðarverðalun Nóbels sem þeim var ekki þóknanlegt. En sé enginn úti að kvarta núna, til hvers þá að vekja athygli á þessu nú, 10 árum síðar ?
,,Hann segir síðan óljóst hvort umræddir einstaklingar hafi fengið greiddar bætur vegna kostnaðar sína. Það fer tvennum sögum af því hvort þeir hafi fengið bætur og það er náttúrlega kurteisi að greiða þeim bætur fyrir þetta.
![]() |
Kurteisi að Falun Gong fái bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2012 | 17:49
Klón´ann bara !
Er það ekki bara það sem þarf að gera ?
Annars held ég að þetta sé of mikið fyrir hvern sem er, að hafa svo mörg málefni á herðum eins manns. Það eru takmörk á öllu, líka þeim verkefnum sem hægt er að hlaða á eina manneskju.
Sem að auki er raddlaus. Ég hélt fyrst að hann væri farinn í frí eða / og veikindaleyfi eftir að hafa heyrt í honum í Kastljósinu um daginn.
![]() |
Mótmæla fjarveru Steingríms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)