23.4.2012 | 10:53
Eitt sinn er allt fyrst
Í dag verða fordæmin sköpuð fyrir ráðherra nútíðar og framtíðar. Hvernig sem fer í dag kl. 14 eins og svo rækilega er búið að auglýsa. Ekki hafa þessir 15 dómarar öfundsvert hlutverk og að þurfa svo einnig að sitja undir því að verði hann sakfelldur sé það póliskt. Aðeins sýkna verður þá sönnun þess að dómurinn er ekki pólitkískur. Þannig skil ég þetta amk.
En það má segja að fordæmi muni þá einnig skapast fyrir skipstjóra nútíðar og framtíðar á sjó. Það er svo mikið búið að líkja hruninu við skipsbrot og þá að fyrrverandi Forsætisráðherra hafi verið skipstjórinn í brúnni. Fram til þessa hafa skipstjórar á sjó verið látnar sæta ábyrgð, þó svo þeir séu ekki einir um borð að stjórna skipum. Því hefur ekki verið mótmælt kröftulega svo ég muni. Nú í Apríl er heil öld síðan Titanic fórst. Enn er einungis talað um ábyrgð skipstjórans á því hvernig fór.
Hvað verður svo gert með lögin um ráðherraábyrgð efitr daginn í dag ? Það var nú liklegast aldrei gert ráð fyrir að á þau myndi reyna. En til hvers voru þau þá sett og viðhaldið í heila öld ?
Ég óska engum þess að þurfa að sitja í fangelsi. Megi réttlátur dómur verða kveðinn upp í dag, sem og ávallt og í öllum málum, bæði stórum sem smáum.
![]() |
Engin fordæmi til að styðjast við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.4.2012 | 01:37
Enn í tísku
Því miður. Það virðist aukaatriði hvernig fólki líður. Fólki er ætlað að færa sig á milli svæða til að fá vinnu. Eins og það sé álitið að það skitpi engu máli þó fj0lskyldum sé tvístrað. Við t.d. tókum á móti helling af útlenskum farandverkamönnum víðsvegar að úr heiminum. Nú hefur það snúist við. Íslendingar neyðast til að yfirgefa fjölskyldur sínar og vini til þess að vinna. Sumar fjölskyldur fara saman, en þurfa þá að skilja vinina eftir og koma sér fyrir á nýjum stað, eins og t.d. í Noregi. Svona lífi hafa fjölskyldur þurft að lifa í áratatugi eða lengur, í USA. Það er næstum sjalgæft þar að fjölskyldur búi í sama bænum ævina út. Oft hittist fólk aðeins á Thank´s Giving.
Sama þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Það er ætlast til þess að fólk fari um langan veg til að fá aðgerðir. Sent í viðgerð eins og hver önnur vél. Eða eins og hvert annað vélmenni. Sem hafa engar tilfinningar. Og Íslendingar vilja líka græða á þessu. Flytja inn sjúklinga. Eins og vélar sem þarf að laga. Eins og það sé algjört aukaatriði hvað kærleikur nánustu fjölskyldu og vina er mikilvægur þáttur í bata. Enn er verið að spá í að byggja eitt risastórt verkstæði, afsaka, sjúkrahús við Hringbraut. Á sama tíma er t.d. nýbúið að loka St. Jósefs. Hverju verður lokað næst ? Er stefnan sú að hafa aðeins eitt risastórt LSH á öllu landinu ? Sem lítur út eins og álver plantað í hjarta Reykjavíkur. Er þetta planað fyrir öll ,,tannhjólin" á einum stað ??? Er það hin rétta ástæða þess hvurslags risa ferlíki þetta á að vera ??? Fæðingadeildum hefur verið lokað eða /og þjónusta skert. Það á að vera ok að senda konur, eins og pakka, um lengri veg og halda í sér á meðan og fæða svo þar sem kerfið vill; þar sem það er svo hagstætt. Tilfinningar, óöryggi , ótti og eðlilegar kvartanir er ekki hlustað á. Þetta hefur ekki neitt með hrunið að gera. Þetta var byrjað áður.
Allt í nafni hagræðingar ( græðginnar).
Sama var með t.d. Breiðuvík. Það var ekki hugsað útí það hversu vond áhrif það hefði að aðskilja fólk eins og gert var. Sama með elliheimilin enn í dag. Listinn er langur.
Þetta viðhorf er ekki í lagi og þarf að breytast. Það sjá vonandi allir. Til þess þarf hvorki afburða greind né 5 háskólagráður. Fólk þarf að fá vinnu og þjónustu þar sem það býr og vill búa með þeim sem það elskar og vill deila lífi sínu með . Einmitt af því að við erum hvorki vélar né vélmenni eða pakkar. Hamingjusamt starfsfólk vinnur betur og um leið skilar það meiri hagnaði. Þetta ættu einmitt peningaölfin að sjá en sjá ekki því miður. Því fylgir mikið hagræði ( meiri gróði ) að hamingja og vellíðan fólks sé tryggð.
Á meðan það er fólk með tilfinningar og sálir sem hafa kosningarétt, ræður sig til vinnu og eru viðskiptavinir en ekki vélmenni, þá þurfa stjórnmálamenn og fyrirtækjaeigendur að átta sig á því að kerfin þurfa að gera ráð fyrir einmitt því. Fólk þarf ást, rétt eins og mat, drykk og húsaskjól. Annars visnar það upp og deyr. Skype leysir ekki mannlega samveru, kærleik og þörfina fyrir knúsi af hólmi. Sem betur fer. Þetta ættu ráðamenn heimsins og buisness menn einmitt að vita. Því þeir fljúga á milli til að funda, þó þeir hafi líka Skype. Jafnvel þó því fylgi þvílík oft mega fyrirhöfn og kostnaður með her lífvarða.
![]() |
Forsetinn: Maðurinn er ekki vél |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.4.2012 | 09:41
Framtíðin
Ég smellti mér í Hafnarhúsið í gær og þessi sýning er stórkostlega flott Það var algjörlega fullt útúr dyrum og ég þarf að fara aftur til að skoða hana betur. Mér þykir það yndislegt hversu margir voru þarna og hafa áhuga á listsköpun í sinni fjölbreyttu mynd.
Fyrir alla þá sem þykir allt vonalust og sjá enga framtíð á landinu okkar fagra: skellið ykkur á sýninguna og sjáið sjálf hvað við eigum marga frábæra listamenn sem hugsa inní framtíðina og gefa hverjum sem þiggja vill von um bjarta framtíð með listsköpun sinni. Það er svo mikill og áþreifanlegur kraftur þarna sem fer ekki framhjá neinum.
Ég óska þeim öllum til hamingju með verk sín og óska þeim velgengi í lífi sínu og listsköpun ;)) Takk fyrir að deila hæfileikum ykkar með okkur.
![]() |
Fjölbreytt sýning listnema í Hafnarhúsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.4.2012 | 21:28
Brjóstin
Á Vigdísi voru umtalsefni á sínum tíma, þegar hún fyrst bauð sig fram.
Hún fékk asnalega spurningu vegna aðgerðar sem hún hafði farið í á brjósti og svaraði því til :
,, ég hafði nú ekki hugsað mér að leggja þjóðina á brjóst",
muni ég þetta rétt. Að minnsta kosti man ég að hafa heyrt þetta svona þó langt sé um liðið og ég mjög ung að árum. Ég man hvað ég var undrandi þegar ég heyrði af þessu. Mig rámar óljóst í að eitthvað hafi verið gert mál úr því líka að hún var einstæð móðir með ættleitt barn en er ekki alveg viss. Sé þetta rangt munað hjá mér og rangt kvótað, biðst ég afsökunar og mun þá fjarlægja þessa færslu fái ég ábendingu um að þetta sé óvart rangt hjá mér.
Nú , 32 árum síðar, er það bumbubúi Þóru.
Merkilegt hvað konur lenda í þegar þær vilja komast í háar stöður. Karlmenn sleppa oftast talsvert betur, amk með það sem snertir karlmennsku þeirra og föðurhlutverk. Orðið nokkuð þreytandi að fólki sé ekki treyst til þess að taka ákvarðanir sjálft um hvaða störf það telur sig geta sinnt.
![]() |
Þóra og umræðan um fæðingarorlof |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
21.4.2012 | 20:13
Af hverju er opið fyrir komment ?
Ömurlegt þegar ráðist er á fólk og það stungið með hníf. Ég vona að konan hafi þetta af og batni sem fyrst.
En eftir hverju er farið þegar svona mál koma upp ? Af hverju er opið núna fyrir möguleika á að kommenta en t.d. ekki þegar fyrstu fréttir bárust af því að framkvæmdastjóri á lögmannsstofu var stunginn. Sjá hér frétt, þar var lokað fyrir möguleikann á kommenti :
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/05/alvarlega_slasadur_eftir_aras/
Er þetta mannamunur sem er látinn ráða eða er annað sem ræður og þá hvað ??? Er það álit um hversu alvarlega talið er í fyrstu að fólk er slasað ? Mér þykir oft undarlegt af hverju stundum er opið á komment á svona fréttir, fréttir af bílslysum og fleirum sem varða persónulegan harmleik fólks sem það verður fyrir og þætti réttara ef sömu reglum væri fylgt með öll þessháttar mál.
Ég óska þeim báðum góðs bata og harma það sem þau urðu fyrir.
![]() |
Kona stungin með hníf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2012 | 00:52
Ekkért mál
Við höldum bara áfram að borga og hlakkar til að verðbólgan auki enn greiðslubyrgðina. Svo vandinn verði pottþétt stærri og illviðráðanlegri. Fínt fyrir bankana að verið sé að skoða þetta í rólegheitum í bráðum 4 ár og við dúllumst áfram með hækkandi byrgðum næstu árin og áratugina. Hagnaður þeirra byggist að stóru leiti á því. Tuðum og nöldrum , fúl og örg. Ekki tekið mark á því reyndar. En ráðamenn hafa áratugareynslu af því að nöldurtíðnir ganga hér yfir eins og hverjar aðrar skítalægðir. Þverpólitísk reynsla sem gengið hefur í arf kynslóð fram af kynslóð. Við erum þægilegir skuldaþrælar.
Endilega ekki gera kröfur á bankana að standa við endurgreiðsuáætlanir. Til hvers er fólk látið skrifa undir þetta þegar íbúðalán eru tekin ???
Lyklatillagan....baktjaldaleið til að koma upp leigumarkaði með hjálp eignaupptöku. Króa fólk útí horn leyfa því af góðmennsku einni saman að skila inn lyklum. Skipta svo um sílendera og leigja sama fólkinu sama húsnæðið. Með hærri mánaðarkostnaði og svo á það pottþétt ekki neitt eftir 25 eða 40 ára leigu.
Hefði verið vilji til að leysa þetta og það fyrir löngu síðan, væri þetta ekki enn eftir tæp 4 ár í skoðunarferli. . Því miður skortir viljann ;((
![]() |
Skuldamál heimila í biðstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.4.2012 | 22:20
Skelfilega létt
Að brjóta á rétti fólks.
Það þarf klárlega að styrkja dómstólinn og sorglegt hversu svakalega mörg mál berast dómstólnum og bíða úrlausnar. Eitthvað mikið er að með þá dóma sem kveðnir eru upp. Sá ekki í fréttinni hvað biðtími er langur þar en minnir að það séu mörg ár. Alltof mörg ár. Og mörgum málum er síðan vísað frá. Var það 90% ? Og svo kostar þetta svo mikið að það er flestum ófært að leita á náðir dómstólsins. Vilji ríki Evrópu ekki eyða meiru í að reka dómstólinn, þmt Ísland, eru þau í leiðinni að segja að þau vilji ekki að fólk fái réttlæti. Hvað þá að taka því að fá skammir þaðan og þurfa að viðurkenna mistök sín.
Þetta vita dómstólar Evrópu. Og stressa sig evt mjög lítið þó úrskurðir séu ekki 100%. Líkurnar á því að yfir sé kvartað eru hverfandi. Enn minni að mál vinnist þó þau séu tekin fyrir. Girðingarnar eru alltof háar. Og fólk er í raun læst inni bjargarlaust eftir tekjum. Eins og á Titanic.
Það sorlegasta er að mér þykir það vera mannréttindabrot hvað fólk þarf að bíða lengi, hvað það er ólíklegt að mál fái umfjöllun og hvað það kostar mikið. Þó þetta sé möguleiki, þá er hann svo óraunhæfur. Þetta jafngildir næstum því að hann sé ekki til sem möguleiki. Minnir á sögu um handalaust barn sem mátti fá sér eins margar kökur og því langaði í. Kökukrúsin var í efstu hillunni og útilokað að barnið gæti bjargað sér með það sjálft sem var forsenda þess að það mátti hrúga í sig kökum að vild. Gagnlaus góðmennska eða fantaskapur ?
Að búa í réttarríki og hafa svo ekki kost á að fá rétt sínum framgengt er í raun það sama og að hafa hann ekki. Fyrir langflest íbúa álfunnar. Þessu þarf að breyta. Og sama gildir um málsmeðferðartíma og kostnað hér heima. Það er mjög hættulegt að þetta sé svona erfitt, dýrt og seinlegt. Það þýðir bara :
- Fastar verður troðið á fólki.
- Fleiri óréttlátir dómar munu sjást.
- Fleiri munu íhuga að taka lögin í sínar hendur.
![]() |
Ísland gott dæmi segir Ögmundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2012 | 21:26
Hneysa
,,Fjölskyldan hafði leitað til lögreglu en þar var þeim tjáð að um nytjastuld væri að ræða og lítið hægt að gera. Bíllinn myndi hins vegar koma í leitirnar eftir einhvern tíma og nefndi lögregla þrjá mánuði."
Lítið hægt að gera...en þó eitthvað og stundum ? Hversu lítið er þetta litla og hvað er það ??? Skiptir máli hver á bílinn sem stolið er ? Gerir Lögreglan ADLREI neitt þegar bílum er stolið ??? Aldrei nokkurn tímann ??? En ef það er 100% bílalán á bíl sem stolið er ? Er þá brugðist við vegna þess að þá er ,,réttur" eigandi sem gæti tapað ??? Á semsagt ekki að hringja í Lögreglu og tilkynna þjófnað ?? Eða vilja yfirvöld að það sé gert þá bara til þess að halda statistic ? En svo ef bílnúmeri er stolið, þá er brugðist við....sem kostar þó smáaura í samanburðinun..en hvernig læt ég, það er oftast gert til að stela bensíni og það má ekki snerta verðmæti þeirra stóru máttugu með milljarðaskuldir sínar sem hvíla á bensínbúllunum...auðvitað ekki ;))
Og svo í hvert sinn sem kjúkling er stolið úr Bónus þá eru laganna verðir mættir med det samme !! Þetta eru ekki ásættanleg skilaboð að það sé í lagi að stela öllu og hafa af almenningi; venjulegu fólki. Kannski þarf fólk sem lendir í þessu bara að færa smá í stílinn og segja að það hafi verið kjúklingur sem ekki var greitt fyrir úr Bónus, í skottinu. Þá væri leitað bakvið hvern hól undir eins.. ;))
Væri evt ráð ef Lögreglan væri með skilaboð þegar hringt er til að tilkynna þjófnað, yfir það sem ekki neitt er gert í; þegar það er tímasóun að hafa samband. Og hafa það á netinu líka lista yfir nytjahluti sem er ok að stela. Sparar tíma fyrir alla. Þvílík hneysa og vond skilaboð að almenningur sem greiðir kostnað við löggæslu, skuli svo ekki fá hjálp þegar eigum þess er stolið !!!
Ég virkilega vona að fjölmilafólk ræði þetta við ráðamenn okkar. Þessu þarf klárlega að breyta.
En gott að þetta fór allt vel og að bíllinn skilaði sér til eigenda sinna ;))
![]() |
Neitaði að gefast upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2012 | 09:10
Nei
Það þarf að afskrifa, leiðrétta, hvaða nöfn sem þetta heitir allt. Standa við upphaflega endurgreiðsluáætlun.
Nokkrir útvaldir hafa fengið samtals þúsundir milljarða afskrifaða og haldið eigum sínum; ekki þurft að skila lyklunum. Þar er komin reynsla og sú fyrirmynd sem almenningur á einnig að njóta að sjálfsögðu !!
,,Það er ekki síst athyglisvert þegar haft er í huga að bankar hafa á síðustu misserum treyst sér til að bjóða upp á 4-6% óverðtryggða vexti." - auglýsingartrikk í þeirri von að fólk bíti á. Þetta eru lán með breytilegum vöxtum( hvort það heitir vaxtabreytingaákvæði ?) á tímum óðaverðbólgu.
![]() |
Skuldarar geti skilað lyklunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.4.2012 | 00:54
Skaðabætur
Fær fólk sem hefur orðið fyrir skaða af ýmsum toga. Þá er ekki látið skipta máli hvort fólk hafi þörf fyrir þeim pening eða ekki. Með réttu eða röngu, þannig er það.
Það hafa allir fasteignaeigendur tapað/orðið fyrir skaða á meintri glæpsamlegri gamble hegðun bankanna sem ,,lánuðu" örfáum nær allt sem náðist í og kannski gott betur en það. Þetta rugl olli hruninu 2008 og eftirleikinn vitum við og glímum enn við. Húseigendur eiga að njóta alls vafa, enda leikmenn í góðri trú að taka lán sín og sem skrifuðu undir endurgreiðsluáætlun. Það þarf auðvitað að sjá til þess að bankarnir verði látnir standa við þá áætlun. Ok með smá skekkjumörkum segjum 5%, en þá húseigendum í vil að sjálfsögðu.
Okkur er sagt að þetta hafi verið loftbóla sem sprakk, platpeningar. Af hverju þarf þá að borga þetta hrun með alvöru peningum, blóði, svita og tárum ????
Auðvitað eiga allir að fá skaðabætur. Fáist bankarnir ekki til að bæta fasteignaeigendum syndir feðra sinna með því að leiðrétta ÖLL húsnæðislán, þá þarf almenningur einfaldlega að sameinast um að draga bankana fyrir dóm og höfða skaðabótamál. Þeim er illa við tal um leiðréttingar, niðurfellingar , skuldahreinsanir og hvað þetta allt heitir þegar fáir útvaldir hafa átt í hlut og fengið hókus pókus sprota á skuldir sínar. Svo við þurfum þá einfaldlega að skipta um taktík og nálgast þetta á annan hátt. Núna. Á meðan enn er hér fólk sem tórir. Það hjálpar ekki neitt að bíða þar til allir eru komnir út fyrir hungurmarkabrúnina.Þeir fáu sem eiga meira en nóg, þeir hagnast líka. hver á annars að vera hér til að kaupa eignir þeirra, vörur og þjónustu ? Eignir þeirra lækka einnig í verði, sem og þeirra fáu sem flokkast sem ,, venjulegt fólk", sem fór varlega og stendur í skilum eða á skuldlausar eignir eða engar eignir. Það tapa ALLIR á þessu rugli sem hefur nú viðgengist í 4 ár bráðum og sér ekki fyrir endann á. Almenningi er haldið saklausum í skuldafangelsum í frjálsa fagra landinu okkar. Þetta á ekki og þarf ekki að vera svona.
Alþingismenn þurfa að sýna kjark og þor og klára lögin um rétt almennings á hópmálsókn. Allt sem þarf er VILJI. Forsenda þess að þjóðin nái að halda áfram eftir reiðina og þunglyndið sem hefur varað í næstum 4 ár og með réttu, er að réttlæti náist og þeir sem eru valdir að hruninu fái refsingu og skaðabótauppgjör fari fram. Að halda að þjóðin gleymi þessu eins og venjan hefur verið er óraunhæf ( þverpólitísk ?) draumsýn. Við þurfum að fá frið til að halda áfram, við þurfum að fá að vera jákvæð og bjartsýn á ný , fyrirgefa, gleyma og fá tækifræi til að treysta og virða á ný. Eftir að réttlætið nær fram að ganga og skaðabætur hafa fengist er það mögulegt. Fyrr ekki.
Gleðilegt sumar ;))
![]() |
Skuldir heimila aukast stöðugt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)